Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2014, Blaðsíða 31
Vikublað 9.–11. desember 2014 31
Fínn svefn-
herbergisdjass
Hvað sem annars má segja um
hljómsveitina ADHD þá stend-
ur hún varla undir nafni. Hér er
nefnilega kominn diskur sem
gagnast einnig þeim sem hafa
óskerta athyglisgáfu.
Hljómsveitin lætur kannski
ekki mikið fyrir sér fara, en fyrsta
plata hennar var valin djassplata
ársins árið 2009. Hér er komin sú
fimmta í röðinni.
Platan 5 er ósungin en listi-
lega vel spiluð af færum tón-
listarmönnum með Davíð Þór
Jónsson í broddi fylkingar.
Fyrsta lagið, Sveðjan, er þægi-
legur svefnherbergisdjass með
snert af hertrommum undir. Enn
betra er FreeAnglo með seið-
andi tenórsaxófón. Sumir með-
lima hljómsveitarinnar hafa
spilað með Mezzoforte, fyrstu
íslensku hljómsveitinni til að
„meika“ það erlendis og er þriðja
lagið hér nefnt Eyþór Gunnars-
son til heiðurs liðsmanni þeirrar
hljómsveitar. Hlið A lýkur síð-
an með Flugzeug sem eins og
nafnið bendir til sækir innblástur
enn lengra að, og gott ef ekki má
skynja arabíska strauma.
Hlið tvö hefst með Indjána-
dansi og hér halda rólegheitin
áfram, lagið er langt en borið
uppi af skemmtilegu samspili pí-
anós og kústatrommuleiks. Ekki
er ég nógu vel að mér í ADHD-
fræðum til að vita hver Afi Palli er
eða var, en hann fær að minnsta
kosti lag. Og hér fær örlítið sýru-
kenndur rafgítar að óma. Jörg
Thienelt er líklega tengiliður
þeirra í Þýskalandi þar sem plat-
an er að koma út og fær hann sitt
lag líka sem er nánast dáleiðandi
í einfaldleika sínum.
Og loks er horfið inn í Grænu
þokuna. Platan rennur ljúflega í
gegn sem bakgrunnstónlist, en
verðlaunar einnig nánari hlust-
un.
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Dómur
5
Flytjandi: ADHD
K
rummi Björgvins-
son situr sjaldan
auðum höndum
í tónlistinni. Fyr-
ir skömmu stofn-
aði hann einstaklingsver-
kefnið Döpur, sem nú er
orðið að dúói.
Jaðar og óhljóð
Döpur varð til þegar
Krummi var ekki á tón-
leikaferðalögum með
hljómsveit sinni Legend
enda er hann ekki þekkt-
ur fyrir að sitja lengi að-
gerðarlaus. Undir for-
merkjum sveitarinnar fetar hann
nýjar brautir við tónlistarsköpun.
Tónlistinni má lýsa sem einhvers
konar samsuðu af jaðarraftónlist,
pönki, harðkjarna og óhljóðum.
„Pönk-hugmyndafræðin er alls-
ráðandi í Döpur. Fólk hefur lýst
tónlistinni sem dáleiðandi hávaða
„black metal“-pönki með bjöguðum
hip hop töktum og dulúð,“ útskýrir
Krummi fyrir blaðamanni.
Sveitin vakti mikla
athygli á Airwaves í nóv-
ember fyrir sviðsframkomu
og framandi hljóðheim.
Þá mörkuðu tónleikarnir jafnframt
upphaf Döpur sem dúós en nýlega
slóst kærasta Krumma, Linnea Hell-
ström, í för með honum og komu
þau saman fram í fyrsta skipti á tón-
leikunum.
„Aðal „konseptið“ er að spila af
fingrum fram en samt vera með vissa
uppbyggingu í hverju tónverki. Það
er aldrei að vita hvað gerist á Döpur-
tónleikum eða hvert óhljóðin fara,
sem gerir þetta mjög spennandi,“
segir Krummi.
Gefa út á kassettu
Döpur hefur aðeins gefið út eitt lag á
vegum Lady Boy Records en að sögn
Krumma ku svokölluð „split plata“
vera í vinnslu. Þar munu listamað-
urinn Amfj og Döpur deila kassettu
saman.
„Hún mun líta dagsins ljós
snemma á næsta ári. Þetta verða
fimmtíu kassettur sem seldar verða á
tónleikum og í sérvöldum plötubúð-
um.“ n
krummi Fetar
Krummi Björgvinsson með nýtt og spennandi verkefni
G
eislaplatan byrjar næstum eins
og James Bond-mynd, það er
eitthvað svalt og sixtíslegt við
þetta. Sigríður Thorlacius söng-
kona er hér í dívuham, en það sem
kemur á eftir er öllu lágstemmdara.
Hljómurinn minnir áfram á six-
tísmyndir, en meira í ætt við djass en
popp, og gæti á stundum sómt sér vel
sem „sándtrakk“ við Mad Men-þátt.
Platan lætur ekki mikið yfir sér, enda
ekki ætlunin, en vex við hverja hlust-
un.
Ástin er hér alls staðar á sveimi,
í minningunni eða sem lífvörður er
drukknandi kona mænir á í hinu
ágæta lagi Lifeguard. Á næsta lagi,
Boundary of Hope, virðist ástin ógn-
andi og með illt í hyggju. Átakan-
legust er hún þó í Goodbye, þar sem
strengirnir mynda dramatíska and-
stæðu við harminn. Ástin er kvödd
þvert á væntingar sögupersónu sem
minnir stundum á kvenkyns og edrú
Tom Waits í kringum 1977.
Í Double Fling er ástinni boð-
ið inn, hér er allt hressilegra og fólk
annaðhvort búið að taka saman aft-
ur eða finna sér nýjan. Ekki virðist
hún þó hún þekkjast boðið og hálf
örvæntingarfullur trompet blæs lag-
ið út. Í World‘s Colliding lítur persón-
an út fyrir þennan litla heim sem tvær
manneskjur skapa, og sér að það
að ýmislegt að annars staðar. Rödd
Styrmis Sigurðssonar brýst hér í gegn
í annað sinn á plötunni. Kannski
tekur pólitíkin við þar sem ástinni
sleppir? Síðasta lagið, Resolution in
Revolution, er hins vegar án söngs.
Kannski hefur parið loksins fundið til-
gang í byltingunni. Vonandi hafa þau
gert það saman.
En hvernig sem fór, þá er að
minnsta kosti Containing the Dark af-
bragðs hlustun í skammdeginu. Hér
er myrkrið ekki flúið heldur er tekist á
við það. n
Gleymum ekki sorginni
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Dómur
Containing the Dark
Flytjandi: Geislar
„Þetta verða
fimmtíu
kassettur sem
seldar verða á tón-
leikum og í sérvöld-
um plötubúðum.
Ástfangin á sviði
Krummi og Linnea
mynda dúóið.
Reynslubolti Krummi hefur ekki verið við eina fjölina felldur í tónlistinni og hefur gert það gott með böndum á borð við Legend, Esja, Mínus og nú Döpur.
nýjar slóðir