Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2014, Qupperneq 4
4 Fréttir Vikublað 9.–11. desember 2014
Stjórnendur ráðnir
án auglýsingar
Starfandi framkvæmdastjóri Strætó var ráðinn í tímabundið starf á síðasta ári
N
okkur dæmi eru um að
stjórnendur innan Strætó
bs. hafi verið ráðnir án aug-
lýsingar. Útlit er fyrir að farið
hafi verið framhjá skyldum
Strætó samkvæmt kjarasamningum,
um að auglýsa öll laus störf laus til
umsóknar á opinberum vettvangi,
með því að ráða viðkomandi fyrst í
tímabundin verkefni. Að þeim ver-
kefnum loknum hafa starfsmenn
fengið fastráðningu. Þetta á meðal
annars við um ráðningu Ástríðar
Þórðardóttur, fjármálastjóra og starf-
andi framkvæmdastjóra, en hún var
ráðin í tímabundið verkefni til hálfs
árs á síðasta ári.
Fyrst í tímabundnum verkefnum
Ástríður Þórðardóttir fjármálastjóri
var á síðasta ári ráðin tímabundið
til hálfs árs sem sérfræðingur á fjár-
málasviði. Hún var fastráðin sem
fjármálastjóri í upphafi árs 2014.
Þess má geta að Ástríður gegnir nú
starfi framkvæmdastjóra Strætó bs.
samhliða starfi sínu sem fjármála-
stjóri og mun gera það þar til nýr
framkvæmdastjóri tekur til starfa.
Starf framkvæmdastjóra var aug-
lýst laust til umsóknar í lok síðasta
mánaðar og rennur umsóknarfrestur
út 15. desember næstkomandi.
Þá var Júlía Þorvaldsdóttir ráð-
in tímabundið til eins árs árið 2010
og var fastráðin sem sviðsstjóri far-
þegaþjónustusviðs að því loknu.
Smári Ólafsson var ráðinn sem ráð-
gjafi á skipulags- og þróunarsviði
árið 2012 en í upphafi árs tók hann
við sem sviðsstjóri í ferðaþjónustu
fatlaðs fólks. Að lokum hóf Einar
Kristjánsson störf sem sviðsstjóri
rekstrarsviðs árið 2005 en þegar
skipulagssvið var sett á laggirnar
var hann gerður að sviðsstjóra þess.
Starfið var því ekki auglýst. Við þetta
má síðan bæta umdeildri ráðningu
Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur,
fyrrverandi bæjarstjóra í Hafnarfirði
og núverandi bæjarfulltrúa, í stöðu
verkefnastjóra stefnumótunar en
hún er einnig starfandi upplýsinga-
fulltrúi Strætó. Hún gegndi að auki
áður stöðu stjórnarformanns. Ráðn-
ingin vakti töluverða athygli, ekki síst
fyrir þær sakir að upplýsingafulltrúi
Strætó hafði þá nýlega verið leystur
undan störfum. Starf upplýsingafull-
trúa hefur ekki verið auglýst að nýju.
Þá gagnrýndi bæjarfulltrúi í Kópa-
vogi ráðninguna á bæjarráðsfundi og
benti á að siðareglur bæjarfulltrúa og
stjórnenda í Kópavogi hefðu meinað
viðkomandi að taka við þessu starfi.
DV sendi fyrirspurn um ráðn-
ingar í fjórar stjórnunarstöður til við-
bótar en í þeim tilvikum voru stöð-
urnar auglýstar. Ekki var spurt um
aðrar stöður innan Strætó.
Skylda að auglýsa öll störf
Í kjarasamningi Strætó bs. segir orð-
rétt: „Það er skylda Strætó bs. að
auglýsa öll laus störf laus til um-
sóknar á opinberum vettvangi. Skal
það gert með 14 daga fyrirvara að
jafnaði. Þó er ekki skylt að auglýsa
afleysingastörf vegna fæðingaror-
lofs eða veikinda eða störf þar sem
ráðning skal standa 12 mánuði eða
skemur, tímavinnustörf, störf nema
eða störf unglinga í vinnuskóla. Ef
litið er svo á að ráða skuli í stöðu
með uppfærslu innan starfsgreinar-
innar eða frá hliðstæðum starfs-
greinum skal staðan auglýst á þeim
vettvangi einum.“
Garðar Hilmarsson, formaður
Starfsmannafélags Reykjavíkur, seg-
ir að þó svo að starfsmaður sé ráð-
inn tímabundið þá eigi samt sem
áður að auglýsa öll laus störf. Starfs-
maðurinn verði hugsanlega met-
inn hæfasti umsækjandinn, þar sem
hann hefur sinnt því að hluta á með-
an hann var með tímabundna ráðn-
ingu, en engu að síður eigi að aug-
lýsa allar lausar stöður. n
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
aslaug@dv.is
„Það er skylda
Strætó bs. að
auglýsa öll laus störf
laus til umsóknar á
opinberum vettvangi.
Auglýsa ekki stjórnunar-
stöður Nokkur dæmi eru um að
Strætó bs. auglýsi ekki stjórn-
unarstöður innan fyrirtækisins
heldur fari á svig við skyldur með
því að ráða fólk inn tímabundið.
mynd Sigtryggur Ari
Lenti með
látinn mann
Sjúkraflugvél lenti í síðustu viku
á Keflavíkurflugvelli með látinn
einstakling. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá lögreglustjóran-
um á Suðurnesjum.
Vélin var að koma frá Kanada
með mann sem slasast hafði þar
og sem flytja átti til Þýskalands.
Gert hafði verið ráð fyrir milli-
lendingu hér á landi til að taka
eldsneyti, en þegar vélinni var
lent reyndist maðurinn látinn.
Um borð með honum voru lækn-
ir og bráðatæknir, auk áhafnar
vélarinnar.
Greint var frá því í síðustu viku
að farþegi sem veiktist um borð í
flugvél sem var á leið frá Brussel
til Washington 28. nóvember síð-
astliðinn, hafi verið úrskurðað-
ur látinn þegar vélinni var lent á
Keflavíkurflugvelli.
Vill upplýsingar um dróna
Pírati spyr ráðherra hvort lögreglan eigi eða muni eignast fjarflugur
H
elgi Hrafn Gunnarsson,
þingmaður Pírata, hefur
lagt fyrir innanríkisráðherra
fyrirspurn um svokallaða
dróna, eða fjarflugur. Drónar eru
ómönnuð flygildi sem notuð eru til
þess að vakta, taka myndir, njósna
og jafnvel til hernaðar. Í sumum til-
fellum eru þau notuð til löggæslu
og jafnvel vísindarannsókna.
Helgi spyr ráðherrann hvort að
íslenska lögreglan hafi fest kaup á
dróna eða hvort hún fyrirhugi slík
kaup. Þá óskar hann eftir upplýs-
ingum um það hvort lögreglan hafi
eignast dróna með öðrum hætti,
eða þá hvort að fyrirhugað sé að
hún fái slíkan búnað að gjöf eða
láni.
Helgi Hrafn spyr ráðherrann
einnig hvort að ráðherra telji lög-
reglu hafa lagaheimild til að kaupa
og nota dróna og vill einnig fá upp-
lýsingar um það hvernig ráðherra
sjái fyrir sér að dróni í eigu lög-
reglunnar nýtist frá degi til dags?
Að lokum vill þingmaðurinn fá
upplýsingar um það hvort að setja
þurfi reglur sérstaklega um notkun
lögreglunnar á drónum og ef svo er,
hvert yrði efni slíkra reglna.
Drónar þykja mjög umdeildir,
en þeir hafa mikið verið notaðir í
hernaði, meðal annars sem njósn-
atæki og sem vígavélar. Bandaríski
herinn notar fjarflugurnar mik-
ið. Drónar nýtast einnig við ýmsar
athafnir þar sem menn komast ekki
nema með mikilli fyrirhöfn, eins
og til dæmis til þess að taka mynd-
ir og kanna aðstæður til björgunar-
starfa.
Það kemur í hlut nýskipaðs inn-
anríkisráðherra, Ólafar Nordal, að
svara spurningum Helga,en hún
tók við lyklavöldum í ráðuneytinu í
síðustu viku. n
Komast þar sem aðrir komast ekki
Þetta er ein tengund af fjarflugu.
Tónlistar-
kennarar
samþykktu
Félagar í Félagi tónlistarskóla-
kennara hafa samþykkt nýgerðan
kjarasamning við Samband ís-
lenskra sveitarfélaga. Allsherjar-
atkvæðagreiðsla um samninginn
hófst 3. desember og henni
lauk á mánudag. Yfirgnæfandi
meirihluti þeirra sem tóku þátt í
atkvæðagreiðslunni samþykktu
samninginn, eða 81,39 prósent.
Á kjörskrá voru 530 en atkvæði
greiddu 360, eða tæplega 68 pró-
sent félagsmanna. 42 sögðu nei,
eða tæp 12 prósent þeirra sem
greiddu atkvæði og 25 skiluðu
auðum seðlum. Kjarasamningur
FT og Sambandsins var undir-
ritaður í húsakynnum ríkissátta-
semjara að morgni 25. nóvember
síðastliðinn. Þá hafði verkfall tón-
listarskólakennara staðið í nær-
fellt fimm vikur. Samningurinn
gildir frá 1. nóvember 2014 til 31.
október 2015.