Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1990, Page 133
MÚLAÞING
131
enda er Fjarðarströndin mjög snjólétt. Árið 1913 eru síðast gerð út
hvalveiðiskip frá Asknesi en veiði var þá lítil eða engin. Ellefsen var
farinn áður.
í prentaðri skýrslu Landssíma íslands 1910 segir meðal annars:
„Til þess að greiða fyrir símaviðskiptum milli Seyðisfjarðar og Aust-
fjarða fyrir sunnan Seyðisfjörð, er hugsað um að kaupa einkalínu
Ellefsens hvalveiðimanns milli Askness og Fjarðar í Mjóafirði og
byggja nýja línu milli Ness í Norðfirði og Askness (jarðsími yfir
Drangaskarð). Með þessu fyrirkomulagi gætu menn líka fengið
„reserve“ fyrir Fjarðarheiði (Egilsstaðir- Reyðarfjörður- Eskifjörður
- Norðfjörður - Asknes - Fjörður í Mjóafirði - Seyðisfjörður)." Fetta
hefur síðan orðið að ráði að kaupa línu Ellefsens, því 1915 segir í
skýrslum Landssímans þar sem taldar eru framkvæmdir árið áður:
„Tvöföld talsímalína með fjögurra mm járnþræði, Norðfjörður, Ask-
nes í Mjóafirði, 15.000 km. Jarðsími yfir Drangaskarð 0.750 km.“
Þar með var Mjóifjörður kominn með samband á tvo vegu og kom
það sér vitanlega oft vel fyrir byggðarlagið, ekki síst þegar bilaði á
öðru hvoru fjallinu.
Þess má geta að það er ekki fyrr en 1915 að Landssíminn yfirtekur
einkalínu á milli Eskifjarðar og Norðfjarðar og leggur þá jafnframt
800 metra jarðsíma yfir Oddsskarð.
Fyrst í sveitina - svo á bceina
Úr því að ég hef sett á blað þessa frásögn af upphafi símans í sveit
minni, get ég allt eins látið fylgja í fáum orðum það sem á eftir kom,
breytingar og útfærslu símakerfisins í meginatriðum.
í fyrstu voru stöðvar í Firði og á Brekku (Þinghóll) og tvö númer
tengd í Firði, á Asknesi og í Friðheimi, húsi yfirmanna við Innri stöðina
sem svo var kölluð í daglegu tali og fyrr er nefnd.
í Firði var síðan þriðja flokks stöð allar götur fram til 1956 að byggð
lagðist af í Fjarðarbýlunum. Stöðin Brekka var til húsa í Þinghól hjá
séra Þorsteini á meðan hann lifði og liðlega það. Þá var hún flutt að
Borgareyri, sennilega 1918 og var Benedikt Sveinsson útvegsbóndi þar,
póst- og símaafgreiðslumaður á meðan hann lifði. Frá 1932 gætti Sveinn
Benediktsson í Hlíð símans á meðan hann lifði og var stöðin fljótlega
flutt frá Borgareyri heim til hans í Hlíð. Þá tók við Jón sonur Sveins
og bjó í Sandhúsi fram til þess að hann flutti til Hafnarfjarðar árið