Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2014, Qupperneq 16
Vikublað 2.–4. desember 201416 Fréttir Erlent
Bannfærðir túlkar
í skotlínu talíbana
Túlkar sem unnu fyrir Bandaríkjamenn en voru settir á svartan lista eru í lífshættu í Afganistan
T
úlkar sem starfað hafa fyr
ir bandarísk stjórnvöld í
Afganistan eru nú hund
eltir af talíbönum og í mik
illi hættu. Fjölmargir hafa
komist til Bandaríkjanna og feng
ið hæli, en enn er stór hópur í
Afganistan sem telur sig vera í lífs
hættu. Margir túlkanna störfuðu
fyrir Bandaríkjaher og aðila þeim
tengdum, en misstu vinnuna og
voru jafnvel settir á svartan lista.
Þeir hafa því ekki getað fengið land
vistarleyfi í Bandaríkjunum.
Mikill fjöldi hefur fengið hæli í
Bandaríkjunum, en þeir störfuðu
allir fyrir The International Security
Assistance Force (ISAF). Til að
vernda þá var sett af stað sérstakt
verkefni sem átti að tryggja þeim
aðilum sem þess þurftu landvistar
leyfi í Bandaríkjunum og tilheyr
andi vernd. Sjötíu prósent þeirra
sem störfuðu fyrir ISAF, voru túlkar.
Vildi ekki öskra
Einn þeirra var Nadar. Hann starf
aði fyrir bandarísk yfirvöld, en var
rekinn og í kjölfarið færður á svart
an lista og gat því ekki lengur starf
að sem slíkur.
En þar sem hann hafði áður
unnið fyrir bandarísk yfirvöld varð
hann skotmark talíbana, sem vilja
hann feigan og segja hann svikara.
Honum, og mörgum öðrum,
er því hvergi vært. Túlkarnir segja
að í sumum tilfellum sé vissulega
ástæða fyrir brottrekstri þeirra, en
bannfærslan sé þess eðlis að hún
sé í raun dauðadómur fyrir þá.
Nadar var rekinn eftir að hann
neitaði að fylgja fyrirmælum þeirra
sem hann var að túlka fyrir og öskra
á hóp afganskra kvenna.
Engin störf – nokkru sinni
Svarti listinn virkar þannig að á
honum eru nöfn einstaklinga sem
tengjast talíbönunum. Listinn var í
upphafi þannig að hægt var að rekja
ferðir og upplýsingar um einstak
linga sem tengdust uppreisnar
mönnum og glæpamönnum. Nú
er á honum að finna upplýsingar
eins og fingraför og úr augnskanna.
Einstaklingar sem eru á listanum
geta aldrei fengið vinnu hjá banda
rískum stjórnvöldum, né öðr
um erlendum aðilum sem starfa í
Afganistan. Þeir geta heldur ekki
fengið opinber störf hjá afgönsk
um stjórnvöldum. Þá fá þeir ekki að
ferðast flugleiðis. Mennirnir eru því
upp til hópa atvinnulausir og jafn
vel eina fyrirvinnan í stórum fjöl
skyldum og komast hvergi.
Aðrir sem eru á téðum lista, eða
hafa verið bannfærðir, gerðu mis
tök í starfi. Einhverjir tóku með sér
farsíma í eftirlitsferðir, en það var
bannað þar sem þeir voru sagð
ir geta þannig komið upplýsing
um til talíbana um hvar bandarísk
ir hermenn væru. Annar gleymdi
að skilja eftir hermannabuxur sem
hann hafði fengið lánaðar á her
stöð. Hann var rekinn, þar sem
buxurnar hefðu getað ratað til talí
bana sem hefðu þá átt auðvelt með
að dulbúast sem bandarískir her
menn.
Féllu á lygamæli
Nokkrir túlkar féllu á prófinu þegar
þeir voru látnir undirgangast lyga
mæli. Lygamælar þykja almennt
ekki mæla lygar, heldur aðeins
breytingar á líkamsstarfsemi þess
sem er mældur, álagsbreytingar.
Allir túlkarnir þurftu reglulega að
undirgangast lygapróf. Það var gert
til að reyna að finna þá sem þóttu
vera hliðhollir talíbönum. Einn
túlkanna sem voru reknir á grund
velli slíkra mælinga, Sayid, segist
hafa fallið á prófinu þar sem hann
var taugaveiklaður. Hann var rek
inn eftir sjö ára starf hjá banda
rískum og kanadískum aðilum.
„Ef þeir [talíbanarnir] fyndu mig í
Kabúl myndu þeir ræna mér, pynta
mig, og þeir myndu afhausa mig,
þú veist, hálshöggva mig,“ segir
Sayid. Mennirnir segjast ekki eiga
þessa meðferð skilda. Þeir hafi skil
að sínu, farið í erfið verkefni með
bandarískum stjórnvöldum.
Gríðarleg skriffinska
Um 9.000 einstaklingar sem störf
uðu fyrir bandarísk stjórnvöld hafa
fengið landvistarleyfi í Bandaríkj
unum, en hægt verður að sækja um
leyfin til ársins 2015. Breski grínist
inn John Oliver sýndi fram á hversu
erfitt það er að sækja um landvist
arleyfi í þætti sínum fyrr á þessu
ári. Hann benti á þá skriffinsku sem
liggur að baki hverju leyfi og hversu
flókið kerfið er.
Bandarísk stjórnvöld segjast
nota þetta sérstaka kerfi fyrir land
vistarleyfi til að verðlauna þá
sem studdu þá á erfiðum tímum
í Afganistan, og lögðu sig í mikla
hættu til þess að aðstoða þau. BBC
greinir frá því að einstaklingar sem
voru reknir úr starfi komi til með
að eiga mjög erfitt með að fá land
vistarleyfi. Mennirnir segja að með
þessu séu þeir í gríðarlegri hættu.
Þeir búa flestir í Kabúl, þar sem
talíbanar hafa hvað minnst ítök, en
óttast samt um líf sitt.
Óhemjugangurinn bjargaði
lífi hans
Nadar þekkir ógnina vel, en hann
hefur verið í felum í þorpi skammt
frá Kabúl í langan tíma. Í vor var
hann heima hjá sér þegar dyrabjöll
unni var hringt – mjög harkalega.
Hann fór til dyra þar sem tveir menn
náðu taki á honum og drógu hann út
af heimili hans. Þeir fóru með hann
að kirkjugarði. „Þegar ég áttaði mig
á því að þeir ætluðu að draga mig
í burtu og drepa mig byrjaði ég að
öskra, garga og berjast um,“ segir
hann. Bróðir hans fór á eftir víga
mönnunum en þegar hann kom að
Nadar höfðu þeir þegar skotið hann.
Þeir hittu hins vegar ekki betur en
svo að skotið hæfði fót hans. Víga
mennirnir lögðu á flótta og óhemju
gangurinn varð Nadar til lífs.
Hann segist mjög hræddur um
sig og sína. „Eini staðurinn þar sem
mér leið vel var heimili mitt, nú er
það vígvöllur,“ segir hann. „Við þruf
um að finna leið svo að við séum
ekki í svona mikilli hættu og bjarga
lífi okkar.“ n
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Hræddir Margir túlkar hafa fengið líflátshótanir frá talíbönum.
Engin von Nadar segist hvergi eiga griðastað lengur.
„Ef þeir fyndu
mig í Kabúl
myndu þeir ræna
mér, pynta mig, og
þeir myndu afhausa
mig, þú veist, háls-
höggva mig.
Afganistan Mennirnir
störfuðu fyrir bandarísk
stjórnvöld í Afganistan.
Fimmtíu
vígamenn í
valnum
Al Arabiya greindi frá því að
fimmtíu vígamenn Íslamska rík
isins, hið minnsta, hefðu fallið
í bænum Kobane í Sýrlandi um
helgina.
Sýrlenska mannréttinda
vaktin greindi frá því að fimm
mannanna hefðu verið sjálfs
vígsárásarmenn. Þetta ku þetta
vera eitt mesta mannfall sem
orðið hefur síðan ráðist var á
bæinn í september. Bandaríkja
menn gerðu hið minnsta þrjá
tíu loftárásir í héraðinu Raqqa á
laugardag.
Piparúði með
skordýraeitri
Þúsundir mótmælenda úr röð
um lýðræðissinna komust í
gegnum víglínu lögreglusveita í
Hong Kong á sunnudagskvöld.
Nokkrum klukkustundum síðar
tókst lögreglunni að flæma mót
mælendur úr neðanjarðargöng
um þar sem þeir höfðu komið
sér fyrir.
Lögreglumenn beittu kylfum,
lögregluhundum og sérstak
lega sterkum piparúða sem er
sagður innihalda skordýraeitur.
Flestir mótmælendanna eru
háskólanemar og krefjast þess
að fá að kjósa sér framtíðarleið
toga í lýðræðislegum kosning
um án aðkomu kommúnista
flokks Kína.
Aldrei
verið hlýrra
Bandaríska haf og loftslags
stofnunin (NOAA) segir að allt
bendi til þess að árið 2014 verði
það heitasta í 130 ár, eða síðan
mælingar hófust. Þetta kemur
fram í nýrri skýrslu frá stofnun
inni. Fram kemur að maí, júní,
ágúst, september og október í
ár hafi þeir heitustu sem mælst
hafa. Frá janúar og fram í
október var meðalhiti 0,68 gráð
um hærri en meðalhiti á síðustu
öld, en þá var hitinn 14,1 gráða
að jafnaði.