Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2014, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2014, Page 18
18 Skrýtið Vikublað 9.–11. desember 2014 Ljósmyndir af látnu fólki n Siður á nítjándu öld n Ættingjar á myndum með látnum L jósmyndatæknin var fundin upp á nítjándu öld. Fyrst um sinn var aðeins á færi ríkra að borga ljósmyndur- um fyrir að taka myndir af sér, enda var ljósmyndabúnaður- inn í þá daga rándýr og þunglama- legur. Fyrir daga ljósmyndarinnar voru málverk eina leiðin til þess að festa andlit fólks á myndrænan hátt. Aðalsmenn létu mála myndir af sér til þess að koma í veg fyrir að þeir gleymdust með öllu að þeim gengn- um. Þegar ljósmyndatæknin kom svo til sögunnar um miðja nítjándu öld var auðvitað komin ný og miklu auðveldari leið til að fanga fólk um aldur og ævi á myndrænan hátt. Ljósmynd eftir dauða Nú þegar hvert mannsbarn er með hágæða ljósmyndavél í snjallsím- anum er erfitt að ímynda sér hvern- ig myndatökur virkuðu á fyrstu ára- tugum ljósmyndarinnar. Algengt var að fólk léti aðeins taka af sér eina til tvær ljósmyndir á ævinni. Þetta varð til þess að nokkuð sérkennileg gerð ljósmynda þróaðist á seinni hluta nítjándu aldar beggja megin Atlants- hafsins. Það voru ljósmyndir af látnu fólki (e. post-mortem photography). Þegar fólk lést áttu ættingjar oft enga ljósmynd af hinum látnu ást- vinum. Því var gripið til þess ráðs að ljósmynda líkið til að festa hinn látna á mynd fyrir þá sem eftir lifðu. Og oftar en ekki voru ljósmynd- ir þessar með dýrmætustu eigum fjölskyldunnar. Þetta hjálpaði ættingjum að syrgja, rétt eins og ljósmyndir af þeim látnu hjálpa okkur nútíma- fólkinu að syrgja okkar ástvini, þó að við neyðumst sjaldnar til að ljós- mynda dáið fólk. Árið 1999 var gerð íslensk heim- ildamynd um þennan sið. Hún ber titilinn Corpus Camera en leik- stjórar eru Hrafnhildur Gunnars- dóttir og Sigurjón Baldur Haf- steinsson. Ljósmyndir áminning um dauðann Bandaríski fræðimaðurinn Susan Sontag lýsti hinu undarlega fyrir- bæri ljósmyndun í greinasafninu On Photography sem út kom árið 1977. Þar skrifaði hún með- al annars: „Allar ljósmyndir eru áminning um dauðann. Að taka ljósmynd jafngildir því að taka þátt í dauðleika, varnarleysi, breytan- leika annarrar manneskju (eða hlutar). Allar ljósmyndir sýna fram á hina miskunnarlausu eyðingu tímans einmitt með því að skera burt þetta augnablik.“ Og rithöfundurinn Franz Kafka sagði þetta: „Við ljósmyndum hluti til sópa þeim út úr huganum. Þegar ég skrifa sögur er það eins og að loka augunum.“ n Helgi Hrafn Guðmundsson helgihrafn@dv.is Látinn ástvinur Þessi ljósmynd var hugsanlega sú eina sem tekin var af þessum manni. Rithöfundur látinn Franski rithöfundurinn Victor Hugo á mynd Felix Nadar árið 1885. Systkinin saman Barn syrgt. Jarðarför Niðjarnir kveðja látna konu. Hinsta kveðja Látin ung kona um 1870. Standandi lík Þessum látna manni er haldið uppi með sérstöku statífi sem notað var þegar látnir voru ljósmyndaðir. Mæðgur Móðir syrgir dóttur sína. Fjölskylda Ljósmyndir hjálpa ættingj- um að syrgja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.