Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2014, Síða 28
Vikublað 18.–20. nóvember 201428 Lífsstíll
Rannsóknarteymi virðast seint fá leiða á að rannsaka hvort áfengi eða súkkulaði hafi góð eða slæm árhrif á fólk.
Niðurstöður nýrrar rannsóknar um
heilsufarsleg áhrif áfengisneyslu
voru birtar nýlega í tímaritinu
Alcohol, an International Biomed-
ical Journal. Þar kom fram að sumt
fólk er betur í stakk búið til að verjast
hjartaveikindum með áfengisneyslu
út af einu ákveðnu geni.
Rannsóknin var framkvæmd í
Gautaborgarháskóla. Eftir rannsókn
á tæplega 4.000 manns og drykkju
þeirra kom í ljós að hófleg drykkja
hafði meiri áhrif á heilsu þeirra sem
hafa sérstakt gen.
Þeir sem sögðust drekka hóflega,
eða færri en níu drykki, í hverri viku
áttu minni hættu á því að fá hjarta-
sjúkdóm. Hins vegar áttu þeir sem
voru með þetta gen og drukku um
2–5 drykki á viku, enn minni hættu á
að verða veikir í hjarta. Þetta átti aftur
á móti ekki við þá sem drukku ekkert
eða níu drykki eða fleiri í einu.
Þrátt fyrir að rannsakendur hafi
tekið tillit til félagshagfræðilegra
breyta, lífsstíls og kólesteróls í blóði,
sem hefur áhrif á hvernig líkaminn
vinnur úr áfengi, þá gátu þeir ekki
útskýrt þennan mikla heilsufars-
lega mun. Aðeins um 15% fólks eru
með þetta gen, sem þýðir að aðeins
lítill hluti fólks getur varið sig gegn
hjartasjúkdómum með hóflegri
áfengisneyslu. n helgadis@dv.is
Hófleg áfengisdrykkja hefur
góð áhrif Rannsakendur keppast við
að sanna og afsanna ágæti áfengis.
Áfengi spornar gegn hjartasjúkdómum
Fólk með ákveðið gen fær meiri vörn
Sakna barnanna
„Ég er búin að fikta við þetta frá
2007 og var bara að sauma með-
fram dagmömmunni í öll þessi
ár. Svo í sumar ákvað ég bara að
taka skrefið,“ segir Herdís Arnórs-
dóttir á Akureyri sem hætti sem
dagmamma eftir 23 ár, skellti sér
í nám til Ítalíu og opnaði eigin
verslun á dögunum undir nafn-
inu Dís design.
Barnalína á leiðinni
Verslunin er í JMJ-húsinu þar
sem Litla ísgerðin var áður til
húsa. „Ég sauma kjóla, peysur,
buxur og leggings og ætla einnig
að gera barnaleggings og kjóla.
Ég hef aðeins verið að leika mér
að sauma á barnabarnið og ætla
að prófa að sauma á fleiri líka.“
Herdís viðurkennir að það sé
tvennt ólíkt að sitja ein og sauma
eða vera umkringd börnum allan
daginn. „Þetta er mikill munur og
ég viðurkenni alveg að ég sakna
barnanna. Börn eru alveg yndis-
leg og það voru blendar tilfinn-
ingar þegar ég hætti.“
Lítil krúttleg búð
Varðandi jólatískuna segist hún
leggja áherslu á þægileg snið og
góð efni. „Mitt markmið er að
konum líði vel í fötunum og það
er alveg hægt að klæðast töff kjól-
um úr þægilegum efnum. Í litun-
um eru það svo svartur, hvítur og
grár eins og vanalega en sjálf ætla
ég að bæta gylltum, silfruðum
og brons með. Mér finnst alltaf
skemmtilegra að hafa einhverja
liti með.“
Hún segist óhrædd við að
opna verslun á Akureyri þrátt
fyrir að risar eins og Lindex séu
komnir á markaðinn. „Ég ber mig
náttúrlega alls ekki saman við
Lindex. Þetta er allt öðruvísi, bara
lítil og krúttleg búð. Viðtökurnar
hafa líka verið mjög góðar.“
É
g er enn þá orðlaus. Ég bjóst
engan veginn við því að vinna,“
segir Unnur Kristín Óladótt-
ir, nýkrýndur bikarmeistari í
módelfitness.
Alltaf að æfa
Unnur Kristín hefur oft keppt í mód-
elfitness en ætlaði sér ekki að vera
með í bikarmótinu sem fram fór um
síðustu helgi. Hún ákvað hins vegar
að skella sér af stað aðeins tólf dög-
um fyrir keppni. „Ég er alltaf að æfa
og reyni að halda mér í ágætis formi
en ég var ekkert að æfa meira en
svona fjórum, fimm sinnum í viku
í vetur auk þess sem ég missti oft
úr æfingar vegna anna í skólanum.
Ég hafði lagt mikið af vegna álags
og stress í náminu og þegar ég fór í
mælingu hjá þjálfaranum mínum
kom hún svona vel út svo ég ákvað
að kýla bara á þetta. Ég hugsaði mér
að ef ég yrði sátt við lokaútgáfuna
daginn fyrir mótið myndi ég keppa.
Þjálfarinn minn, Valdís Sylvía Sigur-
þórsdóttir, og mitt nánasta fólk hef-
ur endalausa trú á mér og mun meiri
trú en ég sjálf. Það er ótrúlegt hvað
maður kemst langt á slíkum stuðn-
ingi. Ég hefði ekki getað þetta án
þeirra. Þau voru „sponsararnir“ mín-
ir í þetta skiptið.“
Mælir ekki með þessu
Unnur Kristín segist þó ekki mæla
með þessari aðferð. „Þetta var hrika-
lega gaman og sérstaklega eftir á en
ég mæli engan veginn með þessu.
Þetta er langerfiðasti niðurskurð-
ur sem ég hef upplifað; tók virkilega
á. Ég var alveg búin á því á móts-
daginn, mér leið virkilega illa og þess
vegna ákvað ég að fá mér að borða og
drekka á milli forkeppninnar og úr-
slitakeppninnar. Ég hef alltaf fengið
mér smá að borða en fékk mér líka
að drekka núna en það hef ég aldrei
leyft mér áður. Fyrir vikið leið mér
mun betur um kvöldið og ég held að
það hafi skilað sér upp á sviðið. Lík-
aminn var alveg búinn enda hafði
ég misst fimm kíló á aðeins tíu dög-
um. Ég held að það sé dálítið of mik-
ið. Hingað til hef ég tekið undirbún-
inginn á tólf vikum eins og ráðlagt
er að gera en ef maður er í ágæt-
is formi fyrir er hægt að gera það á
styttri tíma. En ég mæli ekki með tólf
dögum,“ segir Unnur sem sigraði án
hjálpar fæðubótarefna.
„Ég ákvað eftir mót í ágúst í fyrra
að gefa líkamanum hvíld frá fæðu-
bótarefnum auk þess sem þessi efni
eru ótrúlega dýr. Ég geri mér samt
grein fyrir því að ef ég vil ná ein-
hverjum gígantískum bætingum þá
yrði ég að styðjast við einhvers konar
fæðubótarefni en það er samt gaman
að hafa sýnt fram á að maður getur
alveg keppt án þeirra.“
Systir Hönnu Rúnar
Unnur Kristín er eldri systir dans-
stjörnunnar Hönnur Rúnar Óla-
dóttur. „Við erum bestu vinkonur og
Hanna Rún hjálpar mér alltaf mik-
ið fyrir keppni. Hún æfir með mér
sviðsframkomu og sér um brúnk-
una, hárið, förðunina og bikiníið.
Hún er alveg vakin og sofin yfir þessu
og vill að þetta sé allt sem flottast hjá
mér. Hanna er frábær.“ Hún segir
þær systur alræmda nammigrísi og
viðurkennir að það hafi verið erfitt
að hætta í sælgætinu. „Ef ég hefði
ekki farið upp á svið hefði það verið
út af appelsínuhúðinni á lærunum.
Markmiðið var að losna við hana
og það tókst tveimur dögum fyrir
keppni.
Ég notaði öll trixin í bókinni til
þess, hætti í namminu, nuddaði mig
með kremum, fór í vafninga og gerði
brennsluæfingar. Ég veit ekki hvað
virkaði, ætli þetta hafi ekki allt unnið
saman,“ segir hún og bætir við að
hún hafi ekki enn fengið sér nammi
eftir keppnina. „Ég er enn að jafna
mig og ætla að trappa mig hægt og
rólega inn í eðlilegt mataræði. Svo er
ég líka búin að hafa svo mikið fyrir
því að losna við appelsínuhúðina að
ég tími ekki að skemma það strax.“ n
„Ég er
enn þá
orðlaus“
Unnur Kristín Óladóttir er bikarmeistari í módelfitness
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Unnur Kristín
Unnur Kristín er
einstæð mamma
og bikarmeistari í
módelfitness.
Systur Hanna Rún aðstoðaði Unni við
undirbúninginn.
Sigurvegari Unnur Kristín kom, sá og sigr-
aði en hún mælir alls ekki með svo stuttum
undirbúningi.
„Líkaminn var alveg
búinn enda hafði
ég misst fimm kíló á að-
eins tíu dögum
Miðjarðarhafs-
mataræði best
Ný rannsókn sýnir að Mið-
jarðarhafsmataræði sé betra til að
léttast heldur en að telja kaloríur.
Niðurstöðurnar voru birtar í
Postgraduate Medical Journal.
Þar sagði að þeir sem væru á
mataræðinu minnkuðu líkurnar
á hjartaáföllum og slögum mun
hraðar en aðrir.
Eins var sagt að það væri betra
til að halda þyngdinni af sér held-
ur en mataræði með lítilli fitu.
Læknarnir sem stóðu að baki
rannsókninni sögðu að það yrði
að finna leiðir til að sporma við
offitu fólks. Þeir segja að gott sé
að fylgjast með því sem mað-
ur borðar en það á alls ekki að
svelta sig.