Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1990, Side 51
MÚLAÞING
49
milli þeirra sveita er verst urðu úti hvað heyskapinn snerti sumarið
1875. Því sem eftir stóð af því samskotafé átti að óskum Eiríks að
verja til styrktar bændum þeim á Jökuldal, er flutt höfðu burt af jörðum
sínum, til þess að hefja þar búskap aftur. Þetta fé hefir þó sennilega
verið lagt í sjóð þann er verja átti til eflingar landbúnaði í Múlasýslum
og áður er um getið.
HEILBRIGÐISMÁL
íslendingar höfðu jafnan orðið útundan á sviði læknamálanna. Með
konungsúrskurði 18. mars 1760 varð Bjarni Pálsson fyrsti landlæknir
hér á landi. Honum var falið að hafa umsjón með heilbrigðismálum
landsins, veita sjúkum læknishjálp og kenna lækningar. Fjórir nem-
endur Bjarna luku prófi hjá honum og voru allir skipaðir læknar. Einn
þeirra, Brynjólfur Pétursson, var árið 1772 skipaður læknir í Austfirð-
ingafjórðungi og sat á Brekku í Fljótsdal, fékk lausn frá starfi 1807.
Upphaflega var einn læknir ráðinn til starfa í fjórðungi hverjum, svo-
nefndir fjórðungslæknar. Við starfi af Brynjólfi tók Ólafur sonur hans
og gegndi því til dauðadags, hann bjó einnig á Brekku og dó þar 1813.
Árið 1819 tekur við starfi fjórðungslæknis Jörgen Kjerúlf, danskur
maður. Sat fyrsta árið í Eskifjarðarkaupstað, en síðan að Brekku í
Fljótsdal og dó þar 1831. Árið 1832 tekur við starfinu Hans P. J.
Beldring, danskur maður, sat á Brekku og dó þar 1844. Þá tekur við
starfi fjórðungslæknis Gísli Hjálmarsson, sat í Vallanesi og síðar á
Höfða á Völlum, fékk lausn frá starfi 1860. Þá tekur við starfinu Bjarni
Thorlacius, sat fyrst á Höfða, síðan á Hallormsstað og loks á Eskifirði
og dó þar 1867. Árið 1868 var settur í starf fjórðungslæknis Fritz
Zeuthen, skipaður var hann í þetta starf 1874 og gegndi því til 1876,
sat á Eskifirði. Breyting varð á læknaskipun landsins með lögum frá
1875, þannig að landinu var skipt í 20 læknishéruð. Frá 1876 - 1898
þjónaði Zeuthen 15. læknishéraði og sat áfram á Eskifirði. Árið 1876
var Þorvarður læknir Kjerúlf skipaður til að þjóna 14. læknishéraði.
Hann bjó á Ormarsstöðum í Fellum, 14. læknishérað náði yfir alla
Héraðshreppa í Norður-Múlasýslu, einnig Borgarfjarðar-, Loðmund-
arfjarðar- og Seyðisfjarðarhreppa. Auk þess Vallahrepp í Suður-Múla-
sýslu.
Þorvarður átti sæti í amtsráði Austuramtsins og í sýslunefnd Norður-
Múlasýslu 1880 - 1893, einnig var hann alþingismaður Norðmýlinga
1881 - 1891. Hann dó 1893, var þá á ferð á Seyðisfirði.