Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2014, Síða 28
Vikublað 2.–4. desember 201428 Lífsstíll
Fullnæging
læknar þig
Næst þegar þú finnur fyrir verkj
um og langar mest að hvolfa í þig
verkjatöflum prófaðu þá aðra og
skemmtilegri aðferð. Samkvæmt
fjölda rannsókna er fullnæging
„kraftaverkalausn“ að heilbrigði
og jafnvægi.
Höfuðverkur
Næst þegar þú þjáist af hausverk
teygðu þig þá í makann í stað lyfja
skápsins. Samkvæmt rannsókn
frá 2013, sem birtist í tímartinu
Cephalalgia, minnkar hausverkur
við fullnægingu alveg sama hver
bólfélaginn er, kynlífstelling eða
hvers kyns ástarleikur, svo lengi
sem þú færð fullnægingu.
Hiksti
Langvarandi hiksti getur haft
slæm áhrif á andlegu heilsuna.
Í rannsókn frá árinu 2000, sem
birtist í tímaritinu Canadian
Family Physician, getur full
næging læknað þig af langvinn
um pirrandi hiksta.
Morgunógleði
Kynlíf orsakaði morgunógleðina
en kynlíf getur einnig læknað
hana. Allavega ef
marka má sál
fræðinginn
Gordon Gallup
við SunyAl
banyháskólann
í Bandaríkjun
um. Í rannsókn
um Gallup frá 2012 kemur fram
að sæði hins verðandi föður geti
læknað morgunógleðina. Lík
ami konunnar reynir að losa sig
við hið frjóvgaða egg með upp
köstum en ef hún kyngir sæðinu
byggir líkami hennar upp þol
gagnvart því.
Túrverkir
Þegar kona fær fullnægingu eykst
blóðflæði hennar sem skilar sér
í minni túrverkjum. Bandaríski
kynlífsfræðingurinn Judith Golden
hvetur konur sem ekki vilja stunda
kynlíf þegar þær eru á blæðingum
og fullnægja sér sjálfar.
Þ
etta hefur mikla þýðingu fyrir
okkur og er mikilvægt í allri
þessari vöruþróun sem við
erum í, sem er kostnaðarsöm,“
segir Guðmundur Jörundsson, yfir
hönnuður hjá fatamerkinu JÖR, en
fyrirtækið fékk í síðustu viku 1,5 millj
óna króna styrk frá Hönnunarsjóði
Auroru til hönnunar á haustlínu fyr
irtækisins og til kynningar og mark
aðssetningar vörumerkisins erlendis.
„Við erum að hefja sókn erlendis
og þetta er frábært til þess. Það er ekki
mikið um styrki en þetta er mjög snið
ugt hjá Aurora því þau fylgja verkefn
unum eftir. Við fengum til að mynda
líka styrk frá þeim fyrir ári. Það er gott
fyrir bransann að einhver merki nái
í gegn erlendis.“ Hönnun á línunni
er hafin og verður hún frumsýnd á
Reykjavík Fashion Festival í mars á
næsta ári, að sögn Guðmundar.
„Við stefnum á Evrópumarkað
og þá aðallega Bretland. Við erum
komin með ákveðið tengslanet þar
sem skýrist betur á næsta ári. Stefn
an núna er fyrst og fremst að komast
inn í lykilverslanir sem verður flott
fyrir okkur að vera inni í til að byrja
með. Í framhaldinu verður svo hægt
að fókusa þetta betur eftir markaðs
svæðum.“
JÖR var stofnað árið 2012 af þeim
Guðmundi og Gunnari Erni Petersen,
lögfræðingi og framkvæmdastjóra, og
hefur hönnunin lagst vel í Íslendinga.
Í upphafi var eingöngu um karl
mannsfatnað að ræða en fyrirtækið
hannar nú einnig kvenfatnað. n
solrun@dv.is
JÖR hefur sókn erlendis
Fékk styrk frá Hönnunarsjóði Aurora til verkefnisins
Í útrás Guðmundur
segir fyrirtækið stefna
á Evrópumarkað, þá
aðallega Bretland.
Þ
egar þú gengur í gegnum
skilnað virðast allir og amma
þeirra hafa skoðun á mál
inu. Þú færð spurningar eins
og hvort þú hafir ígrundað
þetta nógu vel þegar sannleikurinn
er sá að þú hefur ekki leitt hugann
að neinu öðru síðustu mánuðina en
hvernig skilnaðurinn muni koma
niður á fjölskyldunni. Samkvæmt
lesendum tímaritsins Huffington
Post getur enginn sett sig spor þess
sem gengur í gegnum skilnað nema
reyna það á eigin skinni. Hér eru 16
algengar mýtur varðandi skilnað en
listinn er byggður á reynslu lesenda
Huffington Post.
1 „Þú hristir þetta af þér“Þeir sem ekki hafa reynsluna
telja að það sé ekkert mál að komast
yfir skilnað. Það er hins vegar ekkert
auðvelt. Þú ert í rauninni að syrgja
einstakling sem þú elskaðir og heilt
ástarsamband.
2 „Ég var líka að hætta með kærustunni“
Svo eru það þeir sem halda að það að
hætta með kærasta/kærustu sé það
sama og að skilja við maka. Það fólk
hefur aldrei verið gift. Því fer fjarri að
það sé sambærilegt.
3 „Ég ætla aldrei skilja“Fólk elskar að segja þér að
skilnaður sé einfaldlega ekki fyrir
það, eins og það sé slæmur hlutur
og eitthvað til að skammast sín fyr
ir. Sannleikurinn er sá að stundum er
skilnaður besta lausnin.
4 „Þið reynduð ekki nóg“Ein algengasta mýtan er sú
að parið hafi ekki reynt nógu mik
ið. Þessi fullyrðing kemur oftast frá
einhverjum nýgiftum eða einhverj
um sem hefur aldrei gengið í það
heilaga.
5 „Skilnaður er smitandi“Sumir halda virkilega að skiln
aðir séu smitandi. Margir varast að
umgangast nýskilið fólk af ótta við að
skilja sjálfir.
6 „Reyndu betur,
fyrir börnin“
Margir telja að
hjón ættu að
halda áfram að
vera gift fyrir börn
in. Börn vilja að foreldrar þeirra séu
hamingjusamir.
7 „Greyið þú“Margir hafa áhyggjur af þér eft
ir skilnað. Líkur eru á að þú hafir ekki
haft það jafn gott síðustu þrjú árin.
8 „Honum að kenna“Margir eiga eftir að leita að
sökudólgi. Sannleikurinn er hins
vegar sá að fólk getur þroskast í
sundur.
9 „Nú verður
djammað“
Sumir halda
að skilnaður sé
ástæða til að lyfta
sér upp. Sá nýskildi
er ekkert endilega sammála. Það síð
asta sem hann vill er að fagna.
10 „Lífið byrjar núna“Margir halda að um leið og þú
skrifar undir skilnaðarpappírana sé
það versta yfirstaðið. Allar líkur eru
hins vegar á því að þú sért að syrgja
makann líkt og ef hann hefði
dáið. Ef hann hefði dáið
hefðir þú allavega fólkið þitt
í kringum þig. Ef þú skilur
hringir varla sála.
11 „Ekkert stórmál“Fjöldi fólks mun örugglega
halda að þú hafir hvort sem er aldrei
verið ánægð í hjónabandinu.
12 „Hættu þessu væli“Fólk mun hneykslast yfir því
að þú sért ennþá að velta þér upp úr
skilnaðinum.
13 „Skilin, búið, bless“Margir halda að skilnaðurinn
gangi í gegn á örfáum mánuðum en
oft getur það tekið afar langan tíma.
14 „Sá særðasti vælir hæst“Margir eiga til að gleyma að
það eru tvær hliðar á öllum pening
um. Þeir sem hafa sem hæst
um skilnaðinn eru ekki alltaf
þeir sem líður verst. Margir
eiga auðvelt með að fela til
finningar sínar.
15 „Aftur á markaðinn“Vinir þínir eiga eflaust eftir að
reyna að koma þér á stefnumót. Það
getur hins vegar vel verið að þú sért
ekki tilbúin/n í slíkt strax.
16 „Helv… fyrr
-verandi“
Margir eiga eftir
að ganga út frá
því að þú þol
ir ekki og jafn
vel hatir þinn/þína
fyrrverandi. Líklegra er
að þér þyki ennþá vænt um mann
eskjuna sem var svo stór hluti af
þínu lífi.
Algengar
mýtur um
skilnað
Ólíklegasta fólk virðist hafa skoðanir á skilnaði annarra
Varstu að skilja? Líklega hafa margir skoðun á skilnaðinum.
Ekki skola
kjúkling
Sumir telja nauðsynlegt að skola
kjúkling upp úr rennandi vatni
áður en þeir matreiða hann og
telja að þannig séu minni lík
ur á salmónellu eða kampýló
bakteríusmiti. Það er hins vegar
mikill miskilningur. Með því að
skola kjúklinginn gerir þú nefni
lega illt verra, ef svo ólíklega vill
til að einhverjar bakteríur séu í
kjúklingnum. Við skolunina er
líklegt að þú dreifir blóðvökva úr
kjúklingum um eldhúsið þitt. En
bara með því að láta vatnið renna
á hann getur það slest í um metra
radíus í kringum vaskinn. Þá eru
einnig meiri líkur á því að blóð
vökvinn lendi á eldhúsáhöldum
og klínist á þig.