Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2014, Side 2
Vikublað 2.–4. desember 20142 Fréttir
Skógræktin bjargaði jólunum
n Óslóartéð brotnaði í óveðrinu n Nýtt tré fannst við Rauðavatn
D
agur B. Eggertsson borgar-
stjóri Reykjavíkur óskaði eft-
ir hugmyndum um hvernig
megi „bjarga jólunum“ eftir að
Óslóartréð skemmdist í óveðrinu á
sunnudagskvöldið.
„Í gær þurftum við að fresta tendr-
un ljósa Óslóartrésins og nú er ljóst
að óveðrið braut það og eyðilagði. Við
stefnum að því að tendra tré á Austur-
velli á sunnudaginn næsta en ljóst að
hafa verður hraðar hendur og „bjarga
jólunum“,“ sagði Dagur á Facebook-
síðu sinni. Í kjölfarið var ákveðið að
fara í Skógrækt Reykjavíkur, með full-
trúa norska sendiráðsins á Íslandi, við
Rauðavatn og fella grenitré.
Óslóartréð sem reist var í vikunni er
númer 63 í röðinni en það hefur ver-
ið árleg gjöf frá Óslóarborg til Reykja-
víkur. Framan af ári var útlit fyrir að
ekkert tré bærist vegna sparnað-
araðgerða hjá borgarstjórn Ósló-
ar en sú ákvörðun vakti athygli bæði
hér heima og í Noregi. Í september
sendi síðan borgarstjóri Óslóar, Fabi-
an Stang, Degi bréf þar sem hann til-
kynnti að tréð myndi áfram berast.
Óslóartréð gerðist einnig svo frægt að
blandast inn í vélbyssumálið í haust.
Þá var því haldið fram í frétt norska
blaðsins Verdens Gang að vélbyssurn-
ar hefði verið gjöf frá Norðmönnum til
bæta upp fyrir þá ákvörðun að senda
ekki Óslóartréð. n
asgeir@dv.is
Öryggi haft
að leiðarljósi
Vegna veðurofsans á sunnudag
var ákveðið, í samvinnu við al-
mannavarnir, að stöðva vagna-
flota Strætó bs. Margir farþegar
voru ósáttir við þetta, en að sögn
upplýsingafulltrúa Strætó, Guð-
rúnar Ágústu Guðmundsdóttur,
var ákveðið að láta öryggissjónar-
mið ráða för. Öryggi farþega og
starfsfólks skipti öllu máli. „Það
er út frá þeim forsendum sem
sett eru ákveðin vindviðmið sem
höfð eru til hliðsjónar við ákvarð-
anir sem þessar,“ segir hún í til-
kynningu til fjölmiðla. Þar segir
enn fremur að ávallt sé reynt að
komast hjá því að aflýsa ferðum
strætisvagna og stuðst við fyrir-
fram samþykkt öryggisviðmið.
„Vindviðmiðum fyrir stór öku-
tæki er skipt í þrjú stig. Veðurofsi
sunnudagsins var slíkur að hann
fór í 3 stig vindviðmiða við akstur
stórra ökutækja og því var talið
nauðsynlegt að stöðva akstur
vagnaflotans til að tryggja öryggi.
Til að koma mikilvægum upp-
lýsingum á framfæri til farþega
og almennings eru þær sendar
til fjölmiðla, settar á heimasíðu
Strætó og á fésbókarsíðu Strætó
ásamt því að þær birtast í Strætó-
appinu. Strætó biður farþega af-
sökunar á þeim óþægindum sem
þetta kann að hafa valdið.“
Ellefu ný tilfelli
HIV-smits
Ellefu manns hafa á Íslandi
greinst smitaðir af HIV á þessu
ári. Það eru jafn margir og
greindust í fyrra. Þetta kemur
fram í frétt á vef RÚV.
Með bættu aðgengi að
sprautunálum hefur að sögn
Guðrúnar Sigmundsdóttur, yfir-
læknis á sóttvarnarsviði hjá emb-
ætti landlæknis, tekist að stöðva
faraldur smits sem hefur gengið
yfir á undanförnum árum. Flest
tilfelli smits verða um þessar
mundir með kynmökum.
Alþjóðlegi alnæmisdagurinn
var haldinn í gær, mánudag, í 26.
sinn. Um 35 milljónir manna eru
í heiminum smitaðar af HIV.
„Það verður íslenskt,“ Sögðu
borgarstarfsmennirnir um leið og þeir
tóku niður hið ónýta tré. DV SigtRygguR ARi
E
yjólfur Guðmundsson, rektor
Háskólans á Akureyri, segir
að um mismunun sé að ræða
með útdeilingu á 617 millj-
ónum sem veita á aukalega
til háskóla í fjárlögum næsta árs og
hefur gagnrýnt hana. Af upphæð-
inni fær Háskóli Íslands 299 milljón-
ir, Háskóli Reykjavíkur 250 milljónir
en Háskólinn á Akureyri 10 milljónir.
Eyjólfur segir þetta kúvendingu í
stefnu stjórnvalda frá því sem birtist í
fjárlögum í september. Vigdís Hauks-
dóttir, formaður fjárlaganefnd-
ar, segir útreikningana koma frá
menntamálaráðuneytinu en sam-
kvæmt Sigríði Hallgrímsdóttur, að-
stoðarmanni Illuga Gunnarssonar
menntamálaráðherra, er verið að
greiða fyrir svokallaða umframnem-
endur. Þeir séu einfaldlega fleiri í HÍ
og HR samkvæmt þeim gögnum sem
ráðuneytið hafi. Upphaflega var gert
ráð fyrir fækkun ársnema um 499 í
fjárlögum 2015 en nú eigi að greiða
fyrir þá og viðhalda þeim fjölda sem
var árið 2014. Til þess sé viðbótar-
fjármagnið.
Verið að greiða fyrir
umframnemendur
„Með þessum 617 milljónum er ver-
ið að ná þeim markmiðum að greiða
fyrir ársnemendur,“ segir Sigríður.
„Sú upphæð sem hver skóli fær
ræðst af fjölda nemenda umfram
það sem gert er ráð fyrir í fjárlaga-
frumvarpi 2015 á hvern skóla,“ en
útreikningarnir byggja á rauntölum
áranna 2012 og 2013 og áætlunum
skólanna um fjölda ársnema 2014.
„Rauntölur ársins 2012 vega 20%,
rauntölur ársins 2013 vega 60% og
áætlun fyrir 2014 vegur 20% en áætl-
unin kemur frá skólunum sjálfum.“ Í
sinni einföldustu mynd átti ríkið því
mun lengra í land með að greiða HÍ
og HR fyrir fjölda umframársnema
en HA, en bak við hvert ársgildi geta
verið fleiri en einn nemandi. Í um-
ræðunni hefur verið gagnrýnt að HR,
sem er einkarekinn skóli, fái sömu
fjárframlög og aðrir háskólar. „Um
HR gilda sömu reglur og um aðra
skóla. Þar sem skólinn er með þjón-
ustusamning við ríkið og er að sinna
sömu skyldum og aðrir háskólar.“
Endanlegar tölur, útreikningar og
útskýringar verða síðan birtar í vik-
unni.
Kúvending í stefnu
Eyjólfur segir að ráðuneytið hefði
getað stuðst við rauntölur um fjölda
nemenda við HA sem hafi verið
opin berar um miðjan október. „Strax
þar hefði komið í ljós að 80 fleiri
nemendur eru við skólann en gert
var ráð fyrir.“
Eyjólfur segir það þó ekki aðal-
atriðið heldur þá kúvendingu sem
um sé að ræða og það umhverfi sem
Háskólinn á Akureyri hafi búið við
undanfarin ár. Það sé í raun verið
að „refsa“ skólanum fyrir að halda
sig innan fjárlaga. „Í september ætl-
ar ríkisstjórnin að fækka nemenda-
ígildum sem nemur þessum umfram-
nemendum sem nú er verið að greiða
fyrir,“ segir Eyjólfur og bendir á bls.
284 í fjárlagafrumvarpinu. Þar segir:
„Í frumvarpinu er framlag til kennslu
miðað við 13.536 ársnemendur, sam-
anborið við 14.035 í fjárlögum yfir-
standandi árs. Þetta er fækkun um
499 ársnemendur eða sem nemur
3,7% og er í samræmi við áform ráðu-
neytisins um að leggja áherslu á að
viðhalda gæðum náms og þjónustu
skólanna við nemendur.“
Nú sé hins vegar verið að greiða
fyrir þessa nemendur sem Eyjólfur
segir í sjálfu sér gott mál en ómögu-
legt fyrir stjórnendur sem séu að
gera áætlanir til framtíðar.
HA mismunað
„Undanfarin ár hefur HA verið gert
að draga úr starfsemi sinni til að vera
innan fjárlaga. Farið var í sársauka-
fullan niðurskurð með því að leggja
niður tölvunarfræði og umhverf-
is- og orkufræði. Þá var líka fækkað
um 20 stöðugildi. Við höfum því ekki
getað fjölgað jafn mikið og við vild-
um vegna þessa niðurskurðar. Ef við
hefðum tekið inn fleiri nemendur
og staðið okkur verr í að halda okk-
ur innan fjárlaga hefðum við þá ver-
ið „verðlaunuð“ fyrir það núna ef svo
má að orði komast.“
upphaflega bara HÍ og HR
„Þegar þetta kemur fyrst til okkar,
sem tillaga frá menntamálaráðu-
neytinu, var bara áætlað að bæta
við fjármagni til Háskóla Íslands og
Háskólans í Reykjavík,“ segir Vigdís
Hauksdóttir aðspurð um aukafjár-
veitinguna. „Við sáum að það gengi
ekki upp að veita bara tveimur skól-
um aukalega fjármagn og sendum
tillöguna til baka í ráðuneytið og
óskuðum eftir útskýringum á þessu.
Hvers vegna aðrir háskólar væru
ekki þarna með. Það var skoðað og
við fengum síðan þessa útreikn-
inga sem birtast í breytingartillög-
um meirihlutans til baka frá ráðu-
neytinu. Þessir útreikningar eru því
alfarið á ábyrgð ráðuneytisins,“ segir
Vigdís. n
Vigdís Hauksdóttir, formaður
fjárlaganefndar Segir að upphaflega
hafi aðeins staðið til að greiða HÍ og HR
aukalega en fjárlaganefnd hafi farið fram á
að allir háskólar yrði teknir með í reikn-
inginn. MyND SigtRygguR ARi
Ásgeir Jónsson
asgeir@dv.is
„Ef við hefðum
tekið inn fleiri
nemendur og staðið
okkur verr í að halda okkur
innan fjárlaga hefðum við
þá verið „verðlaunuð“ fyrir
það núna …?
Segir HA
„refsað“
fyrir aðhald
n Eyjólfur Guðmundsson rektor n Viðbótarfjárveiting upp á 617 milljónir