Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2014, Blaðsíða 4
4 Fréttir Vikublað 18.–20. nóvember 2014
17 ára á 196 km/h
á Reykjanesbraut
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu stöðvaði för sautján ára gam-
als ökumanns á Reykjanesbraut
á ellefta tímanum á sunnudags-
kvöld en sá hafði ekið bifreið
sinni á 196 kílómetra hraða á
klukkustund þar sem leyfður há-
markshraði er áttatíu kílómetrar
á klukkustund.
Pilturinn var sviptur öku-
réttindum til bráðabirgða og var
föður hans tilkynnt um mál-
ið. Hann kom og sótti son sinn.
Pilturinn á von á 150 þúsund
króna sekt vegna brotsins ásamt
ótímabundnu aksturbanni. Öku-
skírteinið fær hann ekki aftur fyrr
en hann hefur sótt sérstakt nám-
skeið og tekið ökupróf að nýju.
Svona er verkfalli
lækna háttað
Önnur hrina læknaverkfalla hófst
á miðnætti á mánudag. Verkfallið
hefur víðtæk áhrif, en það stend-
ur frá mánudegi til þriðjudags-
kvölds og svo aftur frá miðviku-
degi og til fimmtudags. Læknar á
heilsugæslustöðvum fóru með-
al annars í verkfall og því tals-
vert skert þjónusta sem var veitt
á heilsugæslustöðvum víða um
landið.
Verkfallið nær meðal annars til
kvenna- og barnasviðs Landspít-
alans.
Frá miðnætti aðfaranótt mánu-
dagsins 17. nóvember til mið-
nættis þriðjudaginn 18. nóvember
2014 (2 sólarhringar) á eftirtöldum
heilbrigðisstofnunum/sjúkrahús-
um eða sviðum sjúkrahúss: a.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
b. Heilbrigðisstofnun Vesturlands
c. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða d.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
e. Heilbrigðisstofnun Austurlands
f. Heilbrigðisstofnun Suðurlands
g. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
h. Rannsóknarsvið Landspítala i.
Kvenna- og barnasvið Landspítala
Frá miðnætti aðfaranótt mið-
vikudagsins 19. nóvember til mið-
nættis fimmtudaginn 20. nóvember
2014 (2 sólarhringar) á Sjúkrahús-
inu á Akureyri og Lyflækningasviði
Landspítala.
Smálánafyrirtækin í eigu
erlendra huldumanna
n Fyrirtækin með aðsetur í skattaskjólum n Brjóta lög ár eftir ár
Ö
ll íslensku smálánafyrirtæk-
in eru í eigu erlendra huldu-
manna sem ekki hefur náðst
í þrátt fyrir ítrekaðar tilraun-
ir. Þetta eru fyrirtækin Múla,
1909, Hraðpeningar, Smálán og
Kredia sem hafa undanfarin ár skilað
inn gríðarlegum hagnaði. En þrátt fyr-
ir ævintýralegan hagnað þá hafa þau
flest brotið lög um skil ársreikninga
ár eftir ár og þá vekur athygli að að-
eins tveir eigendur eru að öllum fimm
smálánafyrirtækjunum hér á landi.
Þau fyrirtæki sem hafa skilað inn
ársreikningi fyrir 2013 skila öll hagn-
aði. Það eru félögin Múla og 1909.
Múla græddi í fyrra 35,3 milljónir en
1909 græddi 74,8 milljónir. Bæði fyr-
irtækin eiga tugi milljóna í óráðstaf-
að fé. Hraðpeningar skiluðu síðast
inn ársreikningi fyrir þremur árum og
var þá hagnaður hjá fyrirtækinu upp á
34,8 milljónir.
Flókin tengsl milli eigenda
Ef litið er á eigendasögu þessara fyr-
irtækja koma í ljós tengsl við íslenska
athafnamenn sem standa í rekstri
fjölda fyrirtækja hér á landi. Þannig
virðast fyrirtækin Múla, 1909 og Hrað-
peningar tengjast tveimur bræðr-
um, þeim Skorra Rafni Rafnssyni
og Fjölvari Darra Rafnssyni á með-
an Smálán og Kredia virðast tengjast
Leifi Alexander Haraldssyni. Þeir eru
þó ekki skráðir eigendur þess í dag því
erlendir huldumenn hafa, samkvæmt
fyrirtækjaskráningu hér á landi, eign-
ast fyrirtækin. Það sem vakti tví-
mælalaust athygli blaðamanns var
sú staðreynd að bræðurnir Skorri
Rafn og Fjölvar Darri virðast tengjast
Leifi Alexander Haraldssyni, meðal
annars í gegnum viðskipti með fyrir-
tæki. Tengsl fyrirtækjanna og eigenda
þeirra eru gríðarlega flókin en við
skulum líta nánar á eignarhaldið.
Sami eigandi er að Múla, 1909 og
Hraðpeningum en það er fyrirtæk-
ið Jumdom Finance Ltd. og á aðsetur
á Kýpur. Landið hefur oft verið nefnt
skattaskjól vestrænna fyrirtækja þar
sem fyrirtækjaskattur í Kýpur er tölu-
vert lægri en hér á landi. Hagnaður
smálánafyrirtækjanna þriggja stopp-
ar því ekkert við á Íslandi. Þrátt fyrir að
fyrirtækin séu í eigu erlendra aðila þá
sitja íslenskir aðilar í stjórn þeirra. Það
sem vekur athygli er að sami maður-
inn situr í stjórn þeirra allra en hann
heitir Óskar Þorgils Stefánsson. Hann
er í raun eini stjórnarmaður þessara
fyrirtækja fyrir utan Hraðpeninga en
þar situr hann í stjórn ásamt Fjölvari
Darra Rafnssyni, bróður Skorra Rafns,
sem var skráður eigandi fyrirtækisins
til ársins 2010.
Virða ekki lög og reglur
Hraðpeningar hafa ekki skilað inn
ársreikningi í tvö ár, eða frá árinu
2012. Heimildarmaður DV sem þekkir
til bræðranna segir þá enn eiga smá-
lánafyrirtæki og það eina sem hafi
breyst sé „fyrirtækjaskráningin hér á
landi“.
Bræðrunum Skorra Rafni og
Fjölvari Darra hefur gengið ótrúlega
vel í viðskiptalífinu en fyrirtæki þeirra,
Móberg, kemur að rekstri yfir tug fyr-
irtækja, allt frá Bland.is til fyrirtækis-
ins Netgíró. Tenging þeirra við hina
smálánablokkina er í gegnum fyrir-
tækið Heimkaup sem þeir áttu þar til
í október á þessu ári en þá seldu þeir
fyrirtækið. Kaupandinn var Leifur Al-
exander Haraldsson, sá sami og átti
smálánafyrirtækin Kredia og Smálán.
Þessi sami Leifur Alexander er eig-
andi innheimtufyrirtækisins Inkasso,
sem nú heitir Kaptura Eignarhald og
Rekstur ehf., en fyrirtækið hafði með-
al annars séð um innheimtu fyrir
smálánastarfsemi. Ekki náðist í Skorra
Rafn, Fjölvar Darra eða Leif Alexander
við vinnslu fréttarinnar.
En hverjum seldi Leifur Alexand-
er smálánafyrirtækin sín? Á meðan
1909, Múla og Hraðpeningar voru seld
kýpverska fyrirtækinu Jumdom Fin-
ance Ltd. þá voru smálánafyrirtæk-
in Kredia og Smálán seld til Slóvakíu.
Þannig er eini skráði eigandi þessara
fyrirtækja í dag huldumaðurinn
Mario Magela. Mario þessi er sagður
fjárfestir frá Slóvakíu sem, samkvæmt
upplýsingum Kjarnans, keypti félögin
af Leifi Alexander Haraldssyni í des-
ember árið 2013. Það er sami Leifur
Alexander og nýverið keypti Heim-
kaup af fyrrverandi skráða eiganda
hinnar smálánablokkarinnar. Kredia
hefur ekki skilað inn ársreikningi frá
árinu 2010 og Smálán hefur aldrei
skilað inn ársreikningi. Leifur Alex-
ander, líkt og bræðurnir Skorri Rafn
og Fjölvar Darri, stendur í viðamikl-
um fyrirtækjarekstri samkvæmt upp-
lýsingum DV.
Smálánafyrirtækin sektuð
Öll íslensku smálánafyrirtækin eiga
það þá sameiginlegt að vera skráð í
eigu erlendra huldumanna. Þá eiga
þau það líka sameiginlegt að hafa
verið öll sektuð í sumar af Neyt-
endastofu vegna brota á lögum um
neytendalán sem tóku gildi 1. nóv-
ember 2013. Stjórnvaldssektirnar
hljóðuðu upp á samtals hálfa millj-
ón króna vegna Kredia og Smálána
og 750 þúsund vegna Múla, Hraðpen-
inga og 1909. Smálánafyrirtækin, sem
ekki eru starfsleyfisskyld og lúta í raun
ekki neinu eftirliti, áfrýjuðu þessari
ákvörðun Neytendastofu til áfrýjun-
arnefndar neytendamála sem hefur
haft málið til skoðunar síðan í sum-
ar. Neytendastofa telur fyrirtækin hafa
brotið lög sem kveða á um að fyrirtæk-
in megi ekki innheimta hærri kostn-
að af lánum sínum en sem nemur 50
prósentum af „árlegri hlutfallstölu
kostnaðar“. Samkvæmt greinargerð
Neytendastofu, sem hún skilaði inn til
áfrýjunarnefndarinnar, er þessi kostn-
aður ýmist 2000 eða 3000 prósent.
Úrskurður áfrýjunarnefndarinn-
ar skiptir öllu fyrir áframhaldandi
rekstur þessara smálánafyrirtækja
þar sem aðaltekjulind þeirra er rakin
beint til þessa „aukakostnaðar“. Smá-
lánafyrirtæki hafa hingað til talið sig
í rétti þegar sveigt er framhjá þessum
lögum um neytendalán með því að
kalla þetta öðru nafni og taka þannig
gjald fyrir „flýtiþjónustu“ í stað þess
að kalla þetta kostnað. Samkvæmt
heimildum DV er von á úrskurði áfrýj-
unarnefndarinnar í þessari viku. n
Atli Már Gylfason
atli@dv.is
Skorri Rafn Stofnaði Hraðpeninga sem
hefur ekki skilað inn ársreikningi frá árinu
2011.
Fjölvar Darri Situr í stjórn Hraðpeninga
sem eitt sinn var í eigu bróður hans, Skorra
Rafns.
Leifur Alexander Haraldsson Fyrrum
eigandi Kredia og Smálána, sem hafa aldrei
skilað inn ársreikningi.
Eigendur íslensku
smálánafyrirtækjanna
Hver á hvað?
Jumdom Finance Ltd. Mario Megela