Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2014, Side 10
Vikublað 18.–20. nóvember 201410 Fréttir
S
igríður Björk Guðjóns-
dóttir, fyrrverandi lög-
reglustjóri á Suðurnesj-
um, hringdi í Gísla Frey
Valdórsson, þáverandi að-
stoðarmann Hönnu Birnu Krist-
jánsdóttur innanríkisráðherra, og
átti við hann samtal að morgni
dags þann 20. nóvember 2013.
Sama morgun hringdi Gísli Freyr
einnig tvívegis í persónulegt síma-
númer hennar auk þess sem hon-
um barst tölvupóstur frá embætti
lögreglustjórans á Suðurnesjum
um málefni Tony Omos. DV leitaði
viðbragða þeirra Gísla og Sigríðar
við vinnslu þessarar fréttar án ár-
angurs.
Þennan dag birtust fréttir um
hælisleitendurna Tony og Evelyn
í helstu fjölmiðlum landsins. Þær
byggðu á minnisblaði innanríkis-
ráðuneytisins, en þar var sérstak-
lega vísað í rannsóknargögn frá
lögreglunni á Suðurnesjum. Gísli
Freyr var í síðustu viku dæmdur í
átta mánaða skilorðsbundið fang-
elsi eftir að hafa játað leka á minn-
isblaðinu til fjölmiðla. Í samtali við
Kastljós þann 11. nóvember hafn-
aði hann því að viðbótarsetningin
sem hann bætti við skjalið ætti
rætur að rekja til lögreglunnar á
Suðurnesjum.
Skipuð án auglýsingar
Hanna Birna Kristjánsdóttir inn-
anríkisráðherra skipaði Sigríði
Björk lögreglustjóra á höfuð-
borgarsvæðinu án auglýsingar
þann 24. júlí. Fyrirrennari hennar
í embætti, Stefán Eiríksson, hafði
þá sagt starfi sínu lausu í kjölfar
ítrekaðra afskipta ráðherra af lög-
reglurannsókn lekamálsins. Sama
dag og Gísli Freyr og Sigríður Björk
ræddust þrisvar í síma fékk Gísli
áframsendan tölvupóst frá emb-
ætti lögreglustjórans á Suðurnesj-
um sem hafði að geyma rann-
sóknargögn um Tony Omos.
Gísli Freyr og Hanna Birna hafa
haldið því fram í viðtölum að hún
hafi margoft innt Gísla eftir því
hvort hann hefði lekið gögnunum.
Í ljósi þess að Gísli Freyr játaði á
sig brotið þurftu vitnaleiðslur ekki
að fara fram. Þar hefði hann án efa
þurft að svara fyrir samtöl sín og
lögreglustjórans. Einnig má leið-
ar líkur að því að Hanna Birna og
Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðar-
kona hennar, hefðu þurft að svara
spurningum um hvað þær vissu og
hvað ekki.
Vísað í rannsóknargögn á
forsíðu
Fréttablaðið vísaði sérstaklega í
rannsóknargögn lögreglunnar á
Suðurnesjum í forsíðufrétt und-
ir fyrirsögninni „Grunaður um
aðild að mansali“ sem birtist um
málið þann 20. nóvember 2013.
Fram hefur komið að Gísli Freyr
átti fjögur símtöl við starfsmann
365-miðla kvöldið áður. Blaðið
fór í prentun klukkan 22:50 og í
dreifingu morguninn eftir.
Hann hefur nú viðurkennt að
hafa bætt eftirfarandi setningu
við minnisblaðið: „Ekki liggur
ljóst fyrir hver er barnsfaðir henn-
ar [innsk. blm. Evelyn Glory Jos-
eph], en rannsóknargögn gefa til
kynna að hún sé beitt þrýstingi um
að segja að TO [innsk. blm. Tony
Omos] sé faðirinn þó svo að hann
eigi nú í sambandi við íslenska
stúlku.“
Spurður um þessa viðbót í Kast-
ljósi í síðustu viku sagðist Gísli
ekki vilja tjá sig um það hvaðan
Þrjú símtöl á lekadegi
n Fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum og núverandi lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu hringdi í Gísla Frey
Jóhann Páll Jóhannsson
Jón Bjarki Magnússon
johannp@dv.is / jonbjarki@dv.is
DV sendi Sigríði Björk tölvupóst í gær,
mánudag, með eftirfarandi skilaboðum:
„Ég þarf að spyrja þig út í samskipti þín
við Gísla Frey og Hönnu Birnu um það leyti
sem minnisblaði um
hælisleitendur var
lekið í fjölmiðla.
Þetta er í
tengslum við
frétt sem ég
er að vinna.
Hvenær og í
hvaða síma
get ég náð
í þig?“ Svar
hennar var
á þessa
leið:
„Sæll.
Ég er
alveg
upp-
tekin
þessa dagana. Getur þú sent mér spurn-
ingarnar?“
Í kjölfarið, eða klukkan 14:09, sendi DV meðal
annars þessar spurningar á Sigríði Björk:
n 1. Vissir þú, þegar þú ræddir við Gísla
Frey í síma, þann 20. nóvember, að hann
væri sá aðili sem hefði lekið upplýsingum
um Evelyn Glory Joseph og Tony Omos til
fjölmiðla?
n 2. Hvers vegna hringdir þú í hann að
morgni dags þann 20. nóvember?
n 3. Veittir þú, eða þitt embætti á
Suðurnesjum, Gísla Frey eða Hönnu Birnu,
með einhverjum hætti upplýsingar úr
rannsókn embættisins á hendur Tony
Omos?
Engin svör höfðu borist þegar blaðið fór í
prentun í gærkvöldi. DV sendi einnig eftir-
farandi spurningar á netfang Gísla Freys:
n 1. Um hvað rædduð þið Sigríður Björk
Guðjónsdóttir, þáverandi lögreglustjóri á
Suðurnesjum, í síma þann 20. nóvember?
n 2. Hvers vegna léstu viðbótina um
Evelyn Glory Joseph
og Tony Omos ekki
fylgja í skjalinu sem
Morgunblaðið fékk í
hendur?
n 3. Sendir þú
einnig fréttamanni
RÚV minnisblaðið?
Engin svör höfðu
borist þegar
blaðið fór í
prentun í
gær-
kvöldi.
Svara engu um samskiptin
Sigríður Björk bað um að fá skriflegar spurningar en svaraði þeim ekki
Fra
Hyrjarhöfði 2 - 110, Reykjavík / s: 848 7007 og 776 8600 / www.glerpro.is / glerpro@gmail.com
Allar viðgerðir á framrúðum
eru
bíleiganda að kostnaðarlau
su.
Vinnum fyrir öll tryggingaf
élög.