Jökull - 01.12.1991, Síða 90
Jöklabreytingar
1930-1960, 1960-1990 og 1989-1990
ODDUR SIGURÐSSON
Orkustofnun
Grensásvegi 9, 108 Reykjavík
YFIRLIT
Haustið 1990 var hugað að 46 jökulsporðum. Á 5
stöðum reyndist ekki unnt að mæla vegna snjóskafla,
jökullóna eða annars vatnagangs. Á 10 stöðum hafði
jökull gengið fram, staðið í stað á 5 stöðum, en hopað
á 26.
Þrátt fyrir snjóasaman vetur víða voraði snemma
og snjó tók upp á flestum mælingastöðunum. Snœfell-
sjökull heldur ótrauður áfram að vaxa meðan Dranga-
jökull hopar að vanda. Þar hafa menn þó orðið varir
við sprungur og bólgu í jöklinum, sem gætu bent til,
að hann kunni að hlaupa fram áður en langt um líður.
Gígjökull og Sólheimajökull skríða enn fram þótt
sá síðarnefndi fari sér mun hægar en áður og hafi
raunar hopað seinni hluta sumars. Það er í fyrsta
skipti í rúm 20 ár, sem hann víkur frá fremstu víglínu
(sjá 1. mynd). Þessir tveir jöklar eru í flokki með
Hyrningsjökli hvað varðar jafna framrás undanfarna
tvo áratugi.
Utskæklar Vatnajökuls hopa nú nánast allir, þeir
sem mældir voru að undanskildum Brókarjökli, sem
hefur gengið mikið fram að undanförnu. Ef líta má á
hann sem yfirfall á austanverðum Breiðamerkurjökli,
mætti búast við að hann færi að hækka framan til líka
og skríða fram. Gæti Stemma þá allt eins farið að
renna í sínum gamla farvegi aftur.
Nú hopa jöklar í Örœfum. Kvíárjökull sker sig þó
úr með því að lengjast um 25 m. Það helgast að
nokkru af því, að í fyrra hopaði hann mikið, en það
var óviss mæling.
Breiðamerkurjökull hætti nú í sumar að skilja að
Jökulsárlón og Stemmulón. Stemma braut sér leið
undir jökulsporðinn og rennur nú með Jökulsá til
sjávar. Tryggum lesendum þessa þáttar í Jökli kemur
ekki á óvart, að Stemma skyldi skipta um farveg.
Steinn Þórhallsson á Breiðabólsstað í Suðursveit
hefur borið okkur með einföldum og glöggum
fréttum af vettvangi, að svona hlyti að fara fyrr en
seinna. Nú verður spennandi að sjá, hvort jökullinn
gengur fram aftur bráðlega og skilar Stemmu á sinn
stað. Fylgjumst með árlegum skilaboðum frá Steini,
sem sér fyrir breytingamar.
Skálafellsjökull og Heinabergsjökull voru nú
mældir eftir 23 ára hlé. Olíkt höfðust þeir að á þessu
tímabili. Skálafellsjökull hefur rokkað fram og aftur
og lítið látið á sjá. I sögu hans vantar mikið á þessum
árum, sem vandi verður að fylla út. Heinabergsjökull
hefur hins vegar sennilega hopað jafnt og þétt allan
tímann svo að nú nemur tæpum 700 m. Ástæðan fyrir
þessum mismun er fyrst og fremst sú, að sá
fyrrnefndi rennur fram gmnnan, jafnt hallandi dal, en
sá síðamefndi tekur út fall sitt innarlega í djúpum dal.
ATHUGASEMDIR OG VIÐAUKAR
SNÆFELLSJÖKULL
Hallsteinn Haraldsson segir Hyrningsjökul hafa
þykknað mikið og skriðið talsvert til beggja hliða. Á
Jökulhálsi tók nú loks upp snjóskafl, sem kom
veturinn 1982-1983 og fyrri merki komu í ljós.
Vandi er að segja til um hvemig skuli mæla jökulinn
88 JÖKULL,No. 41, 1991