Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2014, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2014, Blaðsíða 32
32 Menning N ú er ljóst að Ari Matthíasson verður næsti leikhússtjóri Þjóðleikhúss Íslands. Frá þessu var greint síðastliðinn föstudag. Illugi Gunnars- son, menningar- og menntamálaráð- herra, skipaði Ara í embættið til fimm ára frá næstu áramótum, hann verð- ur þar með einn áhrifamesti einstak- lingurinn í íslensku leikhúslífi. Þjóð- leikhússtjóri er stjórnandi leikhússins og markar listræna stefnu þess í sam- ráði við þjóðleikhúsráð. Hann stýr- ir leikhúsinu og ber ábyrgð á rekstri þess, bæði listrænum og fjárhagsleg- um. DV ræddi við Ara og fékk nokkra álitsgjafa til að spá í spilin fyrir þjóð- leikhússtjóratíð hans. Af hverju Ari? Það má gera ráð fyrir að sambland af reynslu af rekstri og listrænni hlið leikhússins hafi gert það að verk- um að Ari varð fyrir valinu frekar en hinir tíu umsækjendurnir. Hvað tel- ur hann sjálfur að hafi ráðið úrslit- um um ráðninguna? „Ég geri ráð fyrir að það séu margir þættir. Ég geri ráð fyrir því að ráðherra hafi spurst fyrir í greininni og reynt að kanna hver væri afstaða manna til mín. Ég vona að það hafi verið jákvætt. Ég hef náttúr- lega – að minnsta kosti á pappírunum – reynslu og menntun sem gerir mig mjög hæfan til að gegna þessu starfi,“ segir Ari í samtali við DV. Ari Matthíasson er fæddur árið 1964. Hann útskrifaðist sem leikari frá Leiklistarskóla Íslands árið 1991 og starfaði sem leikari í fjölda ára. Tók hann þátt í um 40 uppfærslum í atvinnuleikhúsum, mest með Leik- félagi Reykjavíkur, þar sem hann var fastráðinn í 10 ár. Hann hefur leikið í kvikmyndum og sjónvarpi og unnið sem leikstjóri, auk þess að hafa staðið að framleiðslu leiksýninga. Ari er einnig með háskólamenntun á meistarastigi í rekstrarhagfræði (MBA) og hagfræði – hálfa gráðu í bókmenntafræði og skipstjórnar- réttindi. Utan leikhússins hefur Ari starfað sem framkvæmdastjóri með ábyrgð á rekstri og áætlanagerð, unnið að stefnumótun og markaðsráð- gjöf, komið að verkefnastjórnun ým- issa fyrirtækja og stofnana, auk þess að hafa reynslu af opinberri stjórn- sýslu. Hann hefur meðal annars ver- ið stjórnarmaður í SÁÁ og KR-Sport. Ari hefur einnig starfað sem stunda- kennari við Háskólann í Reykjavík. Hann hefur starfað við hlið Tinnu Gunnlaugsdóttur, fráfarandi þjóð- leikhússtjóra, sem framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins frá árinu 2010. „Mér skilst að starfsfólk og verktakar hjá leikhúsinu séu fegnir að Ari hafi ver- ið ráðinn, kannski vegna þess að þá fer minni orka í að leggja nýjar línur með splunkunýjum þjóðleikhússtjóra,“ segir Valur Grettisson, einn leikhús- gagnrýnenda DV, um ráðninguna. Hvert ætlar hann? „Ég held ekki að það sé runnið upp „árið eitt“ í íslensku leikhúsi og nú breytist allt,“ segir Ari um þá stefnu sem hann muni taka. „Ég er með ákveðnar hugmyndir um hvert ég vil fara með leikhúsið og þær áherslu- breytingar munu sjást, en það verður engin kúvending. Ég er mjög ánægð- ur með þær áherslur sem Tinna hef- ur lagt í sínu starfi: leggja áherslu á íslenska leikritun, jafna hlut karla og kvenna og leggja áherslu á barna- leikhús og -starf. Þessu vil ég halda áfram. Maður tekur það góða sem hinir hafa verið að gera og reynir að bæta við það.“ Í viðtali við Kvennablaðið á dögunum talar hann einnig um að vilja fastráða einn til tvo leikstjóra og leikmynda- og búningahöfund og auka samstarf við leikhús á Norður- löndum og í Norður-Evrópu. Þá hefur hann einnig nefnt að hann vilji færa Þjóðleikhúsið á einhvern hátt nær landsbyggðinni, og þannig sinna lög- bundnu hlutverki leikhússins. MBA-væðing menningarstofnana Það er því ljóst að það verður varla bylting í starfsemi leikhússins með nýja leikhússtjóranum. „Þarna er ráð- herrann að veðja á öruggan hest vegna þess að Ari hefur unnið inni í leikhús- inu sem framkvæmdastjóri og hef- ur reynslu af rekstri hússins. Hann hefur lært inn á rekstur hússins og er með MBA-prófgráðu frá Háskólanum í Reykjavík eins og Tinna. Það virðist vera stefnan hjá stjórnvöldum að ráða fólk í vinnu með þessa menntun,“ seg- ir Hlín Agnarsdóttir, leikhúsgagnrýn- andi Djöflaeyjunnar. Auk Tinnu hafa Magnús Geir Þórðarson, nýráðinn út- varpsstjóri og fyrrverandi Borgarleik- hússtjóri, og Guðmundur Ingi Þor- valdsson, sem er framkvæmdastjóri Tjarnarbíós, lokið við sama nám. Nokkuð hefur verið rætt um þessa „MBA-væðingu“ í menningarstofnun- um landsins að undanförnu. Áhyggjur af því að sjónarmið markaðarins fái mögulega meira vægi innan Þjóðleikhússins en hin listrænu eru áhyggjur sem flestir viðmælendur DV virðast deila. Val- ur segir til dæmis: „Ari má gæta sín á að selja sig ekki alveg markaðsöfl- unum og veðja á einhvern þreyttan farsa sem á að ganga svo vel í almúg- ann, heldur frekar að einbeita sér að íslenskum verkum, eins og velgengni Engla alheimsins hefur sýnt og sann- að að sé mögulegt.“ „Reksturinn er greinilega svona ofsalega mikilvægur, fjárhagsstað- an erfið, og Ari ræður greinilega við það. Hins vegar veit maður ekkert hvaða stefnu hann ætlar að taka list- rænt, nema þá að hann segist ætla að viðhalda stefnu fyrirrennara síns,“ segir Hlín. Reiða sig æ meira á sjálfafla fé Magnús Þór Þorbergsson, lekt- or í leikhúsfræðum, sagði í viðtali í Morgunútgáfunni á Rás 2 á mánu- dag að niðurskurður af hálfu hins op- inbera gerði það að verkum að leik- húsið ætti erfiðara um vik að taka listrænar áhættur: „Eftir því sem er skorið meira niður er meiri krafa um að það afli sér peninga með miðasölu og þá auðvitað flyst hugsunin svolítið yfir á það: hvernig getum við feng- ið sem flesta í húsið? Það ræður auð- vitað verkefnavalinu. Það er kannski þannig sem að stóru leikhúsin hafa svarað þessari spurningu um samtal við þjóðina. Með því að segja, ja, við bjóðum upp á fjölbreytt verkefnaval sem að höfðar til allra. Það getur ver- ið, en fer ekkert endilega saman við það að eiga virkt samtal um þau mál- efni sem að brenna á henni.“ Þegar Ari er spurður hvort hann telji að hann sé ráðinn vegna list- rænna áherslna sinna eða komi inn sem einhvers konar markaðsmaður svarar hann: „Ég held að maður verði að vera markaðsmaður þegar maður rekur leikhús, sérstaklega þegar dreg- ið er úr opinberum stuðningi, þá reið- ir þú þig í sífellt meiri mæli á sjálfafla fé. Menntun er, held ég, almennt af hinu góða, ég er með mastersgráðu í hagfræði en líka með skipstjórnar- réttindi. Er það vont að ég hafi unnið á togara eða í frystihúsi? Ég held að öll reynsla geti verið góð og menntun geti verið góð.“ Meginstraumur og jaðar „Það kom kannski ekki beinlínis á óvart að Ari hafi fengið starfið, meðal annars vegna þess að hópurinn sem sótti um starf Þjóðleikhússtjórans var einkennilega slappur. Þar voru engin sérstök nöfn sem stóðu upp úr auk þess sem það kom á óvart hversu fáir sóttu um,“ segir Valur. Talið var að valið hafi helst staðið milli Ara og Ragnheiðar Skúladóttur, leikhússtjóra Leikfélags Akureyrar og fyrrverandi deildarforseta leiklist- ar- og dansdeildar Listaháskóla Ís- lands. „Þessir tveir kandídatar stóðu fyrir gjörólík sjónarmið,“ segir Hlín. „Ari er meiri meginstraumsmaður, hann virðist ætla að feta í sömu spor og Tinna, hann segir að hann muni viðhalda þeirri stefnu sem hún hef- ur markað, en Ragneiður er fulltrúi einhvers jaðars og nýrrar kynslóðar. Hún kemur þar að auki úr annarri átt að því leytinu til að hún er menntuð erlendis, hún hefur það kannski fram yfir bæði Ara og Tinnu.“ Hlín bendir á að þegar Ragnheið- ur hafi tekið við starfi deildarstjóra leiklistar- og dansdeildar LHÍ hafi hún breytt inntaki námsins og byggt upp nýja sviðlistadeild og þannig mikil áhrif á unga kynslóð sviðslista- fólks: „Ég get vel ímyndað mér að það fólk hafi orðið fyrir vonbrigðum.“ Með Þjóðleikhúsið til Vestmannaeyja Eitt af því atriðum sem Ari hefur nefnt að hann vilji bæta er að færa Þjóð- leikhúsið á einhvern hátt nær lands- byggðinni, hvað á hann við með því? „Já, mig langar til þess. Þjóðleikhúsið er leikhús allra landsmanna vegna fá- tæktar, eða erfiðs reksturs, þá höfum við ekki gert jafn mikið af því og ég hefði viljað að fara með leikhúsið út á land til fólksins úti á landsbyggðinni. Það er ein af þeim áherslum sem mig langar að leggja. Þetta snýst um for- gangsröðun, en mig langar að skoða þetta. Ef íbúum Vestmannaeyja finnst Þjóðleikhúsið langt í burtu þá finnst mér að Þjóðleikhúsið megi alveg koma til Vestmannaeyja. Við erum ekkert of stór til þess.“ Magnús Þór segir að hann hefði mikinn áhuga á að sjá hvernig hann myndi þróa slíkar hugmyndir. „Upp- runalega hugmyndin með Þjóðleik- húsi var sú að leikhúsið væri sama- staður þjóðarinnar, þar sem hún kæmi saman og bæri kennsl á sig á sviðinu og fyndi fyrir sér í salnum. Auðvitað hafa leikhúsin farið ýmsar leiðir í því til dæmis að fara í leikferð- ir eða eitthvað slíkt. En svo er auð- vitað spurning hvort það sé endilega rétta leiðin til að eiga samtal við þjóð- ina, að fara með sýningu sem er búin til í Rekjavík í ferð um landið, eða er kannski áhugaverðara að fara út á land og vinna þar, spyrja sig hverjar eru sögur fólks í Neskaupstað, á Bol- ungarvík, á Þórshöfn?“ Vikublað 18.–20. nóvember 2014 Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Dómur The Tribe Handrit og leikstjórn: Miroslav Slaboshpitsky Aðalhlutverk: Grigoriy Fesenko, Yana Novikova og Rosa Babiy Sýnd í Bíó Paradís Það er ekki oft sem maður sér úkraínska mynd í bíó, og þá sjaldnar tallausa. The Tribe er mynd án orða, en ekki er verið að leita í brunn þöglu myndanna eins og til dæmis The Artist gerði. Hér er verið að reyna eitthvað alveg nýtt. Myndin gerist á heimili heyrnar- lausra og er alfarið gerð á táknmáli. Í fyrstu kann að hljóma eins og erfitt sé að halda dampi í rúma tvo tíma, sérstaklega fyrir þá sem hafa ekki vald á úkraínsku táknmáli, en annað kemur á daginn. Eftir um það bil korter er maður búinn að gleyma því að myndin er tallaus, svo vel kemst myndmál- ið til skila. Ef til vill hafði Chaplin rétt fyrir sér, tal í myndum er mesti óþarfi. Ekki er farin sú leið að sýna íbúa á heimilinu eingöngu sem fórnarlömb, þó vissulega séu þeir fórnarlömb aðstæðna. Lífið hér er harðneskjulegt, eldri strákarnir ræna þá yngri og smíðakennararn- ir gera stúlkurnar út til vörubílstjóra. Í raun hefði myndin alveg geng- ið upp með tali, þetta er ekki mynd um heyrnarlausa í sjálfu sér heldur mynd um fólk sem vill svo til að er heyrnarlaust. Ekkert er dregið undan hvorki í ofbeldi né kyn- lífi, og sumar senurnar verða sérstaklega sterkar einmitt af því að það er í eina skipt- ið sem við heyrum mannleg hljóð, hvort sem er í stunum ununar eða sársauka. Og bak- herbergisfóstureyðing er með erfiðari senum undanfarinna ára. The Tribe er ein af þessum mynd- um sem fær mann til að velta fyrir sér frásagnarlist kvikmyndanna. Svo margt er enn ógert í formi sem stund- um virðist staðnað. En þetta haust hefur fært okkur Turist, Boyhood og nú The Tribe, og sýnir fram á að hér er listform sem enn er í fullri þróun. Það hefur sjaldan verið svona gaman að fara í bíó. n Harðneskjulegt heyrnarleysi n The Tribe er kvikmynd án orða n Fær mann til að velta fyrir sér frásagnarlist kvikmyndanna Mynd án orða The Tribe gerist á heimili heyrnarlausra og er alfarið gerð á táknmáli. Hvert stefNir ÞjóðleikHúsið? n Hver er Ari Matthíasson og hvert mun hann fara með Þjóðleikhús Íslands? Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is „Ég held að maður verði að vera markaðs- maður þegar maður rekur leikhús Arftakinn Tinna Gunnlaugsdóttir hefur stýrt Þjóðleikhúsi Íslands í áratug, en Ari Matthíasson, framkvæmdastjóri leikhússins, mun taka við af henni. Mynd PRessPHoTos

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.