Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2014, Page 37
Fólk 37Vikublað 9.–11. desember 2014
T
obba Marinós hélt upp
á þrítugsafmælið sitt
með pomp og prakt
síðastliðinn laugar-
dag, en hún varð þrí-
tug á sunnudaginn. Veislan
var haldin í sal á Fiskislóð úti
á Granda og einkenndist hún
af glensi og hlátrasköllum, í
anda Tobbu. Fjölmörg þekkt
andlit mátti sjá í veislunni
enda hefur hún komið víða
við, bæði í leik og starfi. Tobba
var að sjálfsögðu stórglæsileg
í veislunni og skartaði rauð-
um síðkjól. Karl Sigurðsson,
unnusti hennar, betur þekkt-
ur sem Kalli í Bagglút, var í stíl
við afmælisbarnið og klæddist
rauðri skyrtu. Það má þó segja
að dóttir þeirra, Regína, hafi
stolið senunni, en hún bræddi
gestina með brosi og hjali. n
Tobba þrítug
í rauðum kjól
Jólaleg í stíl
Eins og sönnum
pörum sæmir
voru Tobba
og Kalli í stíl í
veislunni.
Flottur pakki Baggalútur-
inn Bragi Valdimar Skúlason
mætti með sérlega fallegan
pakka sem eflaust innhélt
eitthvað nytsamlegt.
Í kvennafans Eiríkur Jónsson, ritstjóri Séð og heyrt, vissi ekki í hvorn
fótinn hann átti að stíga þegar þessar föngulegu dömur þustu að honum
og heimtuðu mynd. Stjörnuritstjórinn Björk Eiðsdóttir, Marta María,
umsjónarkona Smartlands, og Kolbrún Pálína Helgadóttir skemmtu sér
konuglega við að gera Eiríki þennan grikk.
Fallegar
mæðgur
Tobba brosti
sínu breiðasta
og dóttirin
Regína var
steinhissa
á þessum
jólasveini.
Flott kaka
Afmæliskakan
var sérstak-
lega jólaleg,
enda jólin á
næsta leiti.
Jólasprell
Jólasveinninn
reyndi að
bregða á leik
með Þorsteini
Guðmunds-
syni leikaraa,
sem virtist
ekki alveg
tilbúinn.
Djúpar samræður Halldór Halldórsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Ísafirði
og núverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, og Guðrún Bergmann,
rithöfundur og fyrirlesari, áttu í djúpum samræðum í útgáfuhófinu.
Girnilegt útgáfupartí
Mörtu Maríu
M
arta María, umsjónarkona
Smartlands, sendi frá sér
matreiðslubókina MMM
- Matreiðslubók Mörtu
Maríu, í síðustu viku og
að sjálfsögðu var blásið til útgáfu-
teitis að því tilefni. Fjölmargir mættu
til að fagna útgáfu bókarinnar með
Mörtu Maríu í Bókaverslun Forlags-
ins, og gæddu sér á gómsætum rétt-
um beint upp úr bókinni. Kærastinn
hennar, Ingimundur Björgvinsson,
var að sjálfsögðu á svæðinu og var
sinni konu innan handar. n
Nældu sér
í bók Þær
Berghildur og
Lillý nældu sér
að sjálfsögðu í
bókina hennar
Mörtu Maríu í
útgáfuteitinu.
Með
kærastann
Ragnheiður
Kristjónsdóttir,
fyrrverandi
ritstjóri Séð og
heyrt mætti
með kærasta
sinn upp á
arminn.
Geislandi Marta María hreinlega geislaði af gleði í útgáfuhófinu og kærastinn hennar, Ingimundur Björgvinsson, var að sjálfsögðu á svæðinu.
Flottar skvísur Sigur-
laug, Eva Dögg Sigurgeirs-
dóttir, ritstjóri Tíska.is
fögnuðu útgáfu bókarinnar
með Mörtu Maríu.
Glæsilegar
Fjölmiðlakonan Sirrý
og Kolbrún Pálína
brostu fallega til
ljósmyndarans.