Morgunblaðið - 30.07.2015, Qupperneq 105
MENNING 105
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015
Póstsendum hvert á land sem er | Laugavegi 178 | Opið mán-fös 10-18, laugardaga 10-14 | S. 551-2070/551-3366 | www.misty.is
MJÚKAR OG ÞÆGINLEGAR
MOKKASÍUR ÚR LEÐRI,
SKINNFÓÐRAÐAR
Stærðir 36-42
Verð frá 14.685,-
SÍVINSÆLIR Í stærðum
32-40 D,DD,E,F,
og 32-38 FF,G
kr. 7.880,-
Í stærðum
32-42DD,E,F,
og 32-38 FF,G
kr. 7.880,-
MICHELLE ADAM SEAN
MONAGHAN SANDLER BEAN
POWERSÝNING
KL. 10:35
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
EIN STÆRSTA FJÖLSKYLDUMYND ÁRSINS
Sími: 553-2075
www.laugarasbio.is
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI
- bara lúxus
að honum hefði orðið ljóst við tökur
á The Misfits að Monroe væri glöt-
uð. Ekkert fengi henni bjargað. Í
miðjum klíðum þurfti að gera
tveggja vikna hlé á tökum meðan
Monroe lagðist inn á spítala til
afeitrunar. Þegar hér er komið
sögu var stjarnan orðin fræg fyrir
að mæta ítrekað of seint til vinnu
eða bara alls ekki. Best þótti henni
að læra línurnar sínar á nóttunni
með kennara sínum, hinni umtöluðu
Paulu Strasberg.
Sjálfur mun Huston hafa
drukkið eins og svampur meðan á
gerð myndarinnar stóð og stundað
fjárhættuspil af miklu kappi. Sá
reikningur lenti að hluta á framleið-
andanum, Seven Arts Productions.
Til að bæta gráu ofan á svart
var steikjandi hiti á tökustað, í Ne-
vada-eyðimörkinni, meðan á tökum
stóð – um og yfir 40 stig. Það reyndi
á þolrifin.
Tveimur dögum eftir að tökum
lauk fékk Gable hjartaáfall og sál-
aðist tíu dögum síðar, 16. nóvember
1960. Hann var 59 ára.
Orðrómur var um að álagið við
gerð The Misfits hefði riðið honum
að fullu en Gable heimtaði meðal
annars að leika í öllum sínum
áhættuatriðum sjálfur. Þá hefur
skuldinni líka verið skellt á stífa
megrun vikurnar og mánuðina fyrir
tökur. Eiginkona Gables, Kay, hafn-
aði þessu í viðtali skömmu eftir and-
lát hans. „Það var ekki hið lík-
amlega erfiði sem varð honum að
fjörtjóni. Það var þessi hræðilega
spenna, endalaus bið, bið, bið. Hann
beið endalaust eftir öllum. Hann
varð svo reiður að hann gerði hvað
sem var til að halda sér við efnið,“
sagði hún.
Hér hlýtur að vera skotið á
Monroe sem á móti hélt því fram að
þeim Kay hefði komið afar vel sam-
an. Fjórum mánuðum eftir andlát
Gables ól Kay bónda sínum son og
var Monroe viðstödd skírnina.
The Misfits var frumsýnd 1.febrúar 1961, daginn sem
Gable hefði orðið sextugur. Monroe
mætti á frumsýninguna eftir að
hafa fengið leyfi frá geðspítala sem
hún dvaldist á um þær mundir.
Myndin féll í frjóa jörð hjá gagnrýn-
endum, ekki síst frammistaða
Monroe og Gables, en aðsóknin varð
mikil vonbrigði. The Misfits er víð-
ast hvar háttskrifuð í dag.
Fjölmargir hafa lagt út af gerð
The Misfits gegnum árin, bæði í
orði og mynd. Meðal annars byggist
síðasta leikrit Arthurs Millers, Fin-
ishing the Picture frá 2004, að
stórum hluta á þeim atburðum.
Þeysireið Monroe til heljar
varð ekki stöðvuð, fremur en John
Huston gerði ráð fyrir, og hálfu
öðru ári síðar var hún öll, 36 ára að
aldri. Um það andlát þarf ekki að
fjölyrða hér, hvorki ástæður þess né
samsæriskenningar.
Monroe lék í einni kvikmynd til
viðbótar, með því viðeigandi nafni
Somethings’s Got to Give, en hún
var aldrei kláruð.
Þriðja stærsta hlutverkið í The
Misfits var, sem áður segir, í hönd-
um Montgomerys Clifts, dáðs leik-
ara sem ásamt Marlon Brando er
iðulega nefndur sem brautryðjandi
í svokölluðum method-leik í kvik-
myndum. Snemma á sjötta áratugn-
um var hann einn eftirsóttasti aðal-
leikari Hollywood en dróst aftur úr
mönnum eins og Brando, Paul
Newman og fleirum vegna vand-
fýsni sinnar í verkefnavali. Clift lék
aðeins í átján kvikmyndum á ferl-
inum en til samanburðar má nefna
að Gable lék í 67 myndum. Sumir
segja að kynhneigð Clifts hafi líka
verið honum fjötur um fót en hann
hneigðist jafnt til karla sem kvenna.
Það var ekki vel séð í Hollywood á
þeim tíma.
Árið 1956 slasaðist Clift alvar-
lega í bílslysi og náði sér aldrei eftir
það – hvorki andlega né líkamlega.
Þess vegna er iðulega talað um líf
hans eftir slysið sem „lengsta sjálfs-
víg kvikmyndasögunnar“. Clift fest-
ist í vítahring áfengis- og lyfjamis-
notkunar og lést af völdum
hjartabilunar árið 1966, 45 ára að
aldri. Orð Marilyn Monroe eftir að
hafa unnið með Clift að gerð The
Misfits segja allt sem segja þarf:
„Hann er eini maðurinn sem ég hef
kynnst sem er í verra ásigkomulagi
en ég sjálf.“
Þeysireið til heljar
Álag Montgomery Clift, Marilyn Monroe og Clark Gable við gerð The Mis-
fits. Engu þeirra leið vel á meðan og skömmu síðar voru þau öll öll.
»Það var ekki hið lík-amlega erfiði sem
varð honum að fjörtjóni.
Það var þessi hræðilega
spenna, endalaus bið,
bið, bið. Hann beið enda-
laust eftir öllum. Hann
varð svo reiður að hann
gerði hvað sem var til að
halda sér við efnið.
AF VILLINGUM
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
Ríkissjónvarpið sýndi merki-lega kvikmynd að kvöldisíðasta sunnudags, Vill-
ingana eða The Misfits eftir John
Huston frá árinu 1961. Þar komu
saman í fyrsta og eina skipti á hvíta
tjaldinu tvær af skærustu stjörnum
kvikmyndasögunnar, Clark Gable
og Marilyn Monroe, og varð myndin
sú síðasta hjá þeim báðum. Þá lék í
myndinni Montgomery Clift, einn af
fyrstu method-leikurunum – stadd-
ur í miðju sjálfsmorði.
Monroe hafði lengi dreymt um
að vinna með Gable, sjálfum „kóng-
inum“ í Hollywood, en sem barn
hélt hún því gjarnan fram að hann
væri faðir hennar. Gable lagði líka
sitthvað á sig fyrir myndina, hristi
til dæmis af sér sextán kíló til að líta
sem best út við hliðina á gyðjunni.
Var kominn í svipað form og þegar
hann lék sitt frægasta hlutverk,
Rhett Butler í Á hverfanda hveli,
meira en tuttugu árum áður.
The Misfits var tekin upp sum-
arið og haustið 1960 og gekk gerð
hennar hægt og illa fyrir sig.
Monroe var í afleitu ásigkomulagi
enda að ganga gegnum skilnað við
leikritaskáldið Arthur Miller, sem
einmitt samdi handritið að mynd-
inni og var eins og grár köttur á
svæðinu. Þá var hún djúpt sokkin í
misnotkun áfengis og lyfja. Leik-
stjórinn, John Huston, sagði síðar
Áfram heldur tónleikaröðin Sumar-
tónleikar í Skálholti en hópurinn
Nordic Affect efnir nú til fernra-
tónleika í kvöld, á laugardaginn og
á sunnudaginn. Efnisskráin tengist
að þessu sinni aðkomu kvenna að
tónlist og bera yfirskriftina HÚN/
SHE! Er verkefnavalið afrakstur
leiðangurs listræns stjórnanda
hópsins, Höllu Steinunnar Stef-
ánsdóttur, í Þjóðarbókasafn Frakk-
lands í París síðastliðinn vetur.
Í kvöld klukkan 20 fara fram tón-
leikarnir HÚN/SHE: Louise, Den-
ise og kompaní, en þar verður ljós-
inu beint að nokkrum af fremstu
nótnariturum Frakklands á fyrri
hluta 18. aldar. Á efnisskrá eru því
verk sem voru haganlega útbúin
meðal annars af Madame Leclair,
Mademoiselle Noel og Mademois-
elle Bertin. Á laugardaginn klukk-
an 15 bera tónleikarnir nafnið
HÚN/SHE: Madame Boivin, en þá
verða flutt verk sem einn stærsti
nótnaútgefandi í Frakklandi um
miðbik 18. aldar sendi frá sér. Efn-
isskráin er fjölbreytt því marga
fjársjóði var að finna í hillum frú
Boivin í París og spannar verk-
efnaval því allt frá frönskum óperu-
aríum til hljóðfæraverka eins og
segir í tilkynningu. Sérstakur gest-
ur með Nordic Affect á þessum
tónleikum er Eyjólfur Eyjólfsson
tenór. Hópurinn endurtekur síðan
HÚN/SHE: Louise, Denise og
kompaní, klukkan 17 sama dag og
lýkur helginni síðan með HÚN/
SHE: Madame Boivin, á sunnudag-
inn klukkan 15.
Heiðra konur í tónlist
Nordic Affect með ferna tónleika
á sumartónleikaröðinni í Skálholti
Tónleikar Efnisskrár Nordic Affect
tengjast aðkomu kvenna að tónlist.