Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2014, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2014, Blaðsíða 37
Fólk 37Vikublað 18.–20. nóvember 2014 Glöddust með Guðna n Gamlir félagar og andstæðingar mættu í útgáfuteitið G uðni Ágústsson, fyrrver- andi þingmaður Fram- sóknarflokksins og ráð- herra, sendi nýverið frá sér bókina Hallgerði. Um er að ræða örlagasögu Hallgerð- ar langbrókar í skugga fordæm- ingar, en í bókinni kemur Guðni henni til varnar. Veglegt útgáfuhóf var haldið í Eymundsson á Lauga- vegi í tilefni útgáfu bókarinnar og þangað mættu að sjálfsögðu allir gömlu félagarnir og and- stæðingarnir úr pólitíkinni til að heiðra Guðna. Sjálfur hélt hann skemmtilega ræðu, eins og hon- um einum er lagið, og var honum mikið fagnað. n Tveir flottir Höfundurinn sjálfur, Guðni Ágústsson, ásamt Kristjáni Pálssyni, fyrrverandi þingmanni. Eiginkonan og tvífarinn Jóhannes Kristjánsson eftirherma þykir ná Guðna svo vel að það liggur við að eiginkonan, Margrét Hauksdóttir, rugli þeim saman. Áritun Guðni áritaði að sjálfsögðu bækur fyrir gesti útgáfuhófsins. Tveir höfundar Jón Steinar Gunnlaugsson sendi nýverið frá sér bókina Í krafti sann- færingar sem vakið hefur mikla athygli. Bækur þeirra félaga eru þó það ólíkar að það er ósennilegt að þeir muni berjast um sömu plássin í jólapökkunum í ár. Góð kveðja Ellert B. Schram, fyrrverandi þingmaður, tók þéttingsfast í hönd Guðna og óskaði honum til hamingju með bókina. Gluggað í bókina Jón Steinar Gunnlaugsson gluggar hér í bókina ásamt Ólafi G. Einarssyni og Víglundi Þorsteinssyni. Virðast þeir skemmta sér vel við lesturinn. Fyrrverandi ritstjóri Styrmir Gunnars- son, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, lét sig ekki vanta í útgáfuhófið. Pólitískur andstæðingur Össur Skarphéðinsson, þing- maður Samfylkingarinn- ar, og Guðni hafa ekki alltaf verið sammála í pólítikinni, en þeir eru góðir félagar utan hennar. Glatt á hjalla Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, náði sér í ein- tak af bókinni og hélt fast um það á meðan hann tók í hönd Árna Johnsen. „Nú er hátindinum náð“ Gísli Einarsson sigraði borgarstjóra og matarstílista í eggjakökukeppni Þetta var mjög hörð keppni,“ segir fjölmiðlamaðurinn Gísli Einarsson sem bar sigur úr býtum í landnámshænu- eggjakökukeppni sem fór fram á matarmarkaði Búrsins í Hörpu um helgina. Hann hafði um það stór orð í samtali við DV fyrir keppnina hann ætlaði sér að töfra fram hina full- komnu eggjaköku. Það gekk eftir en Gísli viðurkennir að andstæðingarn- ir hafi ekki verið nein lömb að leika sér við, en það voru þau Dagur B. Eggertsson borgarstóri og Áslaug Snorradóttir matarstílisti sem öttu kappu við Gísla. Fetaosturinn gerði gæfumuninn „Hún Áslaug kom þarna sterk inn með allt aðrar áherslur, með nýstár- legan eggjakökuturn. Þannig mér leist ekki á blikuna í smástund. Svo var hún líka með súkkulaði í sinni köku. En ég vann þetta út á feta- ostinn frá Erpsstöðum og ítölsku pylsurnar, það gerði gæfumun- inn. Með því náði ég þessum suð- ur-evrópska tón sem ég er búinn að vera að leita eftir.“ Gísli hefur í tæp þrjátíu ár leitað að hinum eina sanna eggjakökutón, eða alveg frá því að hann smakkaði bestu eggja- köku í heimi á subbulegum veitinga- stað í fjallaþorpi á Rhodos. Hann tel- ur sig hafa náð að framkalla þennan tón í Hörpunni. Mátulega elduð Að sögn Gísla héldu dómararn- ir, Hrefna Rósa Sætran og Gunnar Karl Gíslason, varla vatni yfir eggja- kökunni hans. „Þau hældu mér sér- staklega hvað hún var elduð mátu- lega lengi, þá kom osturinn sterkur inn og svo var hún mátulega krydd- uð með svörtu kryddsalti. Ég náði akkúrat að hitta á þetta eftir þrjá- tíu ára undirbúning. Það skilaði sér. Nú er hátindinum náð,“ segir Gísli og hlær, þótt honum sé vissulega fúlasta alvara. Gísli vel að sigrinum kominn Dagur og Áslaug tóku ósigrinum nokkuð vel ef marka má orð þeirra á Facebook. Borgarstjórinn birti mynd af sér með andstæðingun- um þar sem þau brostu öll breitt eft- ir harða keppni. „Beið einn stærsta ósigur ferilsins í landnámseggja- kökukeppni á frábærum matar- markaði í Hörpu í morgun. Hneigi mig í djúpri virðingu fyrir Gísla Einarssyni, meistara dagsins,“ skrif- aði Dagur um ósigurinn. Áslaug skildi eftir athugasemd við færsluna: „Gísli rúllaði yfir okkur enda með ömmu með í farteskinu! Húrra fyrir Gísla! Gæti opnað Lettu-stað, eggja- kökusnillingurinn.“ n solrun@dv.is Keppendur Gísli ásamt andstæðingum sínum Áslaugu og Degi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.