Jökull - 01.12.1970, Side 17
Hugleiðing um jöklarannsóknir á íslandi
HELGI BJÖRNSSON,
NORWEGIAN WATER RESOURCES AND ELECTRiCITY BOARD, OSLO, NORWAY
ABSTRACT
This paper gives a short outline of some
aspects of glaciology with the main emphasis
on topics relaíed to meteorology and hydrology.
A descriptive summary of the basic theory and
modern measurement techniques is given along
with suggestions for new research projects in
Iceland.
Following topics are discussed: The main
links in the relation between glacier varia-tions
and climate, the mass balance, the energy
budget, glacier response, kinematic waves, dif-
fusion of kinematic wo.ves, response time and
lag time of a glacier.
The value of measurements of glacier varia-
tions in Iceland is discussed in light of these
topics. Further, a description is given of glacier
flow a.nd glacier surges. Crystallographic pro-
blems are briefly mentioned. The paper con-
cludes with a proposal for investigations on
T ungnaárjökull.
Alla tíð frá því jöklarannsóknir hófust á ís-
landi, hefur verið nokkur óvissa um framtíð
þeirra, skipulag og val verkefna. Þær hafa eink-
urn verið skipulagðar og unnar í tómstundum
af félagi áhugamanna, og mun slíkt einsdæmi
um víða veröld. Þessu félagi hefur þó orðið
mikið ágengt, og það verður eflaust burðarás
jöklarannsókna í framtíðinni. Starf þess við
mælingar á jökulsporðum hefur veitt vitneskju
um jöklabreytingar á síðustu áratugum. Jarð-
sveiflumælingar hafa sýnt grófa mynd af botni
Vatnajökuls. Mælingar á vatnsborði Grímsvatna
hafa reynzt gagnlegar við spár um Grímsvatna-
hlaup. Tímaritið Jökull nýtur sívaxandi álits
sem alþjóðlegt fræðirit.
Fjölmörg verkefni bíða úrlausnar. Enn er
ólesið margt af þeirri veðurfarssögu, sem jökl-
arnir hafa skráð í landið. Sú saga liggur einnig
grafin í gömlum ísalögum. Margt er óvíst um
hlut jökla í vatnsforða hinna einstöku vatns-
falla. Slík óvissa gæti leitt til þess, að virkjanir,
sem nota jökulvatn, yrðu óöruggar. Margt er
enn óljóst um hreyfingar jökla, en mikilvægt
er að kunna skil á þeim, ef reist eru mannvirki
í grennd jöklanna. Þannig mætti lengur telja
verksvið jöklafræðinnar á Islandi. Mikilvægara
er þó, þegar litið er frarn á við, að jöklamenn
geri sér heildarmynd af viðfangsefnunum, rnarki
sér stefnu og veki athygli ráðamanna á henni.
Víða erlendis hafa jöklarannsóknir eflzt mjög
á alþjóðlega jarðeðlisfræðiáratugnum og vatna-
fræðiáratugnum, sem nú er liðlega hálfnaður.
Víst er, að þess mun vænzt, að Islendingar taki
þátt í alþjóðlegu samstarfi um jöklarannsóknir.
I fyrsta lagi sinni þeir mælingum á jöklabreyt-
ingum vegna legu landsins á miðju Atlantshafi.
I öðru lagi munu erlendir jöklafræðingar æ
meir sækjast eftir að mega stunda mælingar á
jöklurn okkar. Þarf þá að takast sem mest sam-
vinna við islenzka jöklamenn. Einnig virðist
eðlilegt, að við sinnum eftir föngum rannsókn-
um á sérkennum íslenzkra jökla, t. d. jökul-
hlaupum, framhlaupum og athugunum á tvívetni
og þrívetni í jökulís. Á þeim sviðum er ástæða
til að ætla, að jöklamenn okkar geti verið í
fremstu röð. Þá má ekki gleyma ýmsum hag-
nýtum verkefnum, sem tengd eru vatnafræði.
Hér á eftir verða rædd nokkur undirstöðu-
atriði í jöklafræði, sem kynna þarf, áður en
verkefni eru valin og stefna mörkuð í þessum
rannsóknum. Vegna eðlis íslenzkra jökla verð-
um við á ýmsan hátt að fara aðrar leiðir en
farnar eru erlendis. Skilningur og vilji ráða-
manna mun sjálfsagt einnig ráða miklu um val
leiða.
JÖKLAR SEM VEÐURFARSMÆLAR
Menn hafa lengi haft von um, að með at-
hugun á háttum jökla um allan heim mætti fá
sambærilegar mælingar til þess að fylgjast með
almennum veðurfarssveiflum. Ennfremur, að
JÖKULL 20. ÁR 1 5