Jökull - 01.12.1991, Qupperneq 109
okkur við jöklaferðir, m.a. flutning á nýja skálanum á
Grímsfjall. Hinn 23. nóvember vígði Flugbjörgunarsveitin
nýtt aðsetur í Reykjavík og við færðum þeim innrammaða
veggskreytingu er Gunnar Hjaltason gullsmiður gerði.
Sigríður Gunnarsdóttir færði félaginu innrammað kort
af Skeiðarárjökli, sem afi hennar, Samúel Eggertsson,
skrautritari, hafði útbúið.
SKÁLAMÁL
í vorferð voru gerðar ýmsai' endurbætur á skálum félagsins á
Grímsfjalli. Allar kojur voru fjarlægðar úr gamla skálanum,
settar upp nýjar neðri kojur og gengið frá rafstöð og hitalögn
undir þeim. Auk þess var sett upp loftræstirenna við súðina
meðfram kojunum. Borið var á skálann að utan. Hitaveiturör
var einangrað frá holunni að skálanum. Um helgina 20.-22.
júlí hélt hópur félaga áfram starfi á Grímsfjalli. Þeir settu upp
efri koju langs eftir gamla skálanum, borð og bekki í
norðaustur horn hans, nýja opnanlega gaflglugga og nýja
hlera fyrir þá. Kabissan var fjarlægð. Auk þess var borið
aftur utan á báða skálana og skipt um rúðu í eldhús-
glugganum í nýja skálanum. Miklar breytingar hafa nú orðið
á Grímsfjalli á nokkrum árum, en með auknum ferðum
þangað er orðið brýnt að bæta þar umgengni.
Af öðrum verkum skálanefndar má nefna að borið var á
skálann í Kverkfjöllum og á Kirkjubóli og öllu efni var
komið til þess í Goðaborg, en ekki náðist að vinna þar
vegna illviðra. I haustferð félagsins í Jökulheima var tekið
til í bílageymslu í Jökulheimum.
Að lokum skal á það bent að tekjur eru nú nokkrar af
læstu skálunum og ekki veitir af vegna viðhalds, sem
skálanefnd hefur samið áætlun um að vinna markvisst að.
Skálanefnd gerði á árinu ítarlega áætlun um viðhald skála
og framkvæmdir. Þar kemur fram að Kirkjuból er í góðu
ástandi, borið var á skálann að utan, en stefnt er að því að
lakka hann að innan. Einnig var borið á Kverkfjalla-
skálann, sem er í góðu lagi, en talið nauðsynlegt að húða
þar gólfið. Áburðarefni var komið í skálann í
Goðahnúkum í vorferðinni, en þar sem ekki reyndist unnt
að bera á hann vegna snjóa var gerð sérstök ferð til þess
um mitt sumar. Þá var einnig sett plexígler í gluggahlera
til þess að hleypa birtu inn á veturna þegar snjór og ísing
liggur á skálanum. Esjufjallaskálinn er í góðu horfi, borið
var á hann að utan, en þörf fer að verða á að lakka gólf og
veggi. Á Grímsfjalli var fúavörn borin á skálana í vorferð
og í ágúst var sett plexígler í gluggahlera. Öll hús í
Jökulheimum voru máluð.
NÁTTÚRUVERNDARÞING
Jón Isdal sat 7. Náttúruverndarþingið, 26.-28. október sem
áheyrnarfulltrúi. Þar var m.a. rætt um skipulagsskyldu við
byggingar á hálendinu. Hér skal þess getið að allir skálar
félagsins nema nýji skálinn á Grímsfjalli vom reistir áður en
reglur um skipulagsskyldu tóku gildi 1979. Áður en sá skáli
var reistur hafði félagið samráð við Náttúruvemdarráð.
HÚ SNÆÐISMÁL
Húsnæðismál félagsins í Reykjavík eru enn óviðunandi.
Leiguherbergi að Bakkagerði 9 er allof lítið og engin leið
að koma skipulagi á rit og skjöl félagsins þar vegna
þrengsla. Rætt hefur verið í stjórninni um að stefna að því
að eignast fokhelt húsnæði, sem félagar gætu gengið frá, en
engar ákvarðanir teknar.
BÍLAMÁL OG FARARTÆKI
Snjóbíll félagsins, Bombardier af árgerð 1972, var s.l.
haust fluttur til Reykjavíkur og unnið hefur verið að
viðgerðum á honum á verkstæði Gunnars Guðmundssonar.
f bílanefnd hafa hugmyndir verið ræddar um breytingar á
bílnum, en nú er unnið að því að setja í hann sjálfskiptingu
og millikassa og breikka beltin.
ÁRSHÁTÍÐ
Árshátíð var haldin laugardag 3. nóvember í Átthagasal
Hótels Sögu og var óvenjumikið í hana lagt í tilefni af
fertugsafmæli félagsins. Þar mættu 108 manns og á
formaður skemmtinefndar, Halldór Ólafsson eldri, þakkir
skyldar fyrir að hóa mörgum gömlu félögunum saman það
kvöld. Veislustjóri var Jón E. ísdal, en formaður flutti
ávarp og undir borðhaldi lék tríó Önnu Guðnýjar
Guðmundsdóttur, Sigurðar Snorrasonar og Páls Einarssonar.
Stjómin þakkar skemmtinefnd mjög vel unnin störf.
GJÖRFI OG KJÖRFI
Skíðagöngufélagar í GJÖRFI fóru sínar venjulegu
heilsubótargönguferðir annan hvern laugardag frá Nesti í
Ártúnsbrekku.
Kvenfélag Grímsvatnahrepps hélt uppteknum hætti og
stjórnin þakkar þeim allan stuðning á liðnu ári.
BREYTINGAR í STJÓRN FÉLAGSINS
Einar Gunnlaugsson, sem hefur setið í aðalstjórn frá árinu
1983, óskar nú eftir að víkja úr henni. Á honum hefur hvfit
mjög annasamt starf við ritun fundargerða, umsjón með
fréttabréfi, auk spjaldskrár og félagatals og dreifingu
gíróseðla við innheimtu félagsgjalda. Það var að tillögu
Einars og frumkvæði að félagið hóf útgáfu fréttabréfsins í
ársbyrjun 1984 og hann hefur annast það frá upphafi. Ég vil
fyrir hönd félagsmanna þakka Einari fyrir mikil störf í þágu
JÖKULL, No. 41, 1991 107