Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2014, Blaðsíða 28
Vikublað 9.–11. desember 201428 Lífsstíll
Matur sem
róar magann
M
agakrampi, vindgangur,
útblásinn kviður. Hvort
sem það er ákveðinn
matur sem fer illa í mag-
ann eða þú borðaðir of
mikið, kvíði er að hafa áhrif eða jafn-
vel magakveisa – stundum líður þér
bara illa í maganum. Þegar það ger-
ist þarftu að finna eitthvað til þess að
laga það. Stundum er það þó ákveðin
matartegund, eins og mjólkurvörur
eða glútenríkur matur, sem fer illa í
þig. Þannig að ef þér er oft illt í mag-
anum, er ráð að byrja á því að taka út
þennan mat til að sjá hvort þér líði
betur.
1 Mynta Myntute getur losað um vindverki og minnkað
krampa. Mynta hins vegar dregur
líka úr þrýstingi á svæðinu á milli
vélindans og magans, sem gæti
valdið brjóstsviða hjá sumum. Ef
þú ert gjarn á að fá brjóstsviða
getur þú prófað að drekka baldurs-
brárte (chamomile te) eða annað
róandi jurtate. Ekki fá þér sykur-
laust myntutyggjó því gervisykur-
inn getur valdið vindgangi,
útþembu og ropa.
2 Hrein jógúrt Ef þú hefur fengið niðurgang af sýklalyfj-
um, er gott að borða smá hreina
jógúrt. Í jógúrtinni er gott jafnvægi
milli próteins, kolvetnis og fitu og
gæti hún bætt góðri bakteríu við
flóruna í meltingarveginum sem
getur þar af leiðandi minnkað
sársauka og látið þér líða betur.
3 Eplaedik Flestir þekkja edik, en það þekkja kannski
ekki allir eplaedik en það er gerjaður
eplasafi. Óþægindi í maga eru
stundum talin stafa af skorti á sýru í
maganum. Þegar magann vantar
sýru getur gert gagn að bæta aðeins
við hana. Eplaedik inniheldur C- og
B-vítamín en edikið sjálft getur verið
nokkuð sterkt á bragðið og er því
gott að setja eina matskeið eða tvær
í heitt vatn og smávegis af hunangi.
4 Hrísgrjón Líkaminn á auðvelt með að melta
hrísgrjón og þau auka vökvainntöku
líkamans. Ef þú hefur verið með
niðurgang er gott að borða venjuleg
hrísgrjón til þess að stuðla að
heilbrigðum hægðum. Sterkjan í
grjónunum þekur einnig magann að
innan og þér mun líða betur.
5 Engifer Ef þér er
flökurt eða ert
með ælupest
er gott að fá
sér smá
engifer. Þú
getur annað-
hvort hellt heitu
vatni yfir sneiðar af engifer og látið
liggja í nokkrar mínútur eða þú
getur keypt engiferte úti í búð.
6 Aloe Vera-safi Safinn sem fenginn er úr plöntunni
sjálfri er oft notaður á brunasár. En
safinn hefur þá eiginleika að geta
húðað magann og komið í veg fyrir
brjóstsviða og magakrampa. Hægt er
að finna safann í flestum heilsuvöru-
verslunum en varast þú að drekka of
mikið af honum því hann getur
einnig virkað hægðalosandi.
7 Bananar Gott er að
fá sér banana
þegar manni
líður illa í
maganum því
líkaminn á
auðvelt með að
melta hann. Bananar
geta líka stuðlað að heilbrigðum
hægðum. Þeir innihalda kalín (e.
potassium) sem er gott fyrir þig og
sérstaklega þá sem hafa átt erfitt
með að borða vegna veikinda.
8 Ristað brauð
Það er gott að fá
sér ristað brauð
þegar maður er
svangur eftir
magaóróleika. Settu
smá sultu á brauðsneiðina og þá er
komin auðmeltanleg máltíð. Eins
hefur því verið haldið fram að
brennt ristað brauð rói magann
aðeins, því gæti verið gott að rista
það aðeins meira en ella.
9 Fennika Þetta
grænmeti er ríkt
af andoxunar-
efnum og er
þekkt fyrir að
koma í veg fyrir
vindverki. Prófaðu
að borða hálfa teskeið af
fennikufræjum eða brytjaðu niður
smávegis af ferskri fenniku.
n Ráð við magakrampa og vindgangi n Óþarfi að rjúka út í lyfjabúð
Helga Dís Björgúlfsdóttir
helgadis@dv.is
Lærðu að þekkja raunverulega svengd
Mikilvægt að halda heilbrigðu sambandi við mat
S
amband fólks við mat get-
ur verið misgott, allt frá því að
vera mjög óheilbrigt að því að
vera mjög heilbrigt. Ein besta
leiðin til að eiga í heilbrigðu sam-
bandi við mat er að þekkja hvenær
maður er í rauninni svangur og
hvenær ekki.
Líkamlegt hungur er þegar þú ert
virkilega svangur. Þér líður eins og
maginn sé farinn að melta sjálfan sig
bara til þess að fá einhverja næringu.
Þú finnur fyrir líkamlegum áhrifum
frá þessu hungri. Garnagaul, haus-
verkur og svimi geta allt verið af-
leiðingar þess að vera of svangur.
Huglegt hungur er þegar þú tengir
saman tilfinningar og mat. Til dæm-
is ef þú ert gjarn á að borða þegar þú
ert stressaður þá er líklegt að þú finn-
ir fyrir hungurtilfinningu ef yfirmað-
ur þinn öskrar á þig. Þetta er líkam-
legt svar við tilfinningu.
Vanabundið hungur er hungur
sem tengist umhverfi eða aðstæð-
um. Kannski færðu þér að borða því
það er tími til kominn þegar þú kem-
ur heim úr vinnunni, þú ert á stað þar
sem þú yfirleitt borðar eða ert að gera
eitthvað sem þú tengir við mat. Áður
en þú borðar er mikilvægt að finna út
hvort þú sért í rauninni svangur eða
hvort þú sért bara að bregðast við
einhverju sem þú telur vera hungur.
Að þekkja muninn á þessum
þremur tegundum hungurs getur
gert gæfumuninn í sambandi fólks
við mat. n
helgadis@dv.is
Matur Mikilvægt er að
þekkja það hvenær maður er
svangur og hvenær ekki.
Þú velur
náttúrulega
Án Parabena og SLS
Partíið er búið
24 vísbendingar um að þú sért
búin að fá nóg af djamminu
n Þú vilt frekar liggja í sófanum en að
dansa á honum.
n Þú tímir ekki að kaupa þér enn einn
símann.
n Þú varst að kaupa þér nýja glansandi
skó og vilt helst halda þeim þannig.
n Þegar þú veifar höndunum út í loftið
er það áður en þú lætur þig detta í rúmið
eftir langan dag.
n Ef þú heyrir enn einu sinni í Pitbull er
hætta á að þú stingir einhver með hæl-
num þínum. Þú notar minna af glimmeri
og kýst frekar náttúrulegt útlit.
n Þú ræðir meira um ISIS en eftirpartí.
n Það pirrar þig ekkert að vita ekki
hvaða staðir eru þeir „heitustu“ í dag.
n Í huga þínum einkennist djammið
af löngum röðum, röð til að komast
inn, röð til að komast á klósettið, röð á
barinn, röð eftir leigubíl heim.
n Þú sendir bólfélaganum sms fyrir
klukkan 11 til að athuga hvort hann sé til
í að koma með þér heim.
n Þú ert búin að fá nóg af Rihönnu, En-
rique og Swedish House Mafia eða hvað
það nú er sem er spilað á klúbbunum
í dag.
n Allan tímann sem þú ert inni á
skemmtistað hugsar þú um það sem þig
langar að horfa á á Netflix.
n Þér finnst þetta ekki timbur-
mannanna virði.
n Maginn á þér þekkir orðið mun á landa
og góðu víni.
n Þú veist að þú munt ekki finna þér
maka á dansgólfinu.
n Þú skilur ekki af hverju tónlistin þarf
að vera svona hátt stillt.
n Þú getur ekki haldið þér vakandi nógu
lengi til að fá þér eitthvað sveitt að
borða eftir djammið.
n Þú kýst að geta farið á kósettið án
þess að bíða í hálftíma.
n Þú gengur í nærfötum núna.
n Þú ert búin að fá nóg af því að púsla
lífi þínu saman aftur hvern einasta
sunnudag.
n Tilhugsunin um að dansa við
ókunnugan æsir þig ekki lengur … heldur
hræðir þig.
n Þú lítur ekki lengur á hopp á dansgólf-
inu sem líkamsrækt.
n Koddinn þinn lyktar ekki lengur eins
og öskubakki.
n Þú velur diskókeilu fram yfir diskótek.
n Þér finnst einfaldlegra skemmtilegra
að sofa.