Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2014, Blaðsíða 16
Vikublað 9.–11. desember 201416 Fréttir Erlent
Fra
Hyrjarhöfði 2 - 110, Reykjavík / s: 848 7007 og 776 8600 / www.glerpro.is / glerpro@gmail.com
Allar viðgerðir á framrúðum
eru
bíleiganda að kostnaðarlau
su.
Vinnum fyrir öll tryggingaf
élög.
Skoða gömul mál
Lögregluhópur á að kanna blóðuga sunnudaginn
L
ögreglan á Norður-Írlandi hef-
ur sett upp sérstaka lögreglu-
sveit sem ætlað er að rann-
saka fortíðina, það er gömul
mál sem eru óleyst eða þykja
umdeild. Starfshópurinn mun taka
til starfa í janúar og byrjar að skoða
atburði 31. janúar 1972, blóðuga
sunnudagsins (e. Bloody Sunday)
þegar breskir hermenn skutu þrettán
óbreytta og óvopnaða borgara sem
voru í kröfugöngu í borginni Derry.
Raunar tekur þessi starfshópur
við af öðrum starfshópi sem settur
var á laggirnar árið 2005 og átti
að skoða morðmál er varða 3.260
fórnar lömb á Norður-Írlandi á árun-
um 1968–1998. Sá starfshópur verð-
ur lagður niður vegna fjárskorts um
áramótin. Sá hópur hefur verið afar
umdeildur og hópur sem sér um ytra
eftirlit með lögreglunni gagnrýndi
hann harðlega í fyrra fyrir að taka illa
á málum sem sneru að stjórnvöldum
og fara mjúkum höndum um rann-
sókn slíkra mála.
Lögreglustjórinn, George Ham-
ilton, segir að mikilvægt sé að nýi
hópurinn fái svigrúm til að starfa
og að honum sé tryggð nægileg fjár-
veiting. Leiðtogi pólitísku samtak-
anna Sinn Féin segir að nýi hópur-
inn njóti ekki trausts almennings og
að hann starfi ekki í samræmi við
mannréttindasáttmála. n
Lögreglumál Hópurinn á að skoða gríðarlegan fjölda af gömlum málum sem varða meðal
annars sunnudaginn blóðuga í Derry.
Arðrændu
ræstingafólk
Tveir stjórnendur dansks
ræstingafyrirtækis hafa verið
dæmdir í tveggja og hálfs árs
fangelsi fyrir að misneytingu
í garð tveggja starfsmanna
sinna. Segja má að mennirn-
ir hafi hreinlega arðrænt þá með
vinnuhörku og lélegum launum.
Stjórnendurnir þurfa að greiða
starfsmönnum eina milljón
danskra króna í skaðabætur.
„Ég er mjög ánægður með
þessa niðurstöðu,“ segir sak-
sóknarinn sem sótti málið,
Thomas Raaberg-Møller. Fyrir-
tækið starfaði í Rudersdal og voru
starfsmennirnir tveir að störfum
við þrif hjá opinberum stofnun-
um. Þeir fengu greiddar á bil-
inu þrjú þúsund til fjögur þús-
und danskar krónur á mánuði,
eða um áttatíu þúsund íslenskar
krónur fyrir tíu tíma vinnu á
hverjum degi. Fyrirtækið fékk
hins vegar mun meira greitt fyr-
ir vinnu starfsmannanna en hélt
eftir mismuninum.
Starfsmennirnir, sem eru
Rúmenar, unnu hjá fyrirtækinu á
árunum 2009–2012. Upp komst
um málið þegar lögregla fjarlægði
þá af heimili stjórnendanna, þar
sem þeir, samkvæmt danska fjöl-
miðlinum Fagbladet 3F, héldu til
á svölum íbúðarhúsnæðis vinnu-
veitenda sinna og höfðu gert í
rúm þrjú ár við þröngan kost.
Fékk ókunnuga til
að dreifa öskunni
n Syrgjandi móðir leitaði á náðir annarra til að geta sýnt syni sínum heiminn
F
yrir ári ákvað Hallie
Twomey að setja upp Face-
book-síðu þar sem hún bað
ókunnuga um afar óvenju-
lega aðstoð – að dreifa ösku
sonar síns.
Hallie missti son sinn CJ
Twomey árið 2010 þegar hann
framdi sjálfsvíg. CJ var brenndur
og geymdi hún jarðneskar leifar
hans í duftkeri á heimili sínu. Son-
ur hennar var ævintýramaður sem
þráði að sjá heiminn en fékk fá
tækifæri til þess. Hún greinir sjálf
frá því að fyrir sjálfsvígið hafi þau
rifist, hann og foreldrar hans. Það
hafi reynst henni afar þungbært.
Hún fékk þá hugdettu einn
daginn, þegar hún horfði á duft-
kerið, að biðla til fólks um að dreifa
ösku hans eins víða og hægt væri.
„Þökk sé velvilja þessa fólks hefur
ösku hans nú verið dreift í rúmlega
hundrað löndum – meira að segja
í geimnum,“ segir Hallie.
Hjartahlýr drengur
Það var í nóvember í fyrra sem
hugmyndin kviknaði. Á síðunni
bað hún fólk um að leyfa syni sín-
um að sjá heiminn. Nítján þúsund
einstaklingar fylgjast með síðunni
og fjölmargir settu sig í samband
við hana. „Að dreifa ösku hans var
tilraun mín til þess að gefa honum
eitthvað. Það varð að markmiði,
að sýna syni mínum, þessu galna
partíljóni og hjartahlýja dreng,
sem var með svo stórt og fallegt
bros að það var alltaf nokkrum
skrefum á undan honum, heiminn
sem hann fékk aldrei að sjá,“ segir
hún.
„Það var tilraun til að leyfa
barninu mínu að hvíla að eilífu á
stöðum sem fjölskylda hans, vinir
og ókunnugir, höfðu valið sérstak-
lega handa honum.“
Mörg hundruð umslög
Á endanum fór það svo að hún
sendi mörg hundruð lítil umslög
með ösku hans til aðila, kunnugra
sem ókunnugra. Þeir voru með-
al annars búsettir í Sádi- Arabíu,
Taílandi og í Danmörku. Ösk-
unni hefur meðal annars verið
dreift við Taj Mahal, í New York, á
Ólympíuleikunum í Sochi og við
kóralrif í Dóminíska lýðveldinu. CJ
hefur því komið víða við, eins og
draumur hans var alltaf.
Í október var svo lítið glas fullt
af ösku sent út í geiminn með lítilli
eldflaug. Hún sveif í nokkra stund
og lenti svo aftur á jörðinni.
„Þetta er sérstakt, hvers vegna
ætti ókunnugt fólk að aðstoða okk-
ur? Ég held að það séu allir að gera
sitt besta og vilja gera eitthvað lítið
svo að það geti aðstoðað náunga
sína við að lifa lífinu til fulls,“ seg-
ir Hallie. „Mér leið eins og ég væri
í risastóru faðmlagi. Mér fannst ég
ekki lengur vera ein, og það skipti
mig miklu máli.“ n
„Það var tilraun til
að leyfa barninu
mínu að hvíla að eilífu á
stöðum sem fjölskylda
hans, vinir og ókunnugir,
höfðu valið sérstaklega
handa honum.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Dó ungur CJ var
aðeins tvítugur þegar
hann lést.
Dóminíska
lýðveldið
Hér má sjá
kafara fara
með ösku CJ
að kóralrifi.
Sochi Ólympíufari
tók að sér að dreifa
öskunni á Vetrar-
ólympíuleikunum
í Sochi.
Þakkargjörðarganga
Hér má sjá þakkargjörðar-
gönguna í New York.
Taj Mahal Hér er
öskunni dreift við
Taj Mahal.
Sveinki í
löggubílnum
Börn sem fylgdust með jóla-
skrúðgöngu í Aberdare í Ástralíu
stóðu eftir í miklu áfalli þegar þau
sáu lögregluna keyra með jóla-
svein skrúðgöngunnar á brott.
Börnin grétu og veinuðu af sorg
og héldu að verið væri að hand-
taka hann. Sveinki mun hafa
hlaupið inn í lögreglubifreið eftir
gönguna. Lögreglan hefur gef-
ið út að þeir hafi aðeins verið að
aðstoða jólasveininn svo hann
kæmist örugglega heim aftur.