Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2014, Qupperneq 22
22 Umræða Vikublað 18.–20. nóvember 2014
Bætt stjórnmál Hönnu Birnu Umsjón: Henry Þór Baldursson
Vinsæl
ummæli
við fréttir DV í vikunni
Þ
að er óhætt að segja að
vikan hafi verið nokkuð
viðburðarík á vettvangi
stjórnmálanna. Fyrst ber
að telja þriðju skrautsýn-
inguna í Hörpu þar sem forsæt-
is- og fjármálaráðherra kynntu
„heimsmetið“. Þau voru mörg og
gildishlaðin orðin sem þar féllu
og talnaflóðið minnti á jökulfljót á
hlýjum vordegi meðan skjámynd-
irnar skutust fram ótt og títt.
Við Vinstri græn höfum gagn-
rýnt aðferðafræði ríkisstjórnar-
flokkanna þegar þeir segja að
niðurfærslan sé almenn aðgerð
enda getur hún vart talist sem slík
þegar hún tekur aðeins til þriðj-
ungs þjóðarinnar.
Víst er að einhverjir eru ánægð-
ir og skyldi engan undra það enda
ekki á hverjum degi sem fjármun-
um er deilt úr ríkissjóði með slík-
um hætti. Og að sjálfsögðu verður
niðurfærslan til þess að lækka af-
borganir hjá nokkrum fjölda sem
ekki er tekjuhár en hún mun einnig
þyngja pyngju margra hinna efna-
meiri og ennfremur fólks sem er
svo vel sett að það féll undir mörk
sem sett voru um greiðslu auð-
legðarskatts.
Þessum fjármunum væri betur
varið til að styrkja innviðina, heil-
brigðisþjónustuna, menntakerfið,
samgöngur að ekki sé minnst á að
greiða niður skuldir ríkissjóðs. Það
er klárlega almenn aðgerð og kem-
ur ekki bara okkur sem nú lifum
og njótum til góða heldur einnig
framtíðarbörnum þessa lands.
Þetta er hin ábyrga fjármálastjórn
Sjálfstæðisflokksins sem beygir sig
undir kosningaloforð Framsóknar-
flokksins með því að hrinda þessari
aðgerð í framkvæmd. Valkosturinn
er skýr, örlætið er til handa efnuð-
um borgurum og auðmönnum á
kostnað almennings og í stað þess
að búa í haginn fyrir komandi kyn-
slóðir. Þeirra er ábyrgðin á því sem
nú fer fram í fjármálum hins opin-
bera og þróuninni í innviðum sam-
félagsins sem hrakar dag frá degi
sökum fjárskorts.
Lekamálið
Dramatískt játning fyrrverandi að-
stoðarmanns innanríkisráðherra
fannst mér ekki sannfærandi enda
kom hún á „elleftu stundu“ þegar
komið var að því að ráðherrann
þyrfti að mæta í dómsal vegna
málsins. En þetta er bara einn hluti
þessa máls og er niðurstöðu Um-
boðsmanns Alþings að vænta í vik-
unni sem hefur haft málið til rann-
sóknar um nokkurt skeið.
En því er ekki að neita að af-
skipti ráðherrans eru um margt
sérkennileg hvort heldur eru sam-
skipti við Alþingi, lögregluna eða
ósk um að blaðamenn væru rekn-
ir vegna umfjöllunar um málið.
Margir hafa einnig þurft að sitja
undir því að vera bendlaðir við lek-
ann s.s. eins og Rauði krossinn,
ræstingafólk og í raun allt starfsfólk
innanríkisráðuneytisins.
Þrátt fyrir það sjá þingflokkur
Sjálfstæðisflokksins og forsætis-
ráðherra Framsóknarflokksins
ekki ástæðu til annars en að lýsa
fullu trausti á áframhaldandi setu
ráðherrans.
Framtíðarsýnin
Það hefur vakið athygli hversu
ósamstæðir stjórnarflokkarnir eru
í mörgum málum og má minna á
ágreining þeirra um fjárlagafrum-
varpið. Þar setti Framsóknarflokk-
urinn fyrirvara sem er óvenjulegt.
Síðast í þættinum á Sprengisandi á
sunnudaginn var sagði Frosti Sig-
urjónsson, formaður efnahags- og
viðskiptanefndar, að enn væri ver-
ið að finna til mótvægisaðgerð-
ir varðandi matarskattinn sem
virðist vera Sjálfstæðisflokknum
erfitt. En það verður líka áhuga-
vert að sjá hvort þingmenn Fram-
sóknarflokksins styðja við gríðar-
legan niðurskurð í skólakerfinu
eða séu tilbúnir að endurskilgreina
þá þjónustu sem Landspítalinn
á að veita því skýrt er að þeir fjár-
munir sem lagt er upp með í fjár-
lagafrumvarpinu duga engan veg-
inn til að sinna því sem honum ber
að gera skv. lögum. Forgangurinn
er skýr, keyptir eru nýir lúxusbílar
handa ráðherrum á sama tíma og
innviðunum blæðir.
Ríkisstjórnin ætti því ekki að
vera undrandi á því að fólk kem-
ur saman ítrekað á Austurvelli og
mótmælir af margvíslegum ástæð-
um þrátt fyrir að þær dagsetn-
ingar sem valdar hafa verið henti
ekki forsætisráðherra. Því mið-
ur virðast ríkisstjórnarflokkarnir
vera vanmáttugir til að leysa ýmis
brýn samfélagsmál og þegar kem-
ur að stefnumótandi ákvörðunum
og framtíðarhugsun eru stjórnar-
flokkarnir hvor á sinni bylgjulengd.
Hins vegar þegar kemur að eins
skiptis aðgerðum eins og skulda-
niðurgreiðslu sem tekin er að stór-
um hluta til út á reikning framtíðar-
innar þá ná þeir saman. Óskandi er
að slík ríkisstjórn verði eins skiptis
ríkisstjórn. n
Skuldaniðurgreiðslan
„Þetta er ekki
neitt nema
lögbrot, lygar
og yfirhylmingar ráðherra
og hennar óvandaða
aðstoðarmanns. Annars ekki
neitt sem orð er á gerandi,“
segir Maron Bergmann
Jónasson. Í helgarblaði DV er
greint frá því að Hanna Birna
Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hafn-
ar því nú sem hún sagði í Kastljósi hinn
26. ágúst, að Gísli Freyr hefði beðið hana
um að beita sér fyrir því að yfirheyrslu
yfir honum yrði flýtt.
14
„Þeir leituðu til
FBI en voru ekki
einu sinni búnir að
skanna diskinn almennilega.
Hvers konar eiginlega
amatörar eru þetta?“
spyr Eva Hauksdóttir.
Við rannsókn lekamálsins
svokallaða hafði lögreglan
á höfuðborgarsvæðinu samband við
bandarísku alríkislögregluna, FBI,
sem hafði óskað eftir upplýsingum frá
Google, sem á Gmail.
9
„Ég held að því
miður þá sé fullt
af sjúklingum sem
bíða og bíða, en auðvitað á
krabbameinssjúklingur að
ganga fyrir öllu, því þeir vita
ekki hvorum megin þeir eru
við rauða strikið,“
segir Rannveig Sigurðardóttir.
Í helgarblaði DV var umfjöllun
um Einöru Sigurðardóttur,
78 ára, sem greindist með illkynja
eitlafrumukrabbamein í byrjun október,
rúmum tveimur vikum áður en verkfall
lækna hófst, en hún þurfti að bíða í
rúmar fimm vikur eftir því að komast í
umræddar rannsóknir. Einara gleymdist
í kerfinu.
5
„Það er verið
að meina að
gaurinn sé ekki
alveg fulle femm i hausnum
, að það séu sönnunargögn
um að það sé eitthvað
bogið við þetta, og svo fer
enginn þarna óvart útí ána á
þessum stað haha,“
segir Adam Robertsson. Efast
er um að maðurinn, sem fannst
á gangi skammt frá flugvell-
inum á Selfossi, nálægt geymslusvæði
sem Borgarverk er með, hafi farið í
Ölfusá í síðustu viku.
7
„Hanna Birna
svaraði strax
fyrirspurn frá
Umboðsmanni Alþingis með
árás; en eins og flestir vita er
árás oft besta vörnin; en hún
tókst ekki hjá Hönnu Birnu,
því Umboðsmaðurinn lætur
ekki hræðast.“
Þetta segir Guðmundur
Guðmundsson í athugasemd
á DV.is þar sem fram kemur að
Helgi Magnús Gunnarsson vararíkis-
saksóknari segist ekki muna eftir að
viðlíka gagnrýni á rannsókn máls hafi
áður komið fram frá eins valdamiklum
aðila og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur
innanríkisráðherra.
17
Kjallari
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir
þingkona Vinstri grænna
„Ríkis-stjórnin
ætti því ekki að
vera undrandi á
því að fólk kem-
ur saman ítrekað
á Austurvelli og
mótmælir
Mynd SiGtRyGGUR ARi