Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1990, Page 106

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1990, Page 106
104 MULAÞING verulegu leyti vera byggðar á bjartsýni hans. Ég held ég muni það rétt, að það hafi verið greiddur hlutur fyrir uppsátrið og Þórhallur hafi keypt fiskinn upp úr sjónum, en ekki man ég nú hvað þá var gefið fyrir kílóið upp úr sjó. Þórhallur sá um aðgerðina og flutningana á saltinu austan af Norðfirði. Bátarnir, sem fluttu saltið, þ. á m. Drífa, sem var tæp 30 tonn að stærð, ristu of djúpt til þess að geta flotið fullfermdir inn að Miklagarðsbryggjunni, og sennilega heldur ekki tómir. Það varð því að flytja allt salt úr þeim á uppskipunarbátum inn að bryggju. Þessir flutningabátar fluttu svo fiskinn óverkaðan austur á Norðfjörð, þar var hann verkaður. Það mun hafa verið Konráð Hjálmarsson á Norðfirði, sá mikli athafnamaður, sem verkaði fiskinn fyrir Þórhall Daníelsson, þá voru engir fiskireitir til á Höfn til þess að þurrka fiskinn á. Á þessu sést, að það hefur verið við ýmsa örðugleika að etja fyrir Þórhall. Ég held að þetta fyrirkomulag hafi verið lagt niður fljótlega og þá hafi hver útgerðarmaður farið að salta sinn eigin afla, séð um aðgerð á honum sjálfur og flutt hann svo heim að mestu á eigin bátum til verkunar, hver heima hjá sér. Vertíðin á Ægissíðu lagðist fljótlega niður eftir að Mikligarður var reistur. Bátarnir fóru stækkandi og þá versnaði öll aðstaða þar vegna grunnsævis. Eskfirðingarnir fluttu sig þá sumir út í Mikley, í verstöð sína þar, en aðrir gerðu út frá Miklagarði. Við Ægismenn héldum til í Miklagarði þessa vertíð, sem var eins og fyrr er getið, fyrsta árið sem sú mikla verstöð var til. Þetta varð eina vertíðin okkar á Hornafirði um margra ára skeið, en síðar gerðum við, sömu aðilar að mestu, út vélbátinn Þór NS 243, tæplega 12 tonna bát, nokkrar vertíðir frá Hornafirði. En það er nú önnur saga. Þessi vertíð 1920 var yfirleitt léleg hjá öllum. Aflahæsti báturinn mun hafa fengið um 70 skippund (sem mun vera rúm 40 tonn, eða 42 tonn miðað við 600 kg skippundið upp úr sjó) yfir alla vertíðina. Við á Ægi fengum tæp 50 skippund eða um 30 tonn samkv. sama reikningi, yfir þann tíma sem við vorum þar, en hann var að vísu styttri en hjá flestum hinna bátanna sökum þess hve seint við komum til Hornafjarð- ar, eða 3-4 vikum síðar en þeir fyrstu. Á þessum árum var ekki farið að veiða loðnu í fyrirdráttarnætur eins og síðar var gert í Hornafjarð- arfljóti við Melatangann, en það kom fyrir að hún var tínd upp af söndunum frosin og var henni þá beitt. Ég man eftir að þorskur gekk inn í ósinn, þennan vetur á eftir sílinu. Það hafði hann víst oft gert fyrr á árum og reynst þá hin besta björg í bú þegar til hans náðist. Það má vel vera að talsverður fiskur hafi verið á miðunum þennan vetur, en hann tók bara ekki þá beitu sem maður hafði, sem var léleg
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.