Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2014, Page 10
Vikublað 2.–4. desember 201410 Fréttir
F
járfestirinn Einar Sveinsson
og fjölskylda hans hafa byggt
aftur upp viðskiptaveldi á Ís
landi í kjölfar íslenska efna
hagshrunsins. Fyrirtækin
sem þau eiga í eru kannski ekki af
sömu stærðargráðu og fyrir hrunið
2008 en þá áttu Einar og Benedikt
bróðir hans meðal annars um tíma
stóra hluti í Sjóvá, Íslandsbanka, N1
og Icelandair en samt er um að ræða
mjög traust fyrirtæki í nokkrum til
fellum.
Í síðustu viku var greint frá því
að félag í eigu Einars og sonar hans
Benedikts hefði keypt um 5 prósenta
hlut í greiðslumiðlunarfyrirtækinu
Borgun í gegnum félagið P 126 ehf.
Það félag er svo aftur í eigu félags í
Lúxemborg sem heitir Charamino
Holdings Limited sem skráð er
á Kýpur. Þetta félag, P 126 ehf., á
einnig ríflega 5 prósenta hlut í móð
urfélagi rútufyrirtækjanna Reykjavík
Excursions og Kynnisferða en fjöl
skyldur þeirra Einars og Benedikts
eiga þessi fyrirtæki í gegnum félagið
Alfa hf. DV greindi frá því í nóvem
ber síðastliðnum að rútufyrirtækin
tvö hefðu skilað samtals 240 milljóna
króna hagnaði í fyrra. Rútufyrirtækin
tvö eru þau langstærstu á markaðn
um á Íslandi.
Vitneskjan um söluna
Tengsl Einars og Benedikts við
Bjarna Benediktsson, formann Sjálf
stæðisflokksins og fjármálaráðherra,
hafa verið rædd í tengslum við frétt
ir af kaupum félags þeirra í Borgun.
Forsendan fyrir síkum kenningum er
eignarhald íslenska ríkisins á Lands
bankanum og sú staðreynd að ríkið
er með stjórnarmenn í bankanum.
Kenningar um meinta spillingu í
tengslum við söluna verða þó að telj
ast hæpnar þar til og ef frekari upp
lýsingar koma fram um viðskiptin.
Fram hefur komið að Lands
bankinn hafi ekki talið sig geta sett
ríflega 31 prósents hlut sinn í Borg
un í söluferli vegna þess að bankinn
búi ekki yfir nægjanlega greinargóð
um upplýsingum um rekstur fyrir
tækisins til þess að slíkt sé mögu
legt. Samkeppniseftirlitið meinaði
Landsbankum aðgang að ítarlegum
upplýsingum um starfsemi Borg
unar í ljósi samkeppnissjónarmiða
og má sjá að aðgangur bankans að
upplýsingum um rekstur þess sé
sá sami og allara annarra í samfé
laginu. Ástæðan er samkeppnis
sjónarmið en stærsti hluthafi Borg
unar er Íslandsbanki, annar helsti
samkeppnisaðili Landsbankans. Á
endanum var það svo Samkeppnis
eftirlitið sem knúði á um söluna þar
sem stofnunin taldi ekki æskilegt
að greiðslumiðlunarfyrirtæki væri
í eigu meira en eins fjármálafyr
irtækis.
Hvernig nákvæmlega það
gerðist að hluthafahópur
inn sem keypti hlut Lands
bankans í Borgun frétti af
því að hluturinn væri til
sölu liggur ekki fyrir. Sölu
ferlið á hlutnum var ekki
opið og áhugi Landsbank
ans á því að selja hlutinn
var ekki gerður opinber
með formlegum hætti,
til dæmis með auglýs
ingu. Líklegast má því
telja að kaupendurnir hafi
einfaldlega „frétt“ af áhuga
Landsbankans á að selja hlutinn.
Eiga þriðju skoðunarstöðina
Hluturinn í Borgun bætist við áður
nefnd hlutabréf sem Einar og fjöl
skylda hans eiga í áðurnefndum
rútufyrirtækjum.
Þá á félagið Alfa hf., móðurfélag
rútufyrirtækjanna tveggja, einnig
meirihluta í bifreiðaskoðunarfyr
irtækinu Tékklandi sem er þriðja
stærsta bifreiðarskoðunarstöð
landsins á eftir Frumherja og Aðal
skoðun. Tékkland var
stofnað árið 2009
og er því nýlegt
fyrirtæki sem
á í samkeppni
við tvö stærri
fyrirtæki.
Skoðunarfyrir
tækið skilaði
rúmlega 11
milljóna króna
hagnaði í fyrra.
Þá á P 126 ehf.
rúmlega 3
prósenta hlut í tæknifyrirtækinu
Nýherja. Einar átti hins vegar stærri
hlut í því félagi sem hann seldi til
Landsbankans í fyrra.
P 126 ehf. á einnig tæplega 40
prósenta hlut í tæknifyritækinu
Tæknivörur ehf. í Kópavogi.
Meirihlutaeigandi þess fyrirtækis
er Jón Benediktsson, bróðir Bjarna
Benediktssonar.
Stöndugt félag
Félagið sem heldur utan um hlut
Einars og fjölskyldu í Borgun
stendur ákaflega vel samkvæmt
ársreikningi þess. Það skilaði
tæplega 22 milljóna króna
hagnaði í fyrra og er með já
kvæða eiginfjárstöðu upp á á
nærri 963 milljónir króna. Fyrir
tækið hefur því ráðrúm til frekari
fjárfestingar auk þeirra viðskipta
sem það hefur nú þegar ráðist í í
Borgun, Tæknivörum og Nýherja.
Einar Sveinsson og fjölskylda
eru því sannarlega aft
ur orðin umsvifa
mikil í íslensku
viðskiptalífi þó
fjárfestingarn
ar séu ekki
af sömu
stærðargráðu
og áður. n
Byggja aftur upp
viðskiptaveldi
Einar Sveinsson og fjölskylda hans eiga í Kynnisferðum, Nýherja, Tæknivörum og Tékklandi
„Kenningar um
meinta spill-
ingu í tengslum við
söluna verða þó að telj-
ast hæpnar þar til og ef
frekari upplýsingar koma
fram um viðskiptin.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Umdeild viðskipti Kaup
félags Einars Sveinssonar á
hlutabréfum í greiðslumiðlun-
arfyrirtækinu Borgun hafa ver-
ið til umfjöllunar síðustu daga.
Félagið á hlutabréf í nokkrum
fyrirtækjum til viðbótar.
Salan tortryggð
Salan á Borgun
hefur verið tortryggð
vegna tengsla Einars
Sveinssonar við
Bjarna Benediktsson
en ekkert hefur komið
fram sem sýnir fram
á spillingu í tengslum
við söluna.
Óverjandi og
mótsagna-
kennd krafa
Farmanna og fiskimannasam
bands Íslands ályktaði á fundi
sínum um helgina um hin ýmsu
mál. Þar á meðal kjaramál sjó
manna en í ályktun sambands
ins segir að „… kröfur LÍÚ (SFS)
um kjaraskerðingu á hendur
sjómönnum séu óverjandi og í
algjörri mótsögn við einstaklega
góða rekstrarafkomu sjávarút
vegsfyrirtækja.“
Í samtali við RÚV sagði
Árni Bjarnason, forseti sam
bandsins, kröfurnar vera „út úr
kortinu“. „Árið 2009 voru skuld
ir útgerðarinnar 340 milljörð
um umfram útflutningstekjur
þess árs,“ sagði Árni í samtali við
RÚV. „Áætlun gerir ráð fyrir að í
ár verði sama staða 57 milljarð
ar sem útgerðin skuldar. Þannig
að á þessu árabili hafa skuldir
útgerðar á móti útflutningstekj
um lækkað um 280 milljarða,
þannig að ég sé ekki neinar
forsendur fyrir því að vera með
þessar gríðarlegu kröfur sem
raun ber vitni.“
Kjarasamningar sjómanna
hafa nú verið lausir í fjögur ár
en sambandið segir kröfur LÍÚ
margra ára gamlar og ekki í ein
um takti við þær aðstæður sem
séu í greininni núna.
Á fundinum gerði sam
bandið fleiri ályktanir. Meðal
annars um hvalveiðar en sam
bandið „Lýsir yfir afdráttarlaus
um stuðningi við hvalveiðar og
varar eindregið við vanmati á
þeim áhrifum sem afrán hval
stofna hefur á þá nytjastofna
sem mesta þýðingu hafa.“
Þá beinir sambandið
því til Samkeppnisstofu að
skoða hvort sala og verðlagn
ing á fiski í beinum viðskipt
um milli skyldra aðila standist
samkeppnislög.
„Vaxandi brögð eru á því að
fiskmarkaðir annist bein við
skipti milli óskyldra aðila í
gegnum fiskmarkaði, öllu jöfnu
á svipuðu verði og í gangi eru á
uppboðsmarkaði. Sá gríðarlegi
mismunur á verðlagningu sem
fram kemur á milli þessara mis
munandi ráðstöfunaraðferða
getur vart verið forsvaranlegur,“
segir í ályktuninni.
Grímur Grallari, Hafnargötu 90, 205 Keflavík, Sími: 422 7722
Verið velkominn!
Vorum að opna
nýtt kaffi og
veitingahús
Grallarinn
Opið
11:00-21:00 Mánudaga til Fimmtudaga
11:00-01:00 Föstudag
16:00-01:00 Laugardag
16:00-21:00 Sunnudag
Pizza hlaðborð í hádeginu alla virka daga frá 11:30-13:30