Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2014, Blaðsíða 18
18 Skrýtið Vikublað 9.–11. desember 2014
Ljósmyndir af látnu fólki
n Siður á nítjándu öld n Ættingjar á myndum með látnum
L
jósmyndatæknin var fundin
upp á nítjándu öld. Fyrst
um sinn var aðeins á færi
ríkra að borga ljósmyndur-
um fyrir að taka myndir af
sér, enda var ljósmyndabúnaður-
inn í þá daga rándýr og þunglama-
legur. Fyrir daga ljósmyndarinnar
voru málverk eina leiðin til þess að
festa andlit fólks á myndrænan hátt.
Aðalsmenn létu mála myndir af sér
til þess að koma í veg fyrir að þeir
gleymdust með öllu að þeim gengn-
um. Þegar ljósmyndatæknin kom
svo til sögunnar um miðja nítjándu
öld var auðvitað komin ný og miklu
auðveldari leið til að fanga fólk um
aldur og ævi á myndrænan hátt.
Ljósmynd eftir dauða
Nú þegar hvert mannsbarn er með
hágæða ljósmyndavél í snjallsím-
anum er erfitt að ímynda sér hvern-
ig myndatökur virkuðu á fyrstu ára-
tugum ljósmyndarinnar. Algengt var
að fólk léti aðeins taka af sér eina til
tvær ljósmyndir á ævinni. Þetta varð
til þess að nokkuð sérkennileg gerð
ljósmynda þróaðist á seinni hluta
nítjándu aldar beggja megin Atlants-
hafsins. Það voru ljósmyndir af látnu
fólki (e. post-mortem photography).
Þegar fólk lést áttu ættingjar oft
enga ljósmynd af hinum látnu ást-
vinum. Því var gripið til þess ráðs
að ljósmynda líkið til að festa hinn
látna á mynd fyrir þá sem eftir lifðu.
Og oftar en ekki voru ljósmynd-
ir þessar með dýrmætustu eigum
fjölskyldunnar.
Þetta hjálpaði ættingjum að
syrgja, rétt eins og ljósmyndir af
þeim látnu hjálpa okkur nútíma-
fólkinu að syrgja okkar ástvini, þó
að við neyðumst sjaldnar til að ljós-
mynda dáið fólk.
Árið 1999 var gerð íslensk heim-
ildamynd um þennan sið. Hún ber
titilinn Corpus Camera en leik-
stjórar eru Hrafnhildur Gunnars-
dóttir og Sigurjón Baldur Haf-
steinsson.
Ljósmyndir áminning um
dauðann
Bandaríski fræðimaðurinn Susan
Sontag lýsti hinu undarlega fyrir-
bæri ljósmyndun í greinasafninu
On Photography sem út kom
árið 1977. Þar skrifaði hún með-
al annars: „Allar ljósmyndir eru
áminning um dauðann. Að taka
ljósmynd jafngildir því að taka þátt
í dauðleika, varnarleysi, breytan-
leika annarrar manneskju (eða
hlutar). Allar ljósmyndir sýna fram
á hina miskunnarlausu eyðingu
tímans einmitt með því að skera
burt þetta augnablik.“
Og rithöfundurinn Franz Kafka
sagði þetta: „Við ljósmyndum hluti
til sópa þeim út úr huganum. Þegar
ég skrifa sögur er það eins og að
loka augunum.“ n
Helgi Hrafn Guðmundsson
helgihrafn@dv.is
Látinn ástvinur Þessi ljósmynd var
hugsanlega sú eina sem tekin var af þessum
manni.
Rithöfundur látinn Franski rithöfundurinn Victor Hugo á mynd Felix Nadar árið 1885.
Systkinin saman Barn syrgt.
Jarðarför Niðjarnir kveðja látna konu.
Hinsta kveðja Látin ung kona um 1870.
Standandi lík Þessum látna manni er haldið uppi með sérstöku statífi sem notað var
þegar látnir voru ljósmyndaðir.
Mæðgur Móðir syrgir dóttur sína.
Fjölskylda
Ljósmyndir
hjálpa ættingj-
um að syrgja.