Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1990, Page 54
52
MÚLAÞING
fyrst nefna sjúkraskýli og þar með læknisbústað á Brekku í Fljótsdal,
sem hóf störf sín 1907 og var fyrsta sjúkraskýli í dreifbýli á íslandi.
Styrkur var veittur til byggingarinnar og árlegur styrkur frá 1918 -
1943. Húsið brann í byrjun árs 1944 og fluttist þá læknissetrið í Egils-
staði.
Styrkur var veittur árlega til byggingar og reksturs sjúkrahúss og
læknabústaða á Egilsstöðum til 1978. Frá 1974 hefir árlega verið veittur
styrkur til elliheimilis á Egilsstöðum. Frá 1978 hefir árlega verið veittur
styrkur til elliheimilis á Vopnafirði. Arin 1905 og 1906 er veittur styrkur
til byggingar sjúkraskýlis á Vopnafirði, og frá 1928 hefir styrkur verið
veittur því sjúkraskýli svo til árlega til 1978.
A árabilinu 1934 - 1949 greiðir sýslan skólaskoðun lækna. Vegna
aðildar Skeggjastaðahrepps að sjúkraskýli á Fórshöfn veitti Norður-
Múlasýsla því styrk svo til árlega frá 1920 - 1978. Þá var á tímabili
greiddur kostnaður vegna berklasjúklinga, en var að mestu endur-
greiddur úr ríkissjóði. Þá hefir kostnaður við hreinsun hunda alla tíð
verið árviss.
Árið 1898 samþykkir sýslunefndin að veita kr. 2000,00 til byggingar
sjúkrahúss á Seyðisfirði. Á árunum 1937-1940 erþví sjúkrahúsi veittur
nokkur rekstrarstyrkur. Þá má geta þess, að sýslan hefir veitt styrki
til að kaupa sjúkrabifreiðir. Á árunum 1952 - 1956 er árlega greiddur
nokkur fjárstyrkur til elliheimilis á Seyðisfirði.
Ljósmæður
Stór þáttur í heilbrigðisþjónustunni var starf og staðsetning ljós-
mæðra. Laun sín fengu þær úr sýslusjóði, en amtmaður hafði yfirum-
sjón með þessum þætti mála, eins og fleiri málum, meðan hans naut
við. Á fundi sýslunefndar 14. september 1876, var í tilefni af bréfi
amtmanns, lagt til að skipta sýslunni í eftirtalin ljósmóðurumdæmi. 1.
Seyðisfjarðar- og LoðmundarfjarðarhrepjDar. 2. Fljótsdals- og Fella-
hreppar. 3. Jökuldalurinn. 4. Vopnafjarðarhreppur, að undanteknum
bæjunum Hvammsgerði, Hámundarstöðum, Ljósalandi og Strandhöfn.
5. Skeggjastaðahreppur ásamt áðurtöldum bæjum í Vopnafirði. 6.
Tunguhreppur og Jökulsárhlíð. 7. Borgarfjarðarhreppur. 8. Hjalta-
staðahreppur, sem ætti að vera með Eiðahreppi í Suður-Múlasýslu. í
umdæmi 1 hafði yfirsetukona aðsetur á Seyðisfirði. í hinum umdæmun-
um sér nefndin ekki fært að tiltaka neina ákveðna bæi.
Á fundinum var upplýst að eftirtaldar yfirheyrðar nærkonur séu í