Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1990, Síða 214
212
MÚLAÞING
henni, að margir hafi reynt að skoða hana, en engum tekist það til
hlítar, því ætíð hefir þá komið glórulaust þokumyrkur, svo að menn
hafa villst eða orðið frá að hverfa, því gömul álagahulda eða goðhelgi
varnar allri óþarfa hnýsni. Önnur Goðaborg segja menn, að sé innst
á norðurfjallinu upp frá Fannardal.
11. Goðadalur og Goðavík heita enn að norðanverðu úti á strönd
Reyðarfjarðar. Sumir segja og, að þar á fjallinu hafi verið ein þessi
Goðaborg. - Borgir heita og innarlega í sveitinni tveir einkennilegir
klettahnjúkar, utanvert við Hólmaháls, allháir og fagrir. Hafa þeir
líklega heitið Goðaborgir í öndverðu, því munnmælin segja fornhelgi
helst loða við háa staði og einkennilega.
12. Goðaborg heitir uppi á norðurfjalli Fáskrúðsfjarðar, ofar frá
Dölum. Þar nokkru utar heitir Hoffell, fagurt fjall. Norðanvert við
það segja sumir, að sé klettur sem kista í lögun. Þar er líka kölluð
Goðaborg, og er sund á milli hennar og fjallsins.
13. Gunnarstindur heitir hár og fagur hnjúkur innarlega á fjallinu
milli Breiðdals og Stöðvarfjarðar, norður frá Heydölum; fagurt fjall.
Þar eru sögð grjótlög uppi á tindinum. Ekki þekkist nú neitt fornhelgi-
nafn beint tilheyrandi þessari sveit, nema ef það er þetta, þótt Þórhadd-
ur hinn gamli legði Mærinnarhelgi á allan fjörðinn.
14. Goðaborg nefnist enn fjallshyrna norðan í fjallgarðinum á milli
Breiðdals og Berufjarðarstrandar, upp frá Ósi. Þessi hornskagi, eða
fjallshyrna, er slétt ofan og ærið bratt þangað upp. Er þar enginn
klettdrangi að sjá sem annars staðar.
15. Goðaborg heitir líka hamrastallur hátt uppi í hinu fagra fjalli,
Búlandstindi í Hálsþinghá, skammt frá Djúpavogi. Stallur þessi er
norðaustan í fjallinu, fyrir ofan það mitt, og er sagður breiður og
sléttur ofan. Bratt og harðsótt er upp þangað. Sumir segja vatn þar
uppi nálægt, er þvegin hafi verið í innyfli þeirra dýra, sem þar var
fórnað goðunum til árs og friðar. Vestan af Ströndinni, yfir fjörðinn,
er stallur þessi tilsýndar sem framrétt altari úr fjallinu.
16. Goðatindur heitir hár fjalltindur norður og upp frá Hofi í Álfta-
firði (syðra). Þaðan segja munnmælin, að heiðnu dísirnar kæmu, er
vágu Þiðranda Síðu-Hallsson. Sést þar grjóthleðsla uppi á tindinum,
forn mjög. Þiðrandalág heitir í Hofstúni vestanverðu, þar sem leiði
Þiðranda hefir til skamms tíma sést. Nú hefir lágin fyllst af hálfu af
hlaupi. - Þangbrandsbryggja, Þangbrandshróf og Þangbrandskirkja
þekkjast enn í Álftafirði. - Goðaborg er og sagt að heiti á fjallinu upp
af Eystra-Firði þar, norðaustur frá Almannaskarði.