Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2014, Side 29
Vikublað 2.–4. desember 2014 Lífsstíll 29
„Hægt að finna
allt þarna inni“
n Áslaug stofnaði hópinn Beauty Tips n Konur ræða málin og fá ráð frá kynsystrunum
Þ
að var svo algengt að stelp-
ur væru að spyrja um hin
ýmsu ráð á fatasíðum, ekki
endilega um föt, þannig
mér datt í hug að búa til
síðu þar sem væri hægt að spyrja
um alls konar stelpumál,“ segir Ás-
laug María Agnarsdóttir, stofnandi
Facebook-hópsins Beauty Tips sem
er orðinn að tæplega þrettán þús-
unda kvenna samfélagi, þar sem
konur á öllum aldri skiptast á ráð-
um um allt milli himins og jarðar.
Allt frá því hvaða kjól þær eiga að
kaupa upp í þunglyndi, einelti og
erfiðari máli. „Fyrst voru þetta bara
förðunarráð en núna er hægt að
finna allt þarna inni,“ bætir hún við.
Engar reglur í fyrstu
Síðuna bjó Áslaug til í mars á þessu
ári og byrjaði á því að bjóða ein-
göngu vinkonum sínum í hópinn,
en sagði þeim að bjóða fleiri stelp-
um að vera með. „Þetta byrjaði
mjög vel og strax fyrsta kvöldið var
komið inn mikið af pósti þar sem
stelpur voru að biðja um alls kon-
ar ráð. Fyrst voru engar reglur eða
neitt og allt mjög frjálslegt, en þegar
það fóru að koma upp deilur varð
að taka á því,“ útskýrir Áslaug sem
settist þá niður og bjó til nokkr-
ar grundvallarreglur fyrir hópinn,
í samráði við fleiri. Eftir kosningu
innan hópsins var til að mynda tek-
in ákvörðun um að strákar væru
ekki velkomnir þangað inn, því
stelpur voru feimnari við að setja
inn spurningar þegar strákar fylgd-
ust með. „Það hafa nokkrir strák-
ar beðið um undanþágu til að vera
með í hópnum vegna brennandi
áhuga á hárgreiðslu, förðun, tísku
og fleiru, og eru virkir þar með góð
ráð eða spurningar.“ Þrír strákar eru
í hópnum í dag, að sögn Áslaugar.
„Með tímanum hafa svo bæst við
fleiri nýjar reglur til að halda þessu
á góðu nótunum. Stærsta vanda-
málið er líklega að fólk er stundum
að taka skjáskot af umræðum á síð-
unni og birta annars staðar. Sumir
segja að þú eigir ekki að setja eitt-
hvað á síðuna ef þú vilt ekki að það
fréttist, en mér finnst að fólk geti
bara alveg sleppt því að taka skjá-
skot og þess vegna er sú regla í gildi,
að það sé bannað,“ útskýrir Áslaug.
2.000 inngöngubeiðnir
einn daginn
Það hvarflaði ekki að henni þegar
hún stofnaði hópinn að hann yrði
að svona stóru samfélagi, en það er
töluverð vinna að halda síðunni úti.
Í fyrstu þurfti hún til að mynda sjálf
að samþykja alla sem óskuðu eftir
inngöngu, en nú hefur hún feng-
ið aðstoðarmenn. „Ég er ótrúlega
gjörn á að koma mér í svona sjálf-
boðastarf,“ segir Áslaug hlæjandi.
„Ég er fegin að vera bara að vinna
núna, en ekki líka í skóla. Þetta er
nánast full vinna.“ Hún segir verk-
efnið hafa orðið örlítið yfirþyrm-
andi þegar hún var tölvulaus í
nokkra mánuði og þurfti að sjá um
síðuna í gegnum farsímann sinn.
„Það voru næstum því tvö þúsund
inngöngubeiðnir einn daginn og
eftir þrjá daga var ég ekki komin
niður fyrir fimmtán hundruð. Það
bættist alltaf í hópinn. Í dag eru
þetta um hundrað til tvö hundruð
beiðnir á dag.“
Þarf að fylgjast með
umræðunni
Í Beauty Tips-samfélaginu lifa
flestar konurnar í sátt og samlyndi,
skiptast á ráðum og fróðleik, en
það kemur þó einstaka sinnum fyr-
ir að einhverjar kunna sig ekki. Þá
fær Áslaug yfirleitt tilkynningar um
óviðeigandi hegðun og hendir við-
komandi út úr hópnum. „Þegar tólf
þúsund stelpur koma saman og tjá
sig mjög mikið þá þarf að fylgjast
með og passa ýmislegt. Ég hef al-
veg þurft að eyða vafasömum þráð-
um, enda er stundum verið að fjalla
um viðkvæm málefni.“ Áslaug segir
konurnar í hópnum tjá sig mismik-
ið og sumar séu mun opnari en aðr-
ar um persónuleg mál. „Svo lengi
sem umræðan særir ekki aðra, eins
og til dæmis með rasisma, þá er
mér sama hvað talað er um.“
Vill ekki gera meira úr þessu
Vegna þess hve hópurinn er orðinn
stór og hve mikla vinnu tekur að
halda síðunni úti, þá hafa margir
bent Áslaugu á að færa út kvíarn-
ar á einhvern hátt og gera meira úr
þessu. Sjálfri finnst henni þess ekki
þurfa. „Mér finnst þetta fínt eins og
þetta er, finnst ekki þurfa að gera
meira úr þessu. Það var um tíma
hugmynd um einhvers konar kvöld
þar sem við gætum hist, en það
virtist ekki mikill áhugi fyrir því. En
það er alveg mögulegt að það verði
gert síðar.“
Ræða erfið vandamál
Áslaug er ótrúlega ánægð með við-
brögðin við Beauty Tips og finnst
mjög jákvætt að svona samfélag
gangi jafn vel og raun ber vitni.
Það hafi verið þörf á vettvangi fyr-
ir konur til að tjá sig á þennan hátt.
„Það hafa margar sagt frá erfið-
um vandamálum og fengið yndis-
leg ráð frá kynsystrum sínum. Það
vakna stundum upp spurningar
um af hverju stelpurnar ræða ekki
erfið mál við vinkonur sínar, en
það eru bara ekkert allar sem eiga
góðar vinkonur, eða finnst bara
betra að ræða við einhverja aðra.
Þá er þetta bara frábært. Einu sinni
þá póstaði stelpa því að hún þjáð-
ist af svo miklu þunglyndi að hún
kæmi sér ekki út og þá voru ókunn-
ugar stelpur sem buðu henni að
koma með sér í Kringluna og rækt-
ina, og vildu hjálpa,“ segir Áslaug
sem er að vonum sátt með hvernig
hópurinn hefur þróast á jákvæðan
hátt. n
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
„Það hafa
margar sagt frá
erfiðum vandamálum og
fengið yndisleg ráð frá
kynsystrum sínum.
Samfélagið vatt upp á sig Það hvarflaði ekki að Áslaugu þegar hún stofnaði hópinn
Beauty Tips í mars á þessu ári, að hann ætti eftir að verða jafn stór og raun ber vitni.
Mynd KRiStjín jónSdóttiR/Kj PhotogRaPhy
Nýtt sjálfstætt
starfandi apótek
í Glæsibæ
Opnunartími
Virka daga: 8:30 til 18:00
Laugardaga: 10-14
Okkar markmið er að veita þér og þínum
framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf