Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2014, Page 36
Vikublað 9.–11. desember 201436 Fólk
Sérkennileg nöfn
Hollywood-barna
n Oft djúpar og fallegar pælingar á bak við nöfnin n Sum nöfnin virðast vera grín
H
ollywood-stjörnurnar
þurfa svo sannarlega
ekki að beygja sig
undir strangar reglur
mannanafnanefnd-
ar þegar kemur að því að
nefna börnin sín. Þetta frelsi
til nafngiftar verður stund-
um til þess að börnin sitja
uppi með afar sérstök nöfn, en
oft eru djúpar pælingar á bak við
þau. Nöfnin eru reyndar ekki
alltaf svo sérstök heldur kannski
frekar samsetning þeirra eða
hvernig þau hljóma með eftir-
nafninu. n
Amman átti
hugmyndina
Leikkonan Alicia Silverstone og
eiginmaður hennar, Christopher
Jarecki, nefndu son sinn Bear
Blu. Það var móðir Christo
phers sem átti hugmyndina
að nafninu, en hjónin voru
komin með fimm strákanöfn
á lista sem þeim leist vel á, þar
á meðal Bear og Blu. Þau gátu
ekki valið á milli þessara tveggja og
ákváðu því að nota bæði.
Hljómuðu vel saman
Nicole Richie og Joel Madden eiga tvö börn, dreng og stúlku,
sem heita áhugaverðum nöfnum. Sparrow James Midnight
og Harlow Winter Kate. Nicole sagði eitt sinn í viðtali að
þau hjónin hefðu mjög ólíkan smekk á nöfnum og því hefði
reynst þrautin þyngri að finna börnunum nöfn sem þau
sættu sig bæði við, en Sparrow var eitt þeirra. Henni finnst
til að mynda gott hvað það hljómar vel með Harlow.
Fengu innblástur úr lagi
Sonur Jason Lee og Beth Riesgraf heitir ansi sérstökum nöfnum,
allavega þegar þau eru sett saman, en drengurinn heitir Pilot Inspektor.
Jason sagði eitt sinn í viðtali að hann væri nokkuð viss um að krökkunum í
skólanum þætti þetta svalt nafn. En foreldrarnir fengu innblástur að nafn
inu úr lagi sem heitir „He ś simple, he's dumb, he's pilot. Jason hreifst mjög
af laginu þegar hann heyrði það fyrst og fannst nafnið tilvalið á soninn.
Millinöfn mæðra
Kate Hudson og maður hennar, Matt Bellamy,
eiga saman einn son sem heitir Bingham Hawn.
Eflaust hafa einhverjir verið forvitnir um uppruna
nafnsins því Matt sá sig knúinn til að útskýra
það á Twitter hvaðan það kæmi. En Bingham
mun vera millinafn móður hans og Hawn er að
sjálfsögðu eftir móður Kate, Goldie Hawn.
Sunnudagar
urðu bestir
Nicole Kidman og Keith Urban eiga saman tvær
dætur og heitir önnur þeirra Sunday Rose. Keith
útskýrði nafngiftina í viðtali einu sinni, en ástæðan
fyrir nafninu er afar hugljúf. „Sunnudagur voru í
mínum huga leiðinlegustu dagar vikunnar, ég var
alltaf einmana því það var erfitt að fá fólk til að
gera eitthvað þessa daga. Það voru allir að gera
eitthvað með fjölskyldum sínum og ég átti ekki
slíka. En þegar ég kynntist Nicole þá urðu sunnu
dagar uppáhaldsdagarnir mínir, því við eyddum
þeim alltaf saman og henni leið alveg eins. Við
ákváðum því að ef við myndum eignast dóttur
þá myndum við nefna hana Sunday.“
Nefndur
eftir
Tennesse
Reese Witherspoon á tvö börn
með fyrrverandi eiginmanni
sínum, Ryan Philippe, sem
heita nokkuð hefðbundnum
nöfnum, eða Ava og Deacon.
Svo á hún eitt barn með
núverandi eiginmanni sínum,
Jim Toth, sem heitir Tennesse
James. Ástæðan fyrir nafninu
mun vera sú að hún ólst upp í
Nashville, Tennesse.
Sjald-
gæf og
sérstök
Geri Halliwell sagði
frá því í viðtali að
nýútsprungin vorblómin
hefðu veitt henni
innblástur við nafngift
dóttur hennar sem
heitir Bluebell Madonna.
Það gerði útslagið við
ákvarðanatökuna þegar
móðir hennar tjáði henni
að slík blóm væru afar
sjaldgæf og því svo
dýrmæt. Geri fannst það
eiga fullkomlega við
dóttur sína. Madonnu
nafnið kemur frá
tveimur fyrirmyndum
hennar, söngkonunnar
Madonnu og dýrlingsins
Madonnu.
Sameinuðu
nöfn foreldra
Milla Jovovich og Paul Anderson
eiga eina dóttur sem heitir Ever
Gabo. Milla hefur sagt að þau hafi
viljað að nafnið endurspeglaði á
einhvern hátt skoskar rætur Paul,
en þaðan kemur fyrra nafnið.
Síðara nafnið er blanda af nöfnum
foreldra hennar sem heita Galina
og Bogie. Þau tóku einfaldlega tvo
fyrstu stafinu úr nöfnum þeirra og
settu saman í eitt.
Vildi nafn sem
var ekki nafn
Leikkonan Shannyn Sossamon vildi gefa
syni sínum nafn sem væri í raun ekki
nafn, en hann heitir Audio Science og má
segja að henni hafi tekist ætlunarverk
sitt ágætlega. „Við vildum orð, ekki
nafn, svo kærastinn minn fór í gegnum
orðabókina nokkrum sinnum og þetta
varð niðurstaðan. Við ætlum að kalla
hann Science og hugsanlega stytta
það í Sci,“ sagði hún um nafnið.
Millinafnið er djók
Penn Jillette og Emily Zolten gáfu dóttur sinni afar
sérstakt nafn, Moxie CrimeFigther. Penn hefur
útskýrt nafnið opinberlega: „Ég elska nafnið Moxie,
það er hreint, amerískt orð og þau eru sjaldgæf. Emily
vildi endilega gefa henni millinafnið CrimeFighter
því sjálf ber hún ekki millinafn og finnst millinöfn
heimskuleg. Nafnið er því bara grín. Þegar hún verður
stoppuð af lögreglunni í framtíðinni þá getur hún rétt
fram ökuskírteinið sitt og sagt: „Við erum í sama liði,
lögreglumaður, millinafnið mitt er CrimeFighter.““
Sérstakt
og svalt
Dóttir leikkonunnar
Gwyenth Paltrow og
söngvarans Chris Martin
heitir Apple Blythe
Alison. Hið frumlega nafn
var hugmynd Chris en
hann heillaðist strax af
því. Honum finnst nafnið
bæði sérstakt og svalt og
getur ekki ímyndað sér
að neitt annað nafn hefði
hentað stúlkunni, sem er
átta ára gömul í dag.