Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1990, Page 210
208
MÚLAÞING
öllu vænna um sína trú en oss um vora. Það má sjá af sögum, að sumir
landnámsmenn eystra voru trúmenn miklir.
Hér skulu nú talin þau fornhelginöfn, er ég fann á leið minni, sem
ég ferðaðist norðan frá Digranesi suður að Heinabergsvötnum. Munu
menn sjá af því, að hver sveit á Austurlandi á sín fornhelginöfn geymd.
Einkum eru það þó Goðaborga-nöfnin, sem hver sveit á fyrir sig, og
önnur skyld, svo sem Hof og Hoffell o. s. frv. Þessum nöfnum hafa
fylgt til skamms kynjasagnir, sem eru glataðar, og aðrar skemmdar
orðnar eða breyttar. Þær, sem náðst hefir í, skulu fylgja hér.
1. í Vopnafirði rakst ég eigi á neina Goðaborg. Þó er sagt, að hún
hafi áður verið þar til á austurfjöllunum; en þá er hún nú gleymd.
Aftur á móti heitir Hofsborg handan ár á móti Hofi, þar sem verið
hafa beitarhús, utanvert í Steinvarar-Tungu, milli Hofsár og Sunnudals-
ár. Eigi vita menn nú að sögn, hví þar heitir Hofsborg, því eigi er þar
drangi né annars konar klettur, sem hefði heitið Goðaborg. Má vera,
að þar hafi verið fjárborg, Norðan Sunnudalsár, móti Sunnudalsbæ,
er sagt að Vopnfirðingar hafi háð Sunnudalsþing. Hefir þá Brodd-Helgi
átt skammt á þingið, þegar hann var veginn úti fyrir Sunnudalsmynni,
líklega vestur frá Haga, á eyrunum, þar nærri, sem nú heitir Mann-
skaðabakki. Þar hafa þau Brodd-Helgi eigi séð þá Geiti fyrr en þeir
komu að þeim; enda höfðu þeir samið um, að verða samferða á þingið,
og Helgi gert krók á leiðina til þess. Hofstóft með garðalögum í kring
er nú sýnd norðan við Hofsbæ.
2. Þórfell heitir allhár fjallshnjúkur, norðvestur og ofar frá Hákon-
arstöðum, landnámsjörð á Jökulsdal. Munnmæli úr Jökuldælu (eða
,,Jöklu“) greindu svo frá, að Hákon, - sem nam dalinn að norðan,
tilbæði þar Þór með fórnfæringu og áheitum miklum, og hlypi þangað
berhöfðaður og berfættur til að dýrka hann, áður en hann fór til hólm-
göngunnar við Skjöldúlf. Hafa menn þóst sjá þar líkur til mannvirkja,
og dyslagaða þúfu, er óljós munnmæli hafa gefið í skyn, að væri haugur
Hákonar. Þessa mun hafa verið getið í „Jöklu“, nfl. sögunni, sem nú
er týnd, nema ef hún er til, eða eitthvað af henni, í safni því er magister
Eiríkur Magnússon gaf bækur sínar. Guttormur prestur í Stöð, Gutt-
ormsson, átti að minnsta kosti „Herjúlfsögu“, sem mun hafa verið
þáttur í „Jöklu“. Björg dóttir séra Guttorms, seldi Eiríki bækur þær,
er hún fékk í arf eftir föður sinn. - Hofstóftin Jökuldælinga er vel
glögg í Goðanesi.
Þá á Fljótsdalshérað sín fornhelginöfn.
3. Ragnaborg heitir fell eitt inni á Múlanum, sem skiptir Fljótsdal