Morgunblaðið - 30.07.2015, Page 80
ÚTIVIST og hreyfing80
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
L
öng hefð er fyrir því að fjöl-
skyldur komi saman í Vatna-
skógi um verslunarmanna-
helgina og eigi þar saman
ánægjulega stund. Er svæðið allt
undirlagt og gestir skemmta sér í
mesta bróðerni, príla og sprellast í
leiktækjum, fá lánaðan árabát og
skella sér í litla ferð út á vatnið, eða
slaka einfaldlega á í góða veðrinu
með nestið sitt.
Það er ekki
að ástæðulausu
að hátíðin er köll-
uð Sæludagar.
Ársæll Að-
albergsson er
framkvæmda-
stjóri Vatnaskóg-
ar. Hann segir
Sæludaga hafa
verið haldna í nú-
verandi mynd
allt frá árinu
1992 og margir þeirra sem heim-
sóttu Vatnaskóg með foreldrum sín-
um á þeim árum séu núna að koma
með sín eigin börn. Heilu fjölskyld-
urnar heimsæki svæðið ár eftir ár
og vilja ómögulega missa af upplif-
uninni og amdrúmsloftinu.
„Yfirleitt koma um 1.000
manns á Sæludaga ár hvert en hef-
ur farið upp í um 1.300 gesti þegar
mest lét. Það fer mjög þægilega um
þennan fjölda hér á svæðinu þó það
geti farið að bera á bílastæðavanda-
málum ef gestafjöldinn er nær efri
mörkunum. Með góðu skipulagi
gæti Vatnaskógur tekið við enn
fleiri gestum en við erum mjög sátt
við þessar tölur.“
Segir Ársæll unnið að því að
stækka og bæta enn frekar tjald-
stæðin svo betur fari um gestina.
„Með hverju árinu fækkar í hópi
þeirra sem koma með tjald með-
ferðis en þeim fjölgar að sama skapi
sem mæta með tjaldvagn eða felli-
hýsi í eftirdragi sem kalla eðli máls-
ins samkvæmt á meira pláss undir
hvern gest.“
Leikir og fjör
Vatnaskógur er mikill ævin-
týraheimur og margir sem eiga
verðmætar æskuminningar úr sum-
arbúðunum sem þar eru starf-
ræktar. Gestir sæludaga hafa að-
gang að öllum þeim leiktækjum,
áhöldum og byggingum sem á
svæðinu eru og að auki er staðið
fyrir vandaðri skemmtidagskrá alla
helgina. Er miðstöð hátíðarinnar í
íþróttahúsinu sem breytt er í stóran
tónleikasal.
Í ár er von á tónlistarfólki á
borð við Pétur Ben, Friðrik Ómar
og Regínu Ósk. Flutt verður leik-
sýningin Hafdís og Klemmi og
leyndardómar háaloftsins, haldnar
kvöldvökur, söng- og hæfi-
leikakeppnir, og staðið fyrir
fræðslufundum. Þeir sem áhuga
hafa geta sótt fjölskylduguðsþjón-
ustu og sérstök dagskrá er skipu-
lögð fyrir unglingana svo þeim ætti
ekki að leiðast eitt augnablik.
„Á fimmtudeginum eru öll leik-
tæki opin, bátar á vatninu og
hoppukastalarnir uppblásnir. Sjálf
skemmtidagskráin hefst svo á
föstudeginum. Ungir sem aldnir
geta spreytt sig á íþróttum af ýms-
um toga og Sæludagsleikarnir eru
fastur liður í prógramminu,“ segir
Ársæll og bætir við að allir aldurs-
hópar eigi að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi.
Aðstaðan er fjarska góð og
liggur við að fólk þurfi ekki að
koma með neitt meira en góða
skapið. „Sumir eru jafnvel bara á
svæðinu yfir daginn en aka svo aft-
ur til höfuðborgarsvæðisins á kvöld-
in enda ekki nema um 45 mínútna
akstur aðra leið. Á Sæludögum
starfrækjum við veitingastað þar
sem kaupa má ljúffenga rétti á hag-
stæðu verði og eins er Café Lindar-
rjóður sem er kaffihús staðarins
þar sem slaka má á með heitan
bolla og kökusneið eða samloku.“
Á tjaldsvæðunum er góður að-
gangur að vatni og rafmagni og
dugar ekkert minna nú þegar ekki
kemur til greina að láta hleðsluna á
snjallsímanum klárast. Ársæll
bendir þó á að Vatnaskógur sé ekki
svo vel tengdur að börn og full-
orðnir geti verið með nefið við
snjallsímaskjáinn alla helgina.
„Netsambandið er ágætt niðri við
vatnið en getur verið takmarkað á
öðrum stöðum.“
Fræðsludagskráin endur-
speglar vel áherslur Sæludaga.
Samkoman er með öllu vímu-
efnalaus og áherslan á að fjöl-
skyldan eigi heilbrigða og gefandi
samverustund. „Efni fræðslu-
fundanna er þannig að bæði þeir
ungu og þeir sem eldri eru ættu að
hafa áhuga á að hlusta. Er t.d.
fjallað um uppeldi, samband feðra
við börnin sín, hvernig einstakling-
urinn á að horfa á sjálfan sig,
hvernig við getum vaxið í því sem
við fáumst við í lífinu, og lifað lífinu
vel og fallega,“ útskýrir Ársæll.
Sterkari fjölskyldubönd
Selt er inn á svæðið við hliðið
og einnig hægt að kaupa miða á
skrifstofu KFUM og KFUK. Eru
vitaskuld allir velkomnir á Sælu-
daga og bendir Ársæll á að miða-
verðið þyki nokkuð hófstillt miðað
við margar aðrar samkomur helg-
arinnar. Veitir hátíðargjaldið
ókeypis aðgang að öllum leik-
tækjum og skemmtunum.
Lýsir Ársæll andrúmsloftinu
sem afslöppuðu og öruggu. Fjöl-
skyldurnar komi sér vel fyrir,
blandi geði við nágranna sína á
tjaldstæðinu og eignist nýja vini.
Oft hafa foreldrarnir það huggulegt
í tjaldinu eða tjaldvagninum og
leyfa börnunum að valsa um svæðið
og fá útrás í leiktækjunum. „Hér
líður fólki vel og finnur vel að
Vatnaskógur er öruggur staður.
Það er ekkert vesen á neinum og
okkar fólk er á stöðugri ferð um
svæðið til að tryggja að allt sé í
sóma.“
Afslöppuð og áhyggjulaus í Vatnaskógi
Sæludagar í Vatnaskógi hafa verið haldnir í núverandi mynd frá árinu 1992 Enginn skortur er á leiktækjum,
vatn og rafmagn á öllum tjaldsvæðum og varla að gestir þurfi að koma með meira meðferðis en góða skapið
Upplifun Íþróttahúsinu er breytt í stóran samkomusal þar sem haldnir eru tónleikar og leiksýningar, fyrirlestrar og hæfileikakeppnir.
Ársæll
Aðalbergsson
Áskorun Íþróttastarf og þrautir bíða þeirra sem vilja spreyta sig.
Skopp Leiktækin eru af öllum toga og eitthvað í boði fyrir alla aldurshópa á Sæludögum. Kátína Það er auðvelt að eignast nýja vini í Vatnaskógi og ævintýrin við hvert fótmál.
Morgunblaðið/RAX
Allir fjölskyldumeðlimir, meira
að segja þeir fjórfættu, eru vel-
komnir á Sæludaga. Segir Ár-
sæll að hundar séu á ábyrgð
eigenda sinna og verði hver og
einn að meta hvort seppi á er-
indi á hátíðina eða yrði ham-
ingjusamari í pössun í bænum.
„Hundar mega þó ekki fara inn í
húsin og þurfa eigendur að hafa
góðar gætur á hundum sínum.
Hefur hundahaldið ekki verið til
neinna vandræða og fylgja þeir
eigendum sínum við hvert fót-
spor og hafa gaman af mannlíf-
inu.“
Fjórfættir gestir
velkomnir