Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2014, Page 30
Vikublað 18.–20. nóvember 201430 Lífsstíll
Vísindamenn í Stanford-há-skóla hafa mögulega fund-ið leið til þess að lækna Alzheimers-sjúkdóminn
með því að trufla taugaboð ákveðins
próteins.
Vísindamennirnir gerðu tilraun-
ir með því að fikta í PirB-prótein-
inu sem gerir dýrum kleift að sækja í
gamla reynslu en heftir á sama tíma
getuna til að læra nýja hluti. Þeir sáu
að þeir gátu truflað boðin svo heil-
inn gæti unnið hraðar. Próteinið
finnst líka í manneskjum en heitir
þar LilrB2.
Prófessorinn Carla Shatz og
samstarfsmenn hennar, dr. Davic
Bochner og Richard Sapp, fundu út
að tilraunardýr þeirra voru fljótari
að læra að nota aðeins annað aug-
að ef hitt hafði orðið fyrir skemmd-
um, ólíkt dýrum sem tilraunin var
ekki gerð á.
Með hindrun próteinsins
komust þau að því að allavega einn
hluti heilans átti auðveldara með að
jafna sig á skemmdum, aðlaga sig og
læra nýja hluti.
Þegar manneskjur læra eitt-
hvað nýtt, eða leggja upplýsingar
á minnið, á sér stað endurröðun
efnaferla í heilanum. Mest af þessu
á sér stað þegar börn þroskast og
dafna. En heilinn gerir þetta líka til
þess að vega á móti því þegar líkam-
inn tapar notagildi einhvers, eins og
auga. Eins er endurröðunin notuð
til þess að auka notagildi annarra
parta líkamans þegar heilinn verður
fyrir miklum skemmdum.
Þessi rannsókn gerir það að verk-
um að mögulega verður hægt að
lækna Alzheimers-sjúkdóminn eða
hafa áhrif á hann. Aðrar rannsókn-
ir hafa nefnilega sýnt að prótein
sem finnst í Alzheimers-sjúklingum
bindur sig við LilrB2-próteinið.
Aðalvandamál vísindamanna
nú er að manneskjur hafa fimm
mismunandi LilB2-LilB5-prótein,
svo til að ná árangri í þessu þarf að
finna leiðir til að rugla í fleiri en einu
próteini. n
helgadis@dv.is
Geta mögulega læknað Alzheimers-sjúkdóm
n Trufla taugaboð próteins n Rannsóknir á byrjunarstigi
Grænir drykkir slá í gegn
Taugaboð í heilanum Vani er til dæm-
is myndaður með taugaboðum til heilans.
n Hildur Halldórsdóttir sendir frá sér aðra bók n Prófar sig áfram með það sem er til
Þ
etta er svipuð bók og sú
fyrri nema núna er að-
eins meiri áhersla á grænu
drykkina,“ segir lífeinda-
fræðingurinn Hildur Hall-
dórsdóttir á Akureyri en nýja bók-
in hennar, Heilsudrykkir Hildar
– Meiri hollusta 50 uppskriftir,
kemur út 11. desember.
Fékk nóg
Þegar Hildur var í fæðingarorlofi
með yngri stelpuna sína árið 2012
vildi hún breyta um lífsstíl.
„Ég var farin að lifa á ein-
hæfu fæði sem ein-
kenndist af brauði
og smjöri. Mig
langaði í fjölbreyttari og vítamín-
ríkari mat og fór að lesa mig til,“
segir Hildur sem hefur alltaf haft
áhuga á næringu og hollu matar-
æði og því hvernig
næringarefnin
virka í líkam-
anum.
Hún segist aldrei hafa trúað því að
tæpum tveimur árum síðar væri
hún að deila þessari ástríðu sinni
með landsmönnum í sinni annarri
bók. „Þetta er bara alveg ótrúlegt en
á sama tíma ótrúlega skemmti-
legt líka.“
Eins og í fyrri bók-
inni eru hollar en
einfaldar og þægi-
legar uppskrift-
ir í nýju bókinni.
Hildur segist sjálf
sjaldnast fara eft-
ir uppskriftum en
að hún skrifi hrá-
efnin niður á blað
þegar drykkurinn
heppnast vel. „Yf-
irleitt blanda ég
bara drykk úr því
sem ég á til í ís-
skápnum hverju
sinni og ef úr verð-
ur dásemd skrifa ég
niður, prófa aftur og
leyfi fleirum að njóta.“
Mynta og kókos
Hún segist hafa komist að ýmis-
legu með þessum tilraunum.
„Það kom mér til dæm-
is á óvart hvað kakó
og engifer passar
vel saman. Al-
veg ótrú-
lega góð
blanda. Og mynta og kókos líka,“
segir hún og bætir við að hún
sé komin upp á lagið að kunna
að meta kókos. „Ég borðaði ekki
kókos, fannst það bara ógeðslegt.
Núna er kókos í öllu, kókosmjöl,
kókosmjólk, kókos-hitt og þetta.“
Hildur segir ótrúlega vakn-
ingu hafa orðið í heilbrigðum lífs-
stíl. „Fólk er orðið mun jákvæðara
fyrir því að prófa eitthvað nýtt. Ég
hef verið með grænar áskoranir á
netinu og það er meiri háttar gam-
an að sjá hvað fólk er opið fyrir nýj-
um hráefnum. Margir eru samt
enn þá hræddir við ýmislegt, til að
mynda sellerí, sem inniheldur hell-
ing af vítamínum, en þá er bara að
setja lítið til að byrja með. Maður
lærir að meta þetta. Hver og einn
verður bara að finna sína leið. Mér
finnst gott að setja þrjá sellerí-stilka
en hálfur er kannski nóg fyrir ein-
hvern annan.“
Grænir, bleikir, fjólubláir
Hildur segist oftast blanda sér
drykk á hverjum degi. „Og oftast
blanda ég drykk á morgnana sem
bíður svo eftir eldri stelpunni þegar
hún kemur heim úr skólanum.
Stelpurnar mínar elska drykkina en
þeirri litlu finnst þeir grænu betri á
meðan sú eldri vill hafa þá bleika
og fjólubláa,“ segir hún og játar því
að hún hafi smitað eiginmanninn á
áhuganum líka. „Hann blanda sér
sjálfur þessa flottu drykki. Hann er
svona uppskriftarkarl og blandar
drykki með bókina í hendinni.“ n
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Í uppáhaldi
Einfaldur, hollur og bragðgóður
drykkur úr gömlu bókinni hennar
n 10 möndlur
n 1 ds mangó
n 2 döðlur
n 1–2 matskeiðar goji-ber
n Fullt af spínati
n Hálfur til einn banani
n Vatn
Svalandi
Frískandi, hæfilega sætt og svalandi
vítamínvatn
n 3 dl vatnsmelóna
n 2 dl jarðarber
n rifið engifer eftir smekk
n klakar og vatn
Setjið fullt af klökum í botninn á
flöskunni og síðan hráefnið. Fyllið
með ísköldu vatni og njótið. Bætið
síðan vatni reglulega við en ávext-
irnir endast í allt að viku, sé vatnið
geymt í kæli.
Gott er að merja ávextina og
kryddjurtirnar örlítið saman áður en
fyllt er á með vatninu, til að losa um
bragðefni.
Hægt er að drekka drykkinn strax
en best að leyfa honum að standa í
klukkutíma áður.
Fyrir lengra
komna 105 kcal.
n 3 g prótein, 33 g kolvetni, 0 g fita
n 1 epli eða 1 banani
n væn handfylli af spínati
n 1–2 stilkar sellerí
n 1–3 cm fersk, rifin engiferrót
n 2 dl kókósvatn eða vatn
n klakar ef þarf
Öllu blandað vel saman.
Hildur Hildur
segist aldrei
hefði trúað
því að tæpum
tveimur árum
eftir að hún
ákvað að gera
eitthvað í sínum
málum væri hún
að gefa út bók
númer tvö.
Mynd Auðunn níelsson
Epli skemma
tennur
Könnun sem tannlæknar gerðu í
Bretlandi sýndi að þótt súkkulaði
í millimál geti bætt á þig kílóum
þá virðist sem epli auki ferðir þín-
ar til tannlæknis. Fjórir af fimm
tannlæknum vöruðu við því að
borða epli í millimál þar sem það
getur aukið tannsýkla og eyðingu
á glerung. Þriðjungur sagði epli
valda miklum skemmdum á
tönnum og tannholdi. Allir mæltu
með því að fólk notaði tannþráð
mun oftar, þótt það sé ekki vin-
sælt. Eins á það að tannbursta
sig allavega tvisvar á dag og nota
bakteríueyðandi munnskol.