Morgunblaðið - 30.07.2015, Síða 94
94 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Fjármál þín valda óöryggi og ótta.
Það má einu gilda hversu mikla kyrrstöðu þú
telur ástalífið vera í, maður spáir samt í
hvernig hlutirnir væru ef þú hefðir valið öðru-
vísi.
20. apríl - 20. maí
Naut Aðrir eru kröfuharðir á tíma þinn svo þú
verður að gera það upp við þig hvað skiptir
máli og hvað ekki. Einhver lofar þér öllu fögru
í dag, taktu því sem sagt er með fyrirvara.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ef þú geispaðir frá þér morguninn
skaltu muna um hádegið að líf þitt er fullt af
drama, nýjungum og spennandi hlutum.
Neyttu allra tiltækra ráða.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hlaupabraut atvinnulífins reynir
meira á en vanalega. Leitaðu ráða hjá öðrum.
Breytingar á nánum samböndum neyða þig
til að aðlagast breyttum aðstæðum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú þarft að koma skipulagi á hlutina,
bæði heima fyrir og á vinnustað. Einhverra
hluta vegna er engin rútína hjá þér um þessar
mundir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ættingjar eða nágrannar koma þér á
óvart með einhverjum hætti í dag. Reyndu að
setja þér raunsæ markmið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nú er tími til kominn að taka aftur
áhættu, af því tagi sem fær þig til að svitna í
lófunum. Farðu í gegnum allt málið og þá
hlýtur þú að finna hvað þarf að lagfæra.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Samræður við vini, systkini eða
fjölskyldu eru þér ákaflega mikilvægar.
Brjóttu odd af oflæti þínu, hreinsaðu and-
rúmsloftið og gakktu til sátta við samstarfs-
mann þinn.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það á ekki alltaf við að treysta á
guð og lukkuna. Refsaðu ekki sjálfum/sjálfri
þér því þú átt allt annað skilið. Þú þarft bara
lengri tíma.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Einhver kemur þér til aðstoðar án
þess að þú hafir óskað eftir því. Nú er um að
gera að gaumgæfa málin áður en gripið er til
einhverra aðgerða.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það getur oft reynst erfiðara en
virðist í fljótu bragði að laga hluti sem hafa
verið látnir dankast lengi. Gættu þess að
sökkva þér ekki í skuldir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Óreiða er svo skemmtileg. Haltu í skít-
inn sem þú elskar mest. Þú átt að geta glaðst
yfir velgengni annarra.
Páll Imsland valdi orðið „Bóka-dýrtíð“ sem fyrirsögn á Leirn-
um á þessum pistli sínum:
„Fyrir nokkru síðan fjárfesti ég í
fræðibók um hegðun og sálarlíf
hrossa og þurfti að punga út með
folaldsverð. Þetta rifjaðist upp áð-
an þegar ég gluggaði í skrudduna
og þá varð þessi til.
Þó ágæti hennar sé lítið læt ég
hana fara í von um að Leir hrökkvi
í gírinn.
Að afla sér bóka er athöfn dýr
og auðga sinn huga svo verði’ hann
skýr.
Aurinn úr buddunni bráður snýr,
bara sé skruddan frá Esivier.“
Sigrún Haraldsdóttir svaraði:
„Til að leggja eitthvað í púkkið orti
ég eina limru:
Ég eignaðist ástkæra minningu,
andlega, langþráða brynningu,
mér þótti ég stór
þegar ég fór
með tengdó á Tupperware kynningu.“
Og bætti síðan við: „úr því ég er
byrjuð að bulla…
Kínverska konan hans Pésa
kenndi honum Blesa að lesa.
Sem næringu á tún
notaði hún
ljósgráa tape-ið frá Tesa.“
Jón Arnljótsson lét þessa flakka:
Sigrún er byrjuð að bulla
um Blesa, sem helst vildi lulla.
Um tape oní tún,
talaði hún.
Þetta var raunaleg rulla.
Fía á Sandi gat ekki stillt sig:
Hann Blesi var hugprúður hestur
í hlaupi var klárinn víst bestur
ef fór hann af stað
en fágætt var það
því hann lá oftast heima við lestur.
Sigrún átti enn margt óort:
Nös litla naut þess að sulla
en neitaði alveg að lulla.
Hún saup á við tvær
og síðast í gær
drakk hún sig ferlega fulla.
Sigurlín Hermannsdóttir sagði:
„Ég hef aldrei verið hestakona en
læri mikið um þær skepnur hér“.
Nös sagði: Nú er mér mál,
en nefndu það ekki við Pál,
ég ætla að fara
en fyrst vil ég bara
hella’ í mig hestaskál.“
Pétur Pétursson prófastur orti:
Litli Gráni leikur sér,
lipurt hefur fótatak.
Pabbi góður gaf hann mér;
gaman er að skreppa á bak.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af Pésa, Blesa og Nös
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HVERNIG GETUR NOKKUR MAÐUR SETIÐ Á
RAFSUÐULOGA?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar það að vera
með þér lætur mig vilja
fleiri samverustundir.
GEISP!GEISP! HVERS VEGNAVERÐURÐU ALLTAF
AÐ TOPPA MIG?
ÞVÍ ÉG
GET ÞAÐ.
SÝNDU MÉR MANN SEM TEKUR
HATTINN SINN ALDREI OFAN...
... OG ÉG SKAL SÝNA ÞÉR
MANN SEM ER AÐ MISSA
HÁRIÐ!
ÁKVEDDU
ÞIG
NÆSTA FRÁ-
REIN 100 KM.
Víkverji er söngelskur maðurmjög. Raunar fer tvennum sög-
um af hæfileikum hans á söngsviðinu
og heldur Víkverji því söngnum oft-
ar en ekki fyrir sig og sturtuhausinn,
sem fær hlutverk hljóðnemans. Þá á
hann það til, þegar hann er einn í bíl,
og gott lag kemur í útvarpinu, að
þenja raddböndin sem mest hann
má og er þá eflaust stórskemmtilegt
fyrir farþega í öðrum bílum að horfa
á aðfarirnar, ef ekki hlusta.
x x x
Þeirri náðargáfu sem Víkverji villmeina að hann búi yfir fylgir
hins vegar stór galli. Hann á til-
tölulega auðvelt með að fá lög á heil-
ann, en það reynist þrautin þyngri
fyrir hann að losna við þau þaðan.
Til dæmis heyrði Víkverji hið sígilda
lag Righteous-bræðra, „You’ve Lost
That Loving Feeling“, í útvarpinu
um daginn og hefur síðan átt það til
að humma með sér laglínuna á ólík-
legustu stöðum, auk þess sem hann
hefur gripið óstjórnleg löngun til
þess að leigja stórmyndina Top Gun
með hjartaknúsaranum Tom Cruise
á næstu vídeóleigu.
x x x
Að þessu sinni var Víkverji hepp-inn, því að þegar allt kemur til
alls, þá er þetta bara nokkuð gott
lag, en verra er það þegar lögin sem
detta á heilann eru þreytandi eða
jafnvel leiðinleg. Raunar var Vík-
verja kennd fyrir nokkru aðferð til
þess að losna við slík lög af heil-
anum, sem var sú að hugsa um hinn
sígilda smell Carpenter-systkin-
anna, „Top of the World“, með þeim
afleiðingum að það myndi ýta hinu
laginu út og setjast sjálft að í heil-
anum í þess stað. Rökin voru þau, að
þar sem það lag væri svona þolan-
legra en mörg önnur, án þess þó að
vera eitthvert meistarastykki, þá
myndi það gera hvort tveggja, ýta
leiðinlegra lagi út en staldra sjálft
frekar stutt við á heilanum.
x x x
Þetta ráð hefur hingað til reynst
óbrigðult, að mestu leyti, nema hvað
stundum finnst Víkverja vanta enn
eitt lag sem gæti þá ýtt Carpenters
út þegar þau eru búin að sinna sín-
um skyldum. víkverji@mbl.is
Víkverji
Ég er dyrnar. Sá sem kemur inn um
mig mun frelsast og hann mun ganga
inn og út og finna haga.
Jóhannesarguðspjall 10:9
SÓLVARNARGLER
OG HANDRIÐ
M
ynd:Josefine
Unterhauser
ispan@ispan.is • ispan.is