Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2014, Blaðsíða 37
Fólk 37Vikublað 2.–4. desember 2014
Síðasta
jólaföndrið
Illugi Jökulsson var hálf dapur
um helgina, yfir því að vera lík-
lega að fara í jólaföndur í Austur-
bæjarskóla í síðasta sinn. Hann
deildi þessari depurð sinni með
Facebook-vinum sínum. „Sam-
fleytt í 26 ár hef ég mætt sam-
viskusamlega á þessum árstíma á
jólaföndur í Austurbæjarskólan-
um þar sem ég hef ásamt börn-
unum fyrst litlum og svo stórum
málað piparkökur með marglit-
um glassúr, klippt út jólasveina
og bakað laufabrauð. Þetta hafa
verið ánægjulegar stundir og
óskiljanlegur partur af hverjum
vetri. Nú bregður svo við að
þriðja og yngsta barnið er kom-
ið alla leið í tíunda bekk og þetta
verður því í síðasta sinn sem ég
fer í jólaföndur Austurbæjarskól-
ans,“ skrifaði Illugi. Svo þakkaði
hann fyrir sig, nánast með tárin í
augunum, að eigin sögn.
Veðurteppt í London
n Margrét Erla Maack varð fyrir barðinu á storminum n Nær heim fyrir frumsýningu
F
jöllistakonan Margrét Erla
Maack lét það ekki á sig fá að
vera aukadag í London en
hún var þar veðurteppt ásamt
unnusta sínum, Hjalta Þór Þórssyni.
„Ég fékk aukadag hér til að borða
enn meira sem ekki er hægt að fá á
Íslandi,“ segir Margrét sem er ann-
álaður sælkeri. Hún var afar kát í
bragði þegar blaðamaður náði tali af
henni, þá enn í London.
Spurð hvers eðlis heimsóknin
hafi verið segir Margrét hana bæði
tengjast vinnu og skemmtun. „Ég
var meðal annars að kaupa búninga
og þannig lagað hér. Fyrir Jólakabar-
ett Sirkuss Íslands,“ útskýrir hún en
frumsýningin er á fimmtudagskvöld.
Fyrir þau sem ekki vita setur
Sirkus Íslands upp fágaðan full-
orðinskabarett á aðventunni í upp-
hituðu sirkustjaldi í Hljómskála-
garðinum. Tjaldið Jökla var reist í
gærdag og rétt slapp því fyrir horn
óveðursins.
„Þarna verða jafnvægislistir,
sirkusbrögð, loftfimleikar, söngur,
skemmtileg og skrýtin atriði, gleði,
glens og jólabjór,“ segir Margrét og
segist ekki hrædd um að missa af
herlegheitunum vegna raskana á
flugi.
„Ég á flug í kvöld [mánudags-
kvöld] og kem því í tæka tíð.“
Líkt og áður sagði var Margrét
stödd ytra ásamt unnusta sínum. Sá
fann aðeins meira fyrir töfinni að
sögn Margrétar. Hjalti átti að hefja
störf við nýtt tímabundið verkefni í
gær og taka við grafíkerstöðu á Stöð
2 í stað Þórhildar Sæmundsdóttur,
sem er á leið í fæðingarorlof.
Heimildir DV herma þó að þessi
eini dagur til hafi ekki komið að sök á
fréttastofunni og ekkert meiriháttar
upphlaup orðið yfir grafíkurleysi en
ljóst er að áhrifa veðursins á ferða-
plön parsins gætir víða. n
maria@dv.is
Kíktu á frægan fullorðinssirkus Parið lyfti sér upp á La Soirée um helgina.
Jökla rís
Fágaður fullorðins-
kabarett í upphituðu
sirkustjaldi í Hljóm-
skálagarðinum.
MyNd Sigtryggur Ari
Garðar á ÍNN
Það er aldrei að vita nema
knattspyrnumaðurinn Garðar
Gunnlaugsson sé næsta sjón-
varpsstjarna landsins. Garðar,
sem hefur starfað á auglýsinga-
deild Birtíngs síðustu mánuðina,
er kominn með nýtt starf á
sjónvarpsstöðinni ÍNN. Sam-
kvæmt heimildum DV eru miklar
breytingar fram undan hjá stöð-
inni sem ætlar sér stóra hluti í
framtíðinni. Garðar vildi lítið tjá
sig þegar DV innti hann eftir því
hvort hann myndi sjást á skján-
um. „Ég byrja allavega að selja
auglýsingar en það er aldrei að
vita hvað framtíðin ber í skauti
sér. Það er bara gaman að koma
inn á þessum tímapunkti og taka
þátt í þessari uppbyggingu.“
Minningar fjölskyld-
unnar mikilvægastar
É
g hefði haft mjög gaman af
svona bók þegar ég var lítil.
Þá var minn stærsti draumur
að eignast gönguskó sem voru
ekki jafn aðgengilegir og þeir
eru í dag,“ segir pólfarinn og fjalla-
garpurinn Vilborg Arna Gissurar-
dóttir sem er í óða önn að skrifa úti-
lífsbók ásamt vinkonu sinni, Pálínu
Ósk Hraundal sem býr í Noregi.
Áhuginn kviknaði snemma
Útivistaráhugi Vilborgar Örnu
kviknaði snemma. „Við áttum lít-
inn fjallakofa á Rauðasandi og ég
var alltaf tengd náttúrunni. Ég gekk
samt ekki á fyrsta fjallið fyrr en ég
var tvítug,“ segir Vilborg Arna.
Bókin, Útilífsbók barnanna,
kemur út á vormánuðum. „Það er
mjög margt að finna í þessari bók
eins og það hvernig er best að klæða
sig og velja búnað svo manni líði
sem best, hvernig hægt er að byggja
upp ferðir og hvar er best að ferð-
ast. Svo eru alls kyns hugmyndir um
það hvernig þú getur nýtt náttúruna
til að læra betur á það sem er að ger-
ast í kringum þig. Það er nefnilega
hægt að yfirfæra náttúruna á svo
margt til að læra að takast á við alls
kyns áskoranir,“ segir Vilborg Arna
og bætir við að í bókinni sé einnig
að finna aðferðir og uppskriftir til
útieldunar. „Svo erum við með hug-
myndir að náttúruföndri. Við hvetj-
um fólk til að fara út í náttúruna til
að finna efnivið svo upplifunin haldi
áfram þegar heim er komið.“
Ekki með í jólabókaflóðinu
Vilborg segir þær stöllur ekki hafa
viljað taka þátt í jólabókaflóðinu.
„Okkur fannst skemmtilegri tilhugs-
un að gefa svona bók út um vor-
ið. Við hugsum þetta sem bók fyrir
fjölskyldur til að taka með í sum-
arbústaðinn eða útileguna. Þarna
eru líka sögur og viðtöl við fólk
sem hefur verið að gera alls konar
spennandi hluti bæði hér á landi
og í öðrum löndum. Til dæmis töl-
um við við fjölskyldu sem á ekki bíl
en ferðast allt á hjóli og krakka sem
hafa gengið á Hvannadalshnjúk.“
Bók fyrir alla
Vilborg Arna segir markmið bók-
arinnar að hjálpa fjölskyldum til
að búa til góðar minningar. „Þetta
snýst ekki um að klífa hæsta fjall-
ið sem hraðast heldur frekar um
að skapa góðar minningar sem lifa
áfram. Þetta þarf ekki að vera svo
flókið í uppsetningu eða dýrt. Þegar
maður horfir til baka eru það svona
stundir sem maður man best eftir.
Það á enginn minningar eftir að
hafa horft á sjónvarp í æsku held-
ur man fólk best eftir því sem það
gerði með fjöskyldu sinni. Og það
góða er að þótt þú sért ekki harð-
kjarnaútivistarmaður þá er þetta
líka bók fyrir þig. Þetta er bók fyrir
alla, ekki bara þá sem hafa stundað
útivist alla ævi, því við komum með
aðferðir og uppástungur sem henta
öllum fyrir allar aðstæður, sama
hvar á landinu þeir búa. Þarna eru
hugmyndir fyrir alla fjölskylduna
svo fjölskyldan ætti að geta samein-
ast yfir þessu.“
Stefnir á Everest
Auk þess að skrifa bókina og halda
fyrirlestra er Vilborg að hefja undir-
búning fyrir Everest. „Ég verð heima
fram að mars en þá reyni ég aftur
við Everest. Núna er undirbúning-
ur. Ég þarf að vera í góðu líkamlegu
formi. Það verður ekkert jólafrí hjá
mér,“ segir hún brosandi. n
n Pólfarinn Vilborg Arna gefur út bók n Undirbýr sig fyrir Everest
indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is „Það verður
ekkert
jólafrí hjá mér
Vinkonur Vilborg Arna
og Pálína hafa báðar
mikinn áhuga á útivist.