Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2014, Síða 6
6 Fréttir Vikublað 9.–11. desember 2014
Árétting
Í kjallaragrein Sóleyjar Tómas
dóttur, forseta borgarstjórnar,
í helgarblaði DV kom fram að
árskort yrðu til sölu fyrir börn og
unglinga frá og með áramótum.
Sóley vill koma því á framfæri að
það hefur ekki verið samþykkt,
heldur er það til umræðu hjá
stjórn Strætó bs.
Læknanemar
beita hótunum
Nemar við læknadeild Háskóla
Íslands afhentu Bjarna Bene
diktssyni, fjármála og efna
hagsráðherra, undirskriftalista á
mánudag. Rúmlega tvö hundruð
íslenskir læknanemar hafa skrif
að undir yfirlýsingu þess efnis að
þeir muni ekki sækja um stöður
kandídata eða aðstoðarlækna á
heilbrigðisstofnunum landsins
fyrr en samningar náist milli ríkis
og lækna.
Að sögn Daða Helgasonar,
talsmanns læknanema á sjötta
ári, eru nemarnir í námi hérlend
is, í Danmörku og Ungverjalandi.
Afhendingin fer fram fyrir framan
fjármálaráðuneytið en Bjarni hef
ur samþykkt að hitta læknanema
og taka á móti listunum. Allir
læknar og læknanemar hafa verið
hvattir til að mæta.
Sjö ára datt úr rútu á ferð
Féll að hurðinni og út úr rútunni án þess að bílstjórinn yrði þess var
B
etur fór en á horfðist þegar
nemandi í öðrum bekk í Snæ
landsskóla féll út á götu úr
rútu á ferð á mánudag.
Nemandinn datt út úr rútunni á
ferð á gatnamótum Kársnessbraut
ar og Urðarbrautar. Hann var í belti
í rútunni sem virðist hafa losnað og
hann fallið að hurð sem opnaðist.
Við þetta datt nemandinn út á götu,
án þess að bílstjórinn yrði þess var.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá
skólastjóra Snælandsskóla til for
ráðamanna nemenda skólans.
Tveir vegfarendur komu hon
um til hjálpar og fóru með hann að
Kópavogslaug. Nemandinn fékk
stóran skurð á höfuðið við fallið var
fluttur á Barnaspítala Hringsins til
eftirlits og athugunar. Bekkjarsyst
kini hans urðu vitni að atburðinum
en í tilkynningu segir að þeim hafi
verið verulega brugðið. Það sé mikil
vægt að börnin fái tækifæri til að
ræða upplifun sína heima og einnig
eru starfsmenn skólans, námsráð
gjafi og sálfræðingur til viðtals ef for
ráðamenn óska þess.
„Þetta fór miklu betur en á horfð
ist,“ segir starfsmaður Snælands
skóla í samtali við DV.is. Í tilkynn
ingunni kemur fram að atburðurinn
hafi verið tilkynntur til lögreglu og
einnig til menntasviðs Kópavogs
bæjar og mun skólinn taka rútu
aksturinn til endurskoðunar í kjölfar
slyssins. n
erlak@dv.is
Í öðrum bekk
Barnið sem féll
úr rútunni er í
öðrum bekk í
Snælandsskóla.
Mynd SnælandSSkóli
„Sveitarfélagið keyrði
fyrirtækið í þrot“
n Harðar deilur um Jökulsárlón n Sveitarstjórn Hornafjarðar boðar til fundar
S
veitarfélagið Hornafjörður
hefur boðað landeigendur
við Jökulsárslón á fund næst
komandi miðvikudag til þess
að krefjast þess að þeir vinni
saman að uppbyggingu á svæðinu.
Undanfarin ár hafa staðið yfir hat
rammar deilur milli tveggja stærstu
landeigenda við austurbakka lónsins
um uppbyggingu ferðaþjónustu við
lónið.
Í haust tilkynnti eigandi annars
ferðaþjónustufyrirtækisins um
rekstrar stöðvun en hann segir sveitar
félagið hafa beitt sér hart gegn starf
semi fyrirtækisins. Þá sakar hann
sveitarfélagið um sérhagsmunagæslu
og brot á samkeppnislögum.
Sveitarfélag í
sérhagsmunagæslu
„Sveitarfélagið, með aðgerðum sín
um, keyrði fyrirtækið í þrot í sumar,“
segir Ingvar Geirsson, eigandi Ice
Lagoon, í samtali við DV en hann
segir dagsektir sem sveitarfélag
ið lagði á félagið hafa orðið fyrir
tækinu að falli. Sektirnar vörðuðu
stöðuleyfi á hjólhýsi og húskerru.
„Á sama tíma hefur hinn rekstrar
aðilinn á svæðinu verið án sömu
leyfa í fjórtán ár. Sveitarfélagið, sem
á að gæta hlutleysis og jafnræðis, er
þarna í sérhagsmunagæslu,“ fullyrð
ir Ingvar.
Í tilkynningu um rekstrarstöðvun
Ice Lagoon til Samkeppniseftirlits
ins segir að fyrirtækið hafi þurft að
verjast stöðugri andstöðu Sveitarfé
lagsins Hornafjarðar gegn rekstrin
um í öll þau fjögur ár sem fyrirtækið
hefur starfað við Jökulsárlón. Í sum
ar hafi sveitarfélagið meðal annars
krafist þess að félagið hætti allri
starfsemi við austurbakka Jökulsár
lóns nú þegar og fjarlægði lausa
fjármuni sem standi í óleyfi. Var
fyrirtækinu veittur tíu daga and
mælafrestur.
Áður en fresturinn rann út sendi
bæjarstjóri Hornafjarðar hins vegar
frá sér tilkynningu til fjölmiðla um
að Ice Lagoon væri án leyfa og þyrfti
að víkja af svæðinu. Fréttin birtist á
forsíðu Morgunblaðsins og í Frétta
blaðinu þann 28. júlí síðastliðinn.
Ice Lagoon andmælti ákvörðun
sveitarfélagsins, meðal annars á
þeim rökum að sveitarfélagið hafi
ekki beitt sér með sama hætti í leyfis
málum Jökulsárlóns ferðaþjónustu
ehf., hinu ferðaþjónustufyrirtækinu
á svæðinu, og það hefur gert gagn
vart Ice Lagoon.
Sveitarfélagið brjóti
samkeppnislög
Ingvar óskaði í haust eftir inn
gripi af hálfu Samkeppniseftirlits
ins vegna meintra samkeppnislaga
brota Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Nánar tiltekið kvartaði hann yfir
synjun sveitarfélagsins um leyfi fyr
ir rekstri fyrirtækisins og áætlun þess
um að stöðva starfsemi félagsins.
Samkeppniseftirlitið hefur áður haft
til meðferðar kvörtun Ice Lagoon
vegna starfsemi þess við Jökulsárlón.
Í fyrra tilvikinu kom fram í svari
sveitarfélagsins að sveitarfélagið
væri ekki eigandi lands að Jökulsár
lóni og veitti ekki almennt leyfi til
rekstrar þar. Þá væri búið að gera nýtt
deiliskipulag sem gerði ráð fyrir um
talsvert fleiri mannvirkjum þar sem
jafnframt væri skapað rými til frek
ari uppbyggingar atvinnurekstrar og
þjónustu við ferðamenn.
Í svari sveitarfélagsins við kvörtun
Ice Lagoon til Samkeppniseftirlitsins
segir að fyrirtækið hafi ekki farið eftir
þeim lögum og reglum sem gilda um
stöðuleyfi og freistað þess að skapa
sér svigrúm með kærum og mála
rekstri. „Mikilvægt er að farið sé eftir
þeim lögum og reglum sem gilda um
stöðuleyfi. Ella er þeirri hættu boðið
heim að nýir aðilar geti hafið starf
semi sína við eftirsótta ferðamanna
staði og náttúruperlur landsins án
þess að hafa til þess tilskilin leyfi og
reynt svo að kaupa sér fresti og tíma
yfir háannatímann. Slíkt er í full
kominni andstöðu við ákvæði laga
og reglna,“ segir meðal annars í svari
sveitarfélagsins til Samkeppnis
eftirlitsins. Þá hafnar sveitarfélag
ið ásökunum um brot á jafnræði
og samkeppnislögum í bréfi til Ice
Lagoon í haust. DV mun áfram fjalla
um deilur landeigenda við Jökulsár
lón í næsta tölublaði. n
Hugo Boss söluaðilar:
Reykjavík:
Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100
Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100
Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665
Meba Kringlunni s: 553-1199
Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður
Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666
Keflavík:
Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757
Selfoss:
Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433
Akureyri:
Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509
Akranes:
Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir:
Klassík Selási 1 s:471-1886
Úra- o skartgripaversl n
Heide Glæsibæ - s: 581 36 5
Áslaug karen Jóhannsdóttir
aslaug@dv.is
„Á sama tíma hefur
hinn rekstrar
aðilinn á svæðinu verið
án sömu leyfa í fjórtán ár.
Hatrammar deilur Land-
eigendur við Jökulsárlón hafa
deilt um uppbyggingu ferða-
þjónustu við lónið undanfarin
ár. Mynd Rakel óSk SiguRðaRdóttiR