Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2014, Blaðsíða 38
Vikublað 18.–20. nóvember 201438 Fólk
M
agnea Einarsdóttir fata-
hönnuður er meðal
þeirra sem tilnefndir eru
til Hönnunarverðlauna
Íslands, sem haldin
verða í fyrsta skipti nú í nóvember.
Reyndi að sannfæra sig um
skynsamlegra nám
Hana hafði alltaf langað að verða
fatahönnuður og ákvað að fara til
Parísar og London til að læra. „Ég
reyndi nokkrum sinnum að sann-
færa mig um að ég ætti að læra eitt-
hvað „skynsamlegra“. En ég ákvað
samt að fara í fatahönnun. Ég lærði
í bæði London og París og stefndi
á að finna starf þar eftir námið því
mig langaði að kynnast tískuiðnað-
inum og fá reynslu. Ég fékk ágæt-
is reynslu í gegnum námið og líf-
ið breyttist hratt á þessum tíma,
þannig að ég tók ákvörðun um að
koma heim beint eftir útskrift, alla-
vega tímabundið.“
Tímabundin heimsókn sem dróst
Magnea hefur nú verið hér á Ís-
landi í rúm tvö ár. „Eftir á að hyggja
var það hárrétt ákvörðun hjá mér
að koma heim. Mér hefur geng-
ið mjög vel og hef fengið alls konar
tækifæri bæði hér heima og erlend-
is samhliða því að byggja upp eigið
fyrirtæki sem hefði ekki gerst hefði
ég verið annars staðar. Það er svo
margt að gerast í hönnunarheim-
inum á Íslandi og það er virkilega
gaman og góð reynsla að taka þátt
í þeirri metnaðarfullu uppbyggingu
sem er að eiga sér stað hér.“
AW2014
Magnea er tilnefnd fyrir fatalínu
sína, Magnea AW2014, en hún seg-
ir að megináhersla merkisins hafi
alltaf verið prjón og notkun and-
stæðra efna. „Það er mikil rann-
sóknarvinna og prufugerð sem
liggur að baki línunni og á vissan
hátt má segja að hver fatalína sé
ákveðið framhald af þeirri síð-
ustu. Ég skoðaði einnig vinnufatn-
að og byggingasvæði. Sniðin,
stíliseringin og heildarmynd sýn-
ingarinnar var svo hugsuð út frá
þeim innblæstri.“
Framúrskarandi tilnefningar
„Það er virkilega ánægjulegt og
mikill heiður að fá þessa tilnefningu
og þrjú önnur framúrskarandi verk-
efni eru tilnefnd líka svo það kæmi
mér mjög á óvart ef ég ynni. Ef það
gerðist myndu verðlaunin koma sér
vel varðandi frekari vöruþróun og
markaðssetningu. Við erum á fullu
í undirbúningi á línu fyrir AW2015
sem við ætlum með á sölusýn-
ingu í Kaupmannahöfn sem verð-
ur haldin í lok janúar. Línan verður
svo sýnd hér á Íslandi í mars,“ segir
Magnea að lokum.
Vitundarvakning
meðal almennings
Í ár eru Hönnunarverðlaun Ís-
lands veitt í fyrsta sinn en Magneu
finnst þau vera góð og tímabær við-
bót við vaxandi iðnað á Íslandi.
„Mér sýnist fólk innan fagsins al-
mennt vera að taka mjög vel í verð-
launin. Þau munu án efa verða liður
í vitundarvakningu meðal almenn-
ings á gæðum og virði hönnun-
ar, bæði íslenskri sem og erlendri,“
segir hún. Aðrir tilnefndir eru Stúd-
íó Granda fyrir Ljósmyndastúdíóið
H71A á Hverfisgötu, Siggi Eggerts-
son fyrir verkið Skvís og verkið Des-
igns from Nowhere þar sem kann-
aður var möguleiki á framleiðslu á
Austurlandi. n
Hárrétt
ákvörðun
að koma
heim
n Magnea Einarsdóttir er
tilnefnd til Hönnunarverð-
launa Íslands n Fékk inn-
blástur frá vinnufatnaði
Fatnaður
úr vörulínu
Magneu-
AW2014
Magnea leggur
áherslu á prjón
og andstæð efni,
líkt og gúmmí, í
hönnun sinni.
MyndiR Aldís pálsdóTTiR
„Ég reyndi nokkrum
sinnum að sann-
færa mig um að ég ætti
að læra eitthvað „skyn-
samlegra“
Helga dís Björgúlfsdóttir
helgadis@dv.is
Magnea Einarsdóttir
Hún lærði fatahönnun í
Central Saint Martins í
London og hægt er að
fá vörur hennar í Jör.
Mynd þóRdís REynis
Með þráhyggju fyrir Donkey Kong
Rapparinn Gauti Þeyr Más-son eða Emmsjé Gauti eins og hann er jafnan kallaður hefur þróað með sér glænýja
leikjafíkn. Fíknin er þó ekki í fers-
kasta tölvuleikinn á markaðinum
eins og mætti halda heldur liggur
Gauti yfir „retro“ Donky-Kong spila-
kassa sem finna má í spilasalnum
Fredda við Ingólfsstræti.
Spilasalurinn sem var opnað-
ur nýverið, býður upp á margs kon-
ar tölvuleiki fyrir nostalgíufíkla. Þar
hefur rapparinn knái nú sést ítrekað
undanfarið og háir hann þar blóð-
uga baráttu við annan mann um
toppsætið yfir flest stigin.
„ Ég er ekki meistarinn „at this
point“,“ segir Gauti þegar blaðamað-
ur nær af honum tali. „Við Maggi, fé-
lagi minn, erum búnir að skiptast á
metinu, sitt á hvað. Núna erum við
farnir að liggja yfir kennslumynd-
böndum á youTube um hvern-
ig hægt sé að ná betra skori,“ segir
hann og viðurkennir að leikurinn
sé orðinn að nokkurs konar þrá-
hyggju.
„Það er svo fyndið að strák-
urinn sem vinnur á Fredda er far-
inn að líkja okkur við gæjana í
King of Kong. Hann er eitthvað
farinn að hóta því að taka okkur
upp,“ bætir Gauti við kíminn og á
þar við þekkta heimildarmynd um
menn sem seilast ansi langt í þörf
sinni við að bæta stigametið í leikn-
um klassíska.
Gauti segir þá félaga þó ekki
hafa neina náðargáfu þegar kem-
ur að leiknum. Þvert á móti
séu þeir að bítast um toppsætið yfir
fremur fátæklegum stigafjölda.
„Þetta er samt búið að ná mér.
Þegar ég er í efsta sætinu þá er það
mjög fullnægjandi. Þegar ég er undir
þá get ég ekki hugsað um annað en
að vinna. Ég kalla því hér með eftir
því að hingað komi góðir spilarar og
rústi metið svo ég geti sett þessa þrá-
hyggju til hliðar,“ segir hann. n
maria@dv.is
Rapparinn Emmsjé Gauti á sér nýtt og nördalegt áhugamál
donkey Kong Gauti einbeittur í leiknum.
Kempur á Slade-
tónleikum
Gamlar kempur fóru að rifja upp
stórtónleika hljómsveitarinnar
Slade í Laugardagshöll árið 1974
á Facebook-þræði hjá Óla Palla
útvarpsmanni.
Gunnþór Sigurðsson, ba-
ssaleikari Q4U, sagðist hafa verið
á tónleikunum og ætti enn mið-
ann sem var áritaður af hljóm-
sveitinni. Eins sagði hann að
langflestir hefðu verið á aldrinum
15–20 ára.
Þá kom Gunnlaugur Briem
trommuleikari og sagði eftir-
væntinguna hafa verið mikla við
að sjá töffarana en miðinn hafði
kostað hann aleiguna. Hann
sagðist aðeins muna eftir miklum
hita, troðningi og svita, eins var
óbærilegur hávaði og hræðilegt
hljóð. Hann fór svo að spá í Deep
Purple og „the rest is history“.
„Strákarnir
léttir í Prag“
Íþróttafréttamennirnir Haukur
Harðarson og Guðmundur Bene-
diktsson spókuðu sig saman um
í Prag, höfuðborg Tékklands, á
sjálfum þjóðhátíðardegi Tékka
á mánudag. Þeir hafa væntan-
lega náð að slaka aðeins á og
kasta mæðinni eftir æsilegar lýs-
ingar á leik Íslendinga og Tékka í
undankeppni EM í knattspyrnu
sem fram fór á sunnudag.
Gummi Ben gjörsamlega missti
sig þegar Ragnar Sigurðsson
kom Íslendingum yfir snemma í
leiknum, en hann er þekktur fyr-
ir mjög dramatískar og tilfinn-
ingaríkar lýsingar á kappleikj-
um. Haukur er öllu yfirvegaðri.
Þeir birtu mynd af sér saman
á Instagram úr gamla bænum:
„Strákarnir léttir í Prag á þjóðhá-
tíðardegi Tékka!“