Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2014, Side 16
Vikublað 18.–20. nóvember 201416 Fréttir Erlent
Þessi eru valdamest
n Listi Forbes yfir 72 valdamestu einstaklinga heims n Pútín valdameiri en Obama
Þ
að eru 7,2 milljarðar manns
í heiminum. Þessi 72 eru
valdamest,“ segir í umfjöllun
Forbes um þá sem fjölmið-
illinn hefur valið sem valda-
mesta fólk í heiminum 2014. Valið var
eftir fjórum þáttum; mannaforráð-
um, peningavöldum, ólík valdsvið-
um og valdbeitingu. Fyrst var horft til
þess hvort viðkomandi hefði völd yfir
mörgum einstaklingum, til dæmis
sem forseti, framkvæmdastjóri eða
einræðisherra.
Þá var horft til þess hversu mik-
il peningavöld viðkomandi hefur,
hvort sem þau eru persónuleg eða
tengjast starfi viðkomandi. Þá var
horft til valda einstaklingsins á mis-
munandi sviðum, það er fyrir utan
starfsvið sitt. Sem dæmi má nefna
að Bill Gates er auðjöfur, ráðgjafi
og fyrrverandi framkvæmdastjóri
Microsoft ein einnig mikill mann-
vinur sem sinnir gríðarlega miklu
góðgerðastarfi. Hann hefur því úr
miklum völdum að spila á hin-
um ýmsu sviðum. Fjórða athug-
unin tengdist einmitt því, hvernig
viðkomandi beitti völdum sínum.
Það er ekki nóg að vera valdamik-
ill, heldur þarf einnig að fara með
valdið og nýta það.
Eins og sést er það Vladimír
Pútín sem er valdamesti maður
heims árið 2014 að mati Forbes.
Skyldi engan undra sem hefur fylgst
með fréttum af erlendum vettvangi
í ár. Barack Obama Bandaríkjafor-
seti fylgir á hæla honum í öðru sæti
og í því þriðja er Xi Jinping, leiðtogi
kommúnistaflokksins í Kína og
valdamesti maður Kína. Það er svo
Frans páfi sem er í fjórða sæti list-
ans, enda er hann andlegur leið-
togi milljarðs einstaklinga.
Fáar konur
Á listanum er margt athyglisvert
varðandi aldursdreifingu, kyn og
ríkisfang þeirra sem eru á listan-
um. Til dæmis eru afar fáir Evrópu-
búar á listanum og aðeins einn
Norðurlandabúi. Aðeins níu kon-
ur er að finna á honum og eru
þær allar á sextugs- og sjötugs-
aldri. Valdamesta konan er Angela
Merkel, í fimmta sæti, og sú sem
fylgir henni fast á eftir er seðla-
bankastjóri Bandaríkjanna, Janet
Yellen. Einnig má nefna að á list-
anum er Bill Clinton, fyrrverandi
forseti Bandaríkjanna, en ekki eig-
inkona hans Hillary Clinton, sem
hefur verið talsvert meira áberandi
en eiginmaður hennar undanfar-
ið og verður líklegast þátttakandi í
næstu forsetakosningum í Banda-
ríkjunum.
Fáir ungir
Þá eru aðeins tveir á fertugsaldri á
listanum og enginn á þrítugsaldri.
Sá elsti á listanum er Abdullah bin
Abdul Aziz Al Saud, konungurinn í
Sádi-Arabíu. Hann er níræður og er í
ellefta sæti listans. Sá yngsti er Mark
Zuckerberg, sem er þrítugur. Hann
er í 22. sæti listans. Sá næstyngsti er
Kim Jong-un, einræðisherra Norð-
ur-Kóreu, en hann er 49. sæti. Þá eru
tveir í níunda sæti hans, þeir Sergey
Brin og Larry Page hjá Google og
tveir í 35. sæti, þeir Lee Kun-Hee og
Jay Y. Lee hjá Samsung. n
1 Vladimír Pútínforseti Rússlands
2 Barack Obama
forseti Bandaríkjanna
3 Xi Jinpingleiðtogi komm-
únistaflokksins í Kína
4 Frans páfi
5 Angela Merkelkanslari Þýskalands
6 Janet Yellenseðlabankastjóri
Bandaríkjanna
7 Bill Gatesráðgjafi og stofnandi Microsoft
8 Mario Draghiaðalbankastjóri Seðlabanka
Evrópu
9 Sergey Brinstofnandi Google
9 Larry Pageframkvæmdastjóri Google
10 David Cameronforsætisráðherra Bretlands
11 Abdullah bin Abdul Aziz Al Saud
konungurinn í Sádi-Arabíu
12 Warren Buffettframkvæmdastjóri
Berkshire Hathaway
13 Li Keqiangforsætisráðherra Kína
14 Carlos Slim Helu (og fjöl-skylda)
América Móvil
15 Narendra Modiforsætisráðherra Ind-
lands
16 Jeff Bezosstofnandi og fram-
kvæmdastjóri Amazon
17 Francois Hollande
forseti Frakklands
18 Jamie Dimonframkvæmdstjóri JP
Morgan Chase
19 Ali Hoseini-Khamenei
erkiklerkur og æðsti leiðtogi Íran
20 Rex Tillersonframkvæmdastjóri Exxon
Mobil
21 Jeffrey Immeltframkvæmdastjóri
General Electric
22 Mark Zuckerbergframkvæmdastjóri og
stjórnarformaður Facebook
23 Michael Bloombergframkvæmdastjóri Bloomberg
24 David Kochmeðeigandi og fram-
kvæmdastjóri Koch
Industries
25 Timothy (Tim) Cook
framkvæmdastjóri
Apple
26 Benjamin Netanyahuforsætisráðherra Ísraels
27 Lloyd Blankfeinframkvæmdastjóri Goldman
Sachs Group
28 Li Ka-shingstjórnarformaður Hutchison
Whampoa
29 Doug McMillonframkvæmdastjóri Wal-Mart
30 Jack Mastofnandi vefverslunarfyrir-
tækisins Alibaba.
31 Dilma Rousseffforseti Brasilíu
32 Rupert Murdoch (og fjöl-skylda)
framkvæmdastjóri News Corp
33 Christine Lagarde
fram-
kvæmdastjóri
Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins
34 Akio Toyodafram-
kvæmdastjóri Toyota
Motors
35 Jay Y. Leeaðstoðarstjórnarformaður,
Samsung Group
35 Lee Kun-Hee
stjórnarformað-
ur Samsung
Group
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
36 Mukesh Ambanistjórnarformaður Reliance
Industries
37 Khalifa bin Zayed Al-Nahyan
forseti Sameinuðu arabísku fursta-
dæmanna
38 Masayoshi Sonframkvæmdastjóri Softbank
39 Larry Finkstofnandi og
framkvæmdastjóri
BlackRock
40 Ban Ki-moon
aðalritari Sameinuðu
þjóðanna
41 Robin Listofnandi og fram-
kvæmdastjóri Baidu
42 Igor Sechinstjórnarformaður
Rosneft
43 Ding Xuedong
stjórnarformaður China
Investment Corp
44 Bill Clintonfyrrverandi forseti Banda-
ríkjanna
45 Jim Yong Kimforseti Alþjóðabankans
46 Park Geun-hyeforseti Suður-Kóreu
47 Alexey Millerframkvæmdastjóri
Gazprom
48 Haruhiko Kuroda
seðlabankastjóri Jap-
an
49 Kim Jong-uneinræðisherra Norð-
ur-Kóreu
50 Ali Al-Naimiolíumálaráðherra Sádi-Arabíu
51 Abdel el-Sisiforseti Egyptalands
52 Elon Muskstofnandi og fram-
kvæmdastjóri Tesla
Motors
53 Ma Huatengstofnandi Tencent
54 Abu Bakr al-Baghdadisjálfskipaður leiðtogi Íslamska
ríkisins.
55 Ginni Rometty framkvæmdastjóri IBM
56 Len Blavatnikeigandi Access Industries
57 Lakshmi Mittalstjórnarformaður og fram-
kvæmdastjóri ArcelorMittal
58 Martin Winterkornframkvæmdastjóri Volkswagen
Group
59 Bernard Arnault (og fjölskylda)
stjórnarformaður og fram-
kvæmdastjóri LVMH Moët
Hennessy – Louis Vuitton
60 Enrique Pena Nieto
forseti Mexíkó
61 Alisher Usmanovauðugasti maður Rússlands
62 Mary Barraframkvæmdastjóri General
Motors
63 Shinzo Abeforsætisráðherra Japan
64 Satya Nadellaframkvæmdastjóri
Microsoft
65 John Robertsforseti Hæstaréttar
Bandaríkjanna
66 Gina Rinehartauðugasta kona heims og
stjórnarformaður Hancock Pro-
specting
67 Margaret Chanframkvæmdastjóri Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar (WHO)
68 Aliko Dangoteframkvæmdastjóri Dangote
Group
69 Jeffrey Gundlachframkvæmdastjóri DoubleLine
Capital
70 Joseph (Sepp)
Blatter
forseti FIFA
71 Terry Gou
framkvæmdastjóri
Hon Hai Precision
72 Yngve Slyngstad
forstjóri norska olíu-
sjóðsins.
Þetta eru valda-
mestu konurnar
5. Angela Merkel, kanslari Þýskalands
6. Janet Yellen, seðlabankastjóri
Bandaríkjanna
31. Dilma Rousseff, forseti Brasilíu
33. Christine Lagarde, fram-
kvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
46. Park Geun-hye, forseti Suður-Kóreu
55. Ginni Rometty, framkvæmdastjóri IBM
62. Mary Barra, framkvæmdastjóri
General Motors
66. Gina Rinehart, auðugasta kona heims,
stjórnarformaður Hancock Prospecting
67. Margaret Chan, framkvæmdastjóri
Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO)
Valdamestur Vladimír Pútín er valdamesti maður heims.