Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2014, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2014, Blaðsíða 36
Vikublað 9.–11. desember 201436 Fólk Sérkennileg nöfn Hollywood-barna n Oft djúpar og fallegar pælingar á bak við nöfnin n Sum nöfnin virðast vera grín H ollywood-stjörnurnar þurfa svo sannarlega ekki að beygja sig undir strangar reglur mannanafnanefnd- ar þegar kemur að því að nefna börnin sín. Þetta frelsi til nafngiftar verður stund- um til þess að börnin sitja uppi með afar sérstök nöfn, en oft eru djúpar pælingar á bak við þau. Nöfnin eru reyndar ekki alltaf svo sérstök heldur kannski frekar samsetning þeirra eða hvernig þau hljóma með eftir- nafninu. n Amman átti hugmyndina Leikkonan Alicia Silverstone og eiginmaður hennar, Christopher Jarecki, nefndu son sinn Bear Blu. Það var móðir Christo­ phers sem átti hugmyndina að nafninu, en hjónin voru komin með fimm strákanöfn á lista sem þeim leist vel á, þar á meðal Bear og Blu. Þau gátu ekki valið á milli þessara tveggja og ákváðu því að nota bæði. Hljómuðu vel saman Nicole Richie og Joel Madden eiga tvö börn, dreng og stúlku, sem heita áhugaverðum nöfnum. Sparrow James Midnight og Harlow Winter Kate. Nicole sagði eitt sinn í viðtali að þau hjónin hefðu mjög ólíkan smekk á nöfnum og því hefði reynst þrautin þyngri að finna börnunum nöfn sem þau sættu sig bæði við, en Sparrow var eitt þeirra. Henni finnst til að mynda gott hvað það hljómar vel með Harlow. Fengu innblástur úr lagi Sonur Jason Lee og Beth Riesgraf heitir ansi sérstökum nöfnum, allavega þegar þau eru sett saman, en drengurinn heitir Pilot Inspektor. Jason sagði eitt sinn í viðtali að hann væri nokkuð viss um að krökkunum í skólanum þætti þetta svalt nafn. En foreldrarnir fengu innblástur að nafn­ inu úr lagi sem heitir „He ś simple, he's dumb, he's pilot. Jason hreifst mjög af laginu þegar hann heyrði það fyrst og fannst nafnið tilvalið á soninn. Millinöfn mæðra Kate Hudson og maður hennar, Matt Bellamy, eiga saman einn son sem heitir Bingham Hawn. Eflaust hafa einhverjir verið forvitnir um uppruna nafnsins því Matt sá sig knúinn til að útskýra það á Twitter hvaðan það kæmi. En Bingham mun vera millinafn móður hans og Hawn er að sjálfsögðu eftir móður Kate, Goldie Hawn. Sunnudagar urðu bestir Nicole Kidman og Keith Urban eiga saman tvær dætur og heitir önnur þeirra Sunday Rose. Keith útskýrði nafngiftina í viðtali einu sinni, en ástæðan fyrir nafninu er afar hugljúf. „Sunnudagur voru í mínum huga leiðinlegustu dagar vikunnar, ég var alltaf einmana því það var erfitt að fá fólk til að gera eitthvað þessa daga. Það voru allir að gera eitthvað með fjölskyldum sínum og ég átti ekki slíka. En þegar ég kynntist Nicole þá urðu sunnu­ dagar uppáhaldsdagarnir mínir, því við eyddum þeim alltaf saman og henni leið alveg eins. Við ákváðum því að ef við myndum eignast dóttur þá myndum við nefna hana Sunday.“ Nefndur eftir Tennesse Reese Witherspoon á tvö börn með fyrrverandi eiginmanni sínum, Ryan Philippe, sem heita nokkuð hefðbundnum nöfnum, eða Ava og Deacon. Svo á hún eitt barn með núverandi eiginmanni sínum, Jim Toth, sem heitir Tennesse James. Ástæðan fyrir nafninu mun vera sú að hún ólst upp í Nashville, Tennesse. Sjald- gæf og sérstök Geri Halliwell sagði frá því í viðtali að nýútsprungin vorblómin hefðu veitt henni innblástur við nafngift dóttur hennar sem heitir Bluebell Madonna. Það gerði útslagið við ákvarðanatökuna þegar móðir hennar tjáði henni að slík blóm væru afar sjaldgæf og því svo dýrmæt. Geri fannst það eiga fullkomlega við dóttur sína. Madonnu­ nafnið kemur frá tveimur fyrirmyndum hennar, söngkonunnar Madonnu og dýrlingsins Madonnu. Sameinuðu nöfn foreldra Milla Jovovich og Paul Anderson eiga eina dóttur sem heitir Ever Gabo. Milla hefur sagt að þau hafi viljað að nafnið endurspeglaði á einhvern hátt skoskar rætur Paul, en þaðan kemur fyrra nafnið. Síðara nafnið er blanda af nöfnum foreldra hennar sem heita Galina og Bogie. Þau tóku einfaldlega tvo fyrstu stafinu úr nöfnum þeirra og settu saman í eitt. Vildi nafn sem var ekki nafn Leikkonan Shannyn Sossamon vildi gefa syni sínum nafn sem væri í raun ekki nafn, en hann heitir Audio Science og má segja að henni hafi tekist ætlunarverk sitt ágætlega. „Við vildum orð, ekki nafn, svo kærastinn minn fór í gegnum orðabókina nokkrum sinnum og þetta varð niðurstaðan. Við ætlum að kalla hann Science og hugsanlega stytta það í Sci,“ sagði hún um nafnið. Millinafnið er djók Penn Jillette og Emily Zolten gáfu dóttur sinni afar sérstakt nafn, Moxie CrimeFigther. Penn hefur útskýrt nafnið opinberlega: „Ég elska nafnið Moxie, það er hreint, amerískt orð og þau eru sjaldgæf. Emily vildi endilega gefa henni millinafnið CrimeFighter því sjálf ber hún ekki millinafn og finnst millinöfn heimskuleg. Nafnið er því bara grín. Þegar hún verður stoppuð af lögreglunni í framtíðinni þá getur hún rétt fram ökuskírteinið sitt og sagt: „Við erum í sama liði, lögreglumaður, millinafnið mitt er CrimeFighter.““ Sérstakt og svalt Dóttir leikkonunnar Gwyenth Paltrow og söngvarans Chris Martin heitir Apple Blythe Alison. Hið frumlega nafn var hugmynd Chris en hann heillaðist strax af því. Honum finnst nafnið bæði sérstakt og svalt og getur ekki ímyndað sér að neitt annað nafn hefði hentað stúlkunni, sem er átta ára gömul í dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.