Jökull


Jökull - 01.12.1991, Page 111

Jökull - 01.12.1991, Page 111
sinni 7. desember. Þar var rætt um stöðu jarðfræðinnar í íslensku þjóðfélagi og kennslu í jarðfræði, bæði í framhaldsskólum og í Háskólanum. Miðvikudaginn 13. febrúar var haldinn fyrsti fræðslu- fundur félagsins á árinu 1991. Karl Grönvold, jarðfræðingur á Norrænu eldfjallastöðinni og Ragnar Stefánsson, jarð- eðlisfræðingur hjá Veðurstofu fslands fluttu erindi um gos- sögu Heklu, efnasamsetningu kvikunnar og spennubreyt- ingar sem verða í jarðskorpunni í sambandi við Heklugos. Félagið gekkst fyrir ráðstefnu um jarðfræði og umhverfis- mál að Hótel Loftleiðum 12. apríl. Alls voru flutt 17 erindi á ráðstefnunni og var að venju gefið út ráðstefnurit með ágripum erindanna. Rúmlega 100 manns sóttu ráðstefnuna. Gestur Gíslason, jarðfræðingur hjá Hitaveitu Reykja- víkur flutti erindi 30. apríl um jarðhita og jarðhitarannsóknir í Kenýa, en hann starfaði þar í sjö ár, 1983-1990, á vegum Sameinuðu þjóðanna sem yfirmaður þeirra við jarðhitaleit sem ríkisstjórn Kenya og Sameinuðu þjóðirnar stóðu að. Síðasta fræðsluerindi vetrarins var flutt á aðalfundi 14. maí. Fyrirlesarar voru Haukur Jóhannesson, jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, prófessor Stefán Amórsson og prófessor Sveinbjörn Björnsson hjá Háskóla Islands. Erindið fjallaði um vinnslueiginleika lághitasvæða Hitaveitu Reykjavíkur. Flytjendur hafa unnið að samantekt á vinnslu- eiginleikum lághitasvæðanna fyrir Hitaveitu Reykjavíkur, en samantektin byggir á umfangsmiklum gögnum og skýrslum sem starfsmenn Hitaveitunnar, Orkustofnun og Vatnaskil hf. hafa unnið að langmestu leyti. ENDURMENNTUN ARN ÁMS KEIÐ Endurmenntunarnefnd Háskóla Islands stóð fyrir námskeiði með aðstoð Jarðfræðafélagsins 6. til 9. nóvember, en þar var fjallað um nytjavatn, ferskvatn og jarðhita. Freysteinn Sigurðsson, Olafur Pétursson, Sigurður R. Gíslason og Sveinbjörn Björnsson önnuðust undirbúning. HEIMSÓKN FRÁ ARMENÍU í júlí, 1991, komu 6 Armenar í heimsókn til Islands og dvöldu hér í 9 daga í boði Jarðfræðafélagsins. Aður höfðu nokkrir íslenskir jarðfræðingar farið í heimsókn til Armeníu í boði Jarðfræðifélags Armeníu. Ymsir íslenskir aðilar, aðstoðuðu við fjármögnun heimsóknarinnar, en íslensku Armeníufararnir skipulögðu hana og önnuðust framkvæmd. Farið var í kynnisheimsóknir til ýmissa stofnana og fyrirtækja, dvalið nokkra daga í sumarhúsi í Brekkuskógi og farið í ferðir um Suðurland. FERÐ Á ELDSTÖÐVARNAR VIÐ HEKLU 16. TIL 18. ÁGÚST Jarðfræðafélag Islands og Hið íslenska náttúrufræðifélag stóðu sameiginlega að ferð á eldstöðvarnar í Heklu helgina 16. til 18. ágúst, 1991. Gist var í tjöldum í Galtalækjarskógi. Haukur Jóhannesson, Guðrún Larsen og Guðrún Sverrisdóttir önnuðust leiðsögn. Um 20 manns tóku þátt í ferðinni. NEFNDIR Nokkrar nefndir starfa á vegum félagsins: ORÐANEFND Orðanefnd starfar á vegum félagsins. Hún hélt 8 fundi á síðasta starfsári. Kristján Ámason, málfræðingur, er ráðu- nautur orðanefndar. Nefndin hefur tekið fyrir tvo efnisflokka, eldfjöll og jarðlagafræði. Hafa 80 hugtök verið íslenskuð. Stefnt er að því að kynna starfsemi orðanefndar í fréttabréfi Jarðfræðafélagsins. RITNEFND Jarðfræðafélagið á aðild að útgáfu Jökuls með Jökla- rannsóknafélagi Islands og starfa við það tveir ritstjórar auk ritnefndar. Ritstjóri Jökuls tilnefndur af Jarðfræðafélaginu er Leó Kristjánsson. N ÁTTÚRU VERND ARÞING Náttúruverndarþing var haldið dagana 26. til 28. október, en samkvæmt 4. gr. laga um náttúruvernd nr. 47/1971 og 2. gr. reglugerðar nr. 456/1987 um Náttúruverndarþing á Jarð- fræðafélag Islands rétt á því að tilnefna fulltrúa til setu á þinginu. Stefán Arnórsson, formaður félagsins sat þingið sem fulltrúi Jarðfræðafélags Islands. STJÓRN FÉLAGSINS S.l. starfsár var stjórnin þannig skipuð: Stefán Arnórsson, formaður, Auður Andrésdóttir, ritari, Ásgrímur Guð- mundsson, gjaldkeri, Áslaug Geirsdóttir, meðstjórnandi og Steinunn Jakobsdóttir, meðstjórnandi. Á síðasta aðalfundi gengu úr stjórn Elsa G. Vilmundardóttir, formaður, Guðrún Helgadóttir, ritari og Þorgeir Helgason, varaformaður, en í þeirra stað vom kosin Stefán Arnórsson, formaður, Auður Andrésdóttir, ritari og Steinunn Jakobsdóttir, meðstjómandi. FJÁRHAGUR Fjárhagsafkoma félagsins byggist á árgjöldum félagsmanna. Árgjaldið var kr. 700. Aðalútgjöld félagsins eru fjölritunar- og póstkostnaður, en reynt er að láta fundi og ráðstefnur standa undir kostnaði. NÝIR FÉLAGAR Á síðasta aðalfundi bættust tveir nýir félagar í hópinn. Nú eru 183 á félagaskrá í Jarðfræðafélagi íslands. Stefán Arnórsson JÖKULL,No. 41, 1991 109
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.