Jökull


Jökull - 01.12.1991, Page 94

Jökull - 01.12.1991, Page 94
Staður þessi er þó ekki allskostar heppilegur, einkum vegna þess að kvíslin setur honum þrengri skorður en æskilegt væri. Steinn Þórhallsson segir í athugasemd um jökulinn milli Jökulsár og Stemmu: „Nú er Stemma horfin og rennur í Jökulsárlón. Á mælistaðnum er nú komið vatn meðfram jökli um 60 m breitt. Þarna er mikil breyting frá því í fyrra ... Ennþá er við lónið landfast dálítið haft sem Stemma fer undir, en það brotnar eflaust niður. Jökullinn handan vatnsins er þver- hníptur á að giska 10 m hár.'1 Við Fellsfjall hefur jaðar jökulsins þynnst mikið frá í fyrra að sögn Steins. Fláajökull - Jökullinn er greinilega að skríða fram þótt tölumar sýni hop. Hojfellsjökull - Vesturjökullinn, sem vissulega heitir Svínafellsjökull, hefur hopað meira eða minna sam- fellt í hálfa öld svo kílómetrum skiptir meðan sporður þess eystra hefur lítið hörfað. Eins og er, er lítil hreyfing á sporði Svínafellsjökuls. TÍMAMÓT Með mælingunni nú 1990 er lokið öðru 30 ára tímabili í sögu sporðamælinga sem Jón Eyþórsson veðurfræðingur hóf 1930. Þá er eðlilegt að staldra við og huga að því, sem gert hefur verið og ekki síður hvert skal stefnt. Litið um ö.xl - Ekki verður Jóni Eyþórssyni nógsam- lega þakkað að hann stofnaði til mælinga á jökul- sporðum af slíkum myndarbrag. Hann sýndi þar mikinn dugnað og áhuga sem honum virðist hafa tekist að koma yfir á þorra landsmanna enda átti hann auðvelt með að ná til fólks. Á nokkrum sumrum ferðaðist hann um landið og kom upp merkjum til mælinga og fékk heimamenn til að sjá um mæling- arnar frá ári til árs eftir það. Þetta kerfi er enn við lýði, nú á vegum Jöklarannsóknafélagsins og verður e.t.v. ekki betur fyrir komið eins og síðar er vikið að. Horft fram á veg - Oft hefur því verið varpað fram, að hefðbundnar jökulsporðamælingar á borð við þær, sem hér eru til umfjöllunar, séu orðnar úreltar og betri og nákvæmari aðferðir vænni til árangurs. Eitthvað er til í þessu. Við höfum í flestum tilvikum mælt jökul- jaðarinn út frá merkjum á einni línu eða á fáeinum stöðum, þar sem um stóran jökulsporð er að ræða. Þetta gefur ekki annað en breytingar jökulsins í stórum dráttum. En þannig fáum við líka alla megin þætti í sögu jökulsins skráða, vissulega ekki upp á eins metra nákvæmni, en þess gerist engin þörf. Með loftljósmyndum er hægt að kortleggja jökuljaðarinn allnákvæmlega, en slíkt er æði dýrt fyrirtæki. Land- mælingar Islands hafa það að markmiði að taka loftmyndir af óbyggðum á 10 ára fresti. Þetta er alls ekki fullnægjandi því miklar breytingar geta orðið á jöklum á þeim tíma. Ef til vill mætti fylla upp í skörðin með gervitunglamyndum, en þær eru því miður líka rándýrar. Enn mætti hugsa sér að gera út mann á flugvél til að taka myndir af jökuljöðrum. Slíkt myndi að sjálfsögðu kosta og úrvinnsla yrði nokkuð vandasöm. Með núverandi fyrirkomulagi fást ýmsar viðbótar upplýsingar. Maður sem er kunnugur staðháttum kemur árlega að jöklinum og verður margs áskynja, sem ekki liggur í augum uppi fyrir ókunnuga. Með því að skapa sér viðmið á staðnum, bæði við jökul- jaðarinn og ekki síður bunguna á jöklinum þar fyrir ofan, má oft sjá fyrir hver næstu viðbrögð jökulsins verða. Breytingar á jöklum 1960-1990 - Jón heitinn Eyþórsson tók sjálfur saman árangur verka sinna í grein í Jökli 1963. Það var ekki mikið annað en tafla yfir breytingamar frá ári til árs og öðrum látið eftir að draga sínar ályktanir. Allir jöklar landsins, sem mældir voru þessi 30 ár, höfðu hopað án undan- tekningar og segir það e.t.v. betur en nokkuð annað, hve gífurlega veðri brá til hins hlýrra á öðrum þriðjungi aldarinnar. Nú bregður svo við, að 12 jöklar standa framar en þeir gerðu í kring um 1960. Þeir eru Hyrningsjökull í Snæfellsjökli, Hagafellsjöklar eystri og vestari í Langjökli, Múlajökull í Hofsjökli, Gíg- jökull í Eyjafjallajökli, Sólheimajökull í Mýrdals- jökli, Skeiðarárjökull austanverður, Brókarjökull og Brúarjökull í Vatnajökli og Svínafellsjökull, Fall- jökull og Kvíárjökull í Öræfajökli. Nokkrir jöklar hafa hopað meira en einn kílómetra. Þeir eru Tungnaárjökull, Síðujökull og Breiðamerkur- 92 JÖKULL, No. 41, 1991
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.