Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2014, Blaðsíða 31
Vikublað 2.–4. desember 2014 31
V
ið elskuðum öll Guns n'
Roses. Hvernig var annað
hægt? Við vissum jú ekki
um það sem koma skyldi;
rifrildin, barsmíðarnar,
Chinese Democracy. Þetta lofaði svo
góðu. Appetite for Destruction var jú
besta rokkplata síðan Bollocks, síðan
Exile, jafnvel nokkurn tímann. Það
var sumarið 1988 að ég safnaði dós-
um til að kaupa mér eintak. Ég var að
komast á unglingsár og Axl og Slash
kenndu mér að það var töff að reykja
og drekka. Þetta voru stóru bræðurn-
ir sem ég átti aldrei í raun. Árið eft-
ir sátu bæði Appetite og Lies inni á
topp fimm Billboard-listans. Og síð-
an heyrðist ekki neitt. Heil eilífð virt-
ist líða, sem var þó ekki nema augna-
blik miðað við það sem koma skyldi.
Líklega muna allir hvar þeir voru
þegar myndbandið við You Could
Be Mine úr myndinni Terminator 2
var fyrst frumsýnt á MTV nótt eina
sumarið 1991. Það var ekki bara ein
ný Gönsenn-plata á leiðinni, heldur
tvær. Ekkert var of stórt eða of viða-
mikið, sum lög slöguðu upp í 10 mín-
útur, hér var kántrí, hér var rapp og
hér var klassískt rokk af bestu gerð.
Heróín í gólfteppinu
Trommuleikarinn Steven Adler hafði
verið rekinn, að sögn eftir að hafa
reykt teppið sitt í von um að finna í
því heróínköggla og Matt Sorum var
kominn í staðinn. Verra var að Izzy
Stradlin, einn helsti lagahöfund-
ur sveitarinnar, hætti í kjölfarið. En
það kom ekki að sök, Gilby Clarke
sem kom í staðinn virtist ágætis ná-
ungi og rétt eins og Izzy sótti hann
innblástur sinn til Keith Richards.
Hættulegasta hljómsveit í heimi hélt
sínu brambolti áfram.
Það var svo einn dimman eftir-
miðdag í Fellahelli sumarið '92 að
ljóst var að eitthvað hafði breyst. Tíu
bílskúrsbönd komu fram og fimm
af þeim spiluðu Smells Like Teen
Spirit. Grönsjið kom í staðinn fyrir
leikvangarokkið eins og pönkið hafði
gert 15 árum fyrr. Niðurlægingar-
tímabil Gönsenn hófst, tímabil sem
enn sér ekki fyrir endann á. Fyrir
jólin 1993 kom tökulagaplatan The
Spagetti Incident? sem átti að stytta
okkur stundir þangað til næsta raun-
verulega plata kæmi. Sú bið yrði
lengri en nokkurn óraði fyrir. Við
reyndum að gera okkur sólóplöturn-
ar að góðu. Izzy var með kántrírokk
og hljómaði meira eins og Ron Wood
en Keith Richards. Bassaleikarinn
Duff fékk vini sína til að spila með
sér á Believe in Me og bætti upp
skortinn á hæfileikum með ástríðu,
enda pönkarinn í bandinu. Slash var
með meira gítargutl í hljómsveitinni
Snake pit en stóð illa einn síns liðs,
enda sá eini í bandinu sem söng
aldrei. Það var helst að Gilby væri
með lífsmarki, enda komu flestir
meðlima fyrir á sólóplötu hans Pawn
Shop Guitars. Hann sást næst dæma
Magna úr leik í Rock Star Supernova
Sænskur tollvörður bitinn í lærið
Jólin 1994 kom útgáfa af Stones
laginu Sympathy for the Devil í
myndinni Interview with the Vamp-
ire. Þetta reyndist vera í síðasta sinn
sem þeir Axl og Slash spiluðu saman.
Brátt hættu þeir að talast við og hvert
áfallið af öðru dundi yfir. Slash hætti,
síðan Duff og Sorum og Clarke voru
reknir.
Hljómsveitin hætti þó ekki að
vera til, og árið 1999 kom nýtt lag, í
þetta sinn úr myndinni End of Days.
Lagið heitir Oh My God og var tek-
ið upp með aðstoð meðlima Nine
Inch Nails, það sótti í „industrial“-
stefnuna sem þá var í tísku og var hið
ágætasta. Enn var von, enda átti þetta
að vera forsmekkur að hinni væntan-
legu plötu Chinese Democracy.
Árin liðu. Hljómsveitin byrj-
aði aftur að spila opinberlega upp
úr 2001 og ég var svo heppinn að
sjá þá í Finnlandi fimm árum síðar.
Tónleikarnir hófust tveim tímum of
seint eins og alltaf þegar Axl á í hlut
og aukamenn léku hlutverk Slash
og Duffs en það var missir að aðal-
leikurunum. Daginn áður hafði Axl
verið handtekinn í Svíþjóð fyrir að
bíta tollvörð í lærið, en fyrir sögu-
lega tilviljun fór þetta vel í Finnana
og það var þó gaman að heyra lag
eins og Welcome to the Jungle flutt af
upprunalegum söngvara.
Loksins til Íslands
Í millitíðinni höfðu Slash og Duff
stofnað hljómsveitina Velvet
Revolver og tilkynnt var að þeir
myndu spila í Egilshöll sumarið 2005
ásamt Mínus, en aðdáendur urðu af
rokkveislu þessari. Hætt var við túr-
inn vegna eiturlyfjaneyslu og íslensk-
um aðdáendum boðið að skipta mið-
um sínum í Iron Maiden í staðinn.
Árið 2008 kom svo loksins hin
langþráða Chinese Democracy eftir
15 ár í vinnslu, dýrasta plata rokk-
sögunnar. Hún bar þess mjög merki
að hafa verið unnin svo lengi að allt
líf var kreist úr henni. Hún bar þó
enn sama titil og stefnt var að, vísun
í mótmælin á Tiananmen-torgi árið
1989. Kannski á hún betur við um
það sem nú er að gerast í Hong Kong.
Ekkert bólar á nýju efni frá
Gönsenn, en bæði Axl og Slash hafa
gefið út að þeir muni aldrei vinna
saman aftur og Axl hefur látið henda
fólki út af tónleikum fyrir að vera í
Slash-bol.
Slash heldur þó sínu striki og gaf
nýlega út sína fimmtu sólóplötu, nú
með aðstoð The Conspirators sem
mun spila með honum í Höllinni þann
6. desember ef allt fer að óskum. n
Beðið eftir
Guns n' roses
n Stiklað á stóru yfir feril Guns n' Roses n Slash væntalegur um helgina
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Gilby sást dæma Magna úr leik Lítið fór
fyrir honum þangað til í Rock Star Supernova.
Steven Adler Reykti gólfteppið sitt í von
um að finna í því heróín.
Axl Rose Tók
að margra mati
undarlega beygju
í seinni tíð.
Skrautlegir
Upprunalegir
meðlimir hafa átt
skrautlegan feril.
Velvet Revolver Slash og Duff risu úr öskunni og tóku að rokka á ný.