Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2014, Blaðsíða 17
Vikublað 2.–4. desember 2014 Fréttir Erlent 17
V
ið viljum að útlendingar hætti
að hugsa um Taíland sem
barnaverksmiðju,“ segir taí-
lenski stjórnmálamaðurinn
Wallop Tungkananurak. Löggjafar-
þing Taílands hefur hafið smíð frum-
varps sem bannar staðgöngumæðrun
gegn greiðslu. Þeir sem hafa milli-
göngu um slíkt gætu sætt allt að tíu
ára fangelsi nái frumvarpið að verða
að lögum. Talsvert hefur verið um
staðgöngumæðrun, það er þegar
konur fá greitt fyrir að ganga með
barn fyrir foreldra sem geta ekki eða
velja að ganga ekki sjálf með barnið.
Í slíkum tilfellum er frjóvguðu eggi
komið fyrir í legi konu sem gengur
svo með barnið. Konan er því ekki
blóðtengd barninu og eftir fæðinguna
taka blóðforeldrar barnsins við því og
staðgöngumóðirin fær greitt.
Í raun var þessi tegund stað-
göngumæðrunar bönnuð í Taílandi,
en þrátt fyrir það höfðu læknar farið
fram hjá reglugerðum þar að lútandi.
Staðgöngumæðrun í velgjörðar-
skyni, það er þegar staðgöngumóðir-
in fær ekki greitt, er heimil. Í ár hafa
komið upp nokkur staðgöngumæðr-
unarmál í Taílandi sem eru afar um-
deild. Skemmst er að minnast stað-
göngumóður sem gekk með tvíbura
fyrir ástralskt par. Annað barnið, lítil
drengur, Gammy, reyndist vera með
Downs-heilkenni og vildu blóðfor-
eldrar hans ekki taka við honum eft-
ir fæðinguna og fóru frá Taílandi
með systur hans. Gammy varð eftir
og gekk staðgöngumóðirin honum
í móðurstað. Eftir að mál Gammys
komst í hámæli var tekið strangt á
staðgöngumæðrun. Eru því margir
foreldrar í slæmri stöðu í Taílandi
þar sem þeir fá ekki að yfirgefa landið
með börnin sín. Taílensk stjórnvöld
segja það ekki geta viðgengist að
landið sé eins og barnaverksmiðja
og þangað komi túristar og sæki sér
börn. n
Taíland er ekki barnaverksmiðja
Stjórnvöld taka á staðgöngumæðrun gegn greiðslu
Gammy og móðir hans Gammy var
skilinn eftir á Taílandi hjá staðgöngumóður
sinni.
1
20 konur sem störfuðu áður sem
vændiskonur nærri bandarískri
herstöð í Suður-Kóreu hafa tek-
ið sig saman og stefnt yfirvöld-
um og krefjast miskabóta. Kon-
urnar segja suðurkóresk yfirvöld hafa
haft milligöngu um vændi og að það
hafi leitt til þess að þær búi nú við
sára fátækt eftir því sem þær eldast.
BBC greinir frá málinu, en í um-
fjölluninni kemur fram að konurnar
búa allar við mikla fátækt í ellinni.
Þær krefjast þess að fá um tíu þús-
und bandaríkjadali dollara hver í
skaðabætur. Konurnar störfuðu allar
í litlu þorpi sem byggðist upp í kring-
um herstöð í borginni Uijeongbu. Þar
var mikið skemmtanalíf og voru kon-
urnar í miklum samskiptum við her-
mennina. Þær segja stjórnvöld hafa
átt frumkvæðið að þessum samskipt-
um og að þeim hafi verið sagt að „gera
þá hamingjusama“ og „halda þeim
góðum“.
„Ættu að koma til móts við
okkur“
„Við unnum allar nætur. Ég vil að
kóresk stjórnvöld átti sig á því að þeir
sköpuðu þetta ástand og þeir ættu
að koma til móts við okkur,“ segir ein
þeirra við blaðamann BBC. Konurnar
segjast ekki hafa verið neyddar í
vændi, en þar sem að stjórnvöld hafi
sett upp eftirlitskerfi með þeim og
fylgst með kynheilsu þeirra hafi þeir
verið samsekir og búið til kerfi sem
studdi við vændið. Þær voru sendar á
tungumálanámskeið í ensku og lærðu
„vestræna siði“. Þær segja stjórnvöld
hafa stutt dyggilega við vændið. Það
hafi verið gert að atvinnugrein sem
virtist vera aðlaðandi fyrir konur sem
bjuggu við fátækt og erfiðar aðstæður.
Þegar þær voru komnar inn í þenn-
an heim hafi reynst erfitt fyrir þær að
losna. Þær hafi orðið fastar í viðjum
melludólga. Í einhverjum tilfellum
hafi þær þurft að fá lánaða peninga
frá kráar- og skemmtistaðaeigendum
og átt erfitt með að losna úr skulda-
feni.
„Ég fór árið 1972 til atvinnu-
miðlunar og ráðgjafinn bað mig að
standa upp og setjast svo aftur nið-
ur. Hann skoðaði mig gaumgæfilega
og bauð mér svo vinnu sem myndi
koma þaki yfir höfuðið á mér og afla
mér matar. Ég myndi vinna en allt
annað væri í höndum atvinnurek-
andans,“ segir ein konan sem starfaði
sem vændiskona lengi vel. Hún er nú
í sömu stöðu og aðrar konur, á erfitt
með að sjá sér farborða.
Vissu hvað var að gerast
Konurnar segja að stjórnvöld hafi vel
vitað hvert stefndi. Mikilvægt hafi ver-
ið fyrir þjóðarbúið að fá gjaldeyri inn í
landið og að hermennirnir hafi greitt
í dollurum. Peningar kvennanna hafi
verið vel þegnir, en komið var fram
við konurnar af miklu virðingarleysi.
Þær þóttu ekki vel þokkaðar og miklir
fordómar fylgdu starfinu. „Við vorum
sagðar vera sannir þjóðernissinnar –
harðduglegar suðurkóreskar konur.
Vinnan á skemmtistöðunum tryggði
flæði af dollurum. Við fengum líka
mikið af gjaldeyri,“ segir ein konan. n
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
„Hann skoðaði mig
gaumgæfilega og
bauð mér svo vinnu sem
myndi koma þaki yfir
höfuðið á mér og aflaði
mér matar.
Segja stjórnvöld hafa stuðlað að vændi og skapað fátæktargildrur
„Við unnum
allar nætur“
Vilja bætur
Konurnar telja að
kóresk stjórnvöld
skuldi þeim afsök-
unarbeiðni fyrir að
hafa stuðlað að
vændisstarfsemi
við herstöðvar. Mynd
ShutterStock Aftur
sprenging
í Malmö
Á sunnudagskvöldið gerðist
það í annað sinn á þessu ári að
sprengja sprakk við aðalinn-
ganginn í héraðsdómshúsinu
í Malmö. Skömmu fyrir mið-
nætti sprakk öflug sprengja sem
braut rúður í nálægum húsum
auk þess sem framhliðar þeirra
tveggja húsa sem næst standa
skemmdust.
Fram hefur komið í sænsk-
um miðlum að vitni hafi séð fólk
koma fyrir hlut við innganginn,
skömmu áður en sprengjan
sprakk. Fólkið hljóp á brott eftir
að hafa komið hlutnum fyrir. Í
febrúar varð svipað atvik á sama
stað en ekki liggur fyrir hverjir
stóðu að verknaðinum.
Misnotaði
alvarlega
veik börn
Barnalæknir í Cambridge í Bret-
landi hefur verið dæmdur til 22
ára fangelsisvistar eftir að hafa ver-
ið fundinn sekur um að hafa beitt
18 alvarlega veik börn kynferðis-
legu ofbeldi.
Maðurinn, Myles Bradbury,
sem er 41 árs eiginmaður og fað-
ir, játaði á sig 25 brot og gekkst við
því að eiga rúmlega 16 þúsund
ósæmilegar myndir af börnum.
Fórnarlömbin 18, drengir á
aldrinum 10 til 16 ára, voru mörg
hver alvarlega veik; með hvít-
blæði, dreyrasýki, svo eitthvað sé
nefnt.
Dómarinn mat það til refsi-
lækkunar að maðurinn játaði brot
sín skýlaust. Á það hefur verið
bent að sönnunargögnin hafi ver-
ið svo afdráttarlaus að honum hafi
ekki verið stætt á öðru. „Að læknir
skuli ráðast á börn og misnota þau
kynferðislega er eins gróft brot og
hugsast getur,“ sagði dómarinn við
dómsuppkvaðninguna.
Fra
Hyrjarhöfði 2 - 110, Reykjavík / s: 848 7007 og 776 8600 / www.glerpro.is / glerpro@gmail.com
Allar viðgerðir á framrúðum
eru
bíleiganda að kostnaðarlau
su.
Vinnum fyrir öll tryggingaf
élög.