Bændablaðið - 26.03.2015, Side 6

Bændablaðið - 26.03.2015, Side 6
6 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. mars 2015 Málgagn bænda og landsbyggðar Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og fjöl margra annarra er tengjast land búnaði. Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu. Árgangurinn kostar kr. 7.500 en sjötugir og eldri og lífeyrisþegar greiða kr. 3.750. Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300– Fax: 562 3058 – Kt: 631294-2279 Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 – Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is Blaðamenn: Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Auglýsingastjóri: Erla H. Gunnarsdóttir ehg@bondi.is – Sími: 563 0303 – Frágangur fyrir prentun: Prentsnið. Netfang blaðsins (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Netfang auglýsinga er augl@bondi.is Vefsíða blaðsins er www.bbl.is Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Landsprent og Íslandspóstur annast dreifingu blaðsins. ISSN 1025-5621 LEIÐARINN Nú hækkar sól á lofti og maður fer að komast í sólskinsskap. Samt er stundum dapurt að fylgjast með fúkyrðaflaumi og skítmokstri fólks á fésbókinni. Þar virðist ekki síst um að ræða mjög vanstillt fólk sem telur sig upplýstara en flesta aðra og setur sig gjarnan á háan stall og þykist langt yfir skítugan almenning hafið. Nóbelsverðlaunastíla þessa fólks mátti t.d. lesa eftir að opnuð var fésbókarsíða Bændablaðsins í vikunni. Sem dæmi þá varð þeim ágæta manni Hrafni Jökulssyni á að fara lofsamlegum orðum um Bændablaðið í „kommenti“ sínu um þessa síðu. Það var eins og við manninn mælt að flóðgáttir upplýsta fólksins opnuðust við skjall Hrafns og út vall óhroðagröfturinn eins og því fólki er öðrum betur lagið að matreiða. Þráinn Bertelsson skrifar: „Heiladauður áróður og ofsóknaræði gagnvart Evrópusambandinu gegnsýrir þetta blað sem ég las að staðaldri áður en það fór yfirum.“ – Já, kannski spurning um hver hefur farið yfir um? Hin upplýsta fyrrv. þingkona Samfylkingarinnar, Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri á Dalvík, setur inn fullyrðingu: „Ríkisstyrktur áróður gegn ESB.“ Henni til upplýsingar þá er Bændablaðið rekið fyrir auglýsingatekjur en ekki með fjármunum úr ríkissjóði. Hinn mikli penni og fyrrv. DV-ritstjóri og frístundabóndinn Jónas Kristjánsson skrifar: „Allt á kostnað skattgreiðenda.“ Það vafðist samt ekki fyrir þessum frábærlega pennafæra manni að leita ásjár Bændablaðsins um árið. Þá þótti honum blaðið frábær vettvangur fyrir opnuumfjöllun enda þurfti hann þá á því að halda að kynna fínu hestabókina sína. Egill Helgason skrifar: „Leiðindablað.“ Egill, sem er eflaust einn upplýstasti maður þjóðarinnar, hefur samt ekkert farið dult með að hann lesi aldrei Bændablaðið. Hvernig veit hann þá að það sé leiðinlegt? Það voru samt miklu fleiri sem skrifuðu jákvæðar athugasemdir um Bændablaðið. Þannig skrifaði m.a. Ágústa Ósk Jónsdóttir: „Gömul bóndakona sendir þér þakkir, Hrafn. Alveg gengur yfir mig hvað fólk getur látið út úr sér ef minnst er á bændur. Og hvenær varð Bændablaðið gefið út á kostnað ríkisins? Sá má vera laginn að ljúga sem lætur menn trúa.“ Með kærri kveðju til velunnara Bændablaðsins sem og gagnrýnenda með ósk um að þið megið öll eiga gleðilega páska. /HKr. LOKAORÐIN Ár jarðvegsins Sameinuðu þjóðirnar hafa ákveðið að helga árið 2015 málefnum jarðvegsverndar og er það virðingarvert. Það er að renna upp fyrir heimsbyggðinni að til þess að fæða milljarða manna í framtíðinni þarf að huga vel að jarðveginum – moldinni og öllu því sem af henni sprettur. „Heilbrigður jarðvegur – heilbrigt líf“eru einkunnarorð þessa framtaks Sameinuðu þjóðanna. Jarðvegur er undirstaða stórs hluta matvælaframleiðslu í heiminum hvort sem það er ræktun matjurta eða búfjár. Þurfum að taka okkur á Afleiðingar aukins mannfjölda og umhverfisáhrif vegna ræktunar og loftslagsbreytinga eru með stærstu viðfangsefnum framtíðarinnar. Til þess að jörðin sé byggileg þurfum við mennirnir að taka okkur á og meðal annars finna lausnir til að framleiða meiri mat. Þær lausnir mega þó ekki vera á kostnað jarðarinnar. Jarðvegurinn er undirstaða landbúnaðarins, nauðsynlegur lífkerfinu og fæðuöryggi jarðarbúa. Sjálfbær nýting og virðing fyrir því sem jörðin gefur af sér er lykillinn að því að tryggja fæðuöryggi til framtíðar. Bændur um víða veröld berjast við vandamál sem má meðal annars rekja til þess að ekki hefur verið gætt nægilega vel að jarðvegsgæðum. Loftslagsbreytingar og breytt veðurfar hafa vissulega haft sitt að segja í því efni, en þær breytingar eru líka af mannavöldum, þó með öðrum hætti sé. Of mikið ræktunarálag, mengun, ofnotkun á áburði, varnarefnum og einhæf ræktun hafa víða leitt menn í ógöngur. Við höfum því miður rýrt gæði jarðarinnar verulega og það er eitt stærsta sameiginlega viðfangsefni okkar allra að snúa þeirri þróun við. Það er og verður erfitt, en ekki útilokað. Hér á landi elds og ísa þekkjum við vel hvað jarðvegurinn er mikilvægur og viðkvæmur. Íslenskir bændur hafa gert sitt til þess að vernda og byggja upp heilbrigðan og gjöfulan jarðveg. Þó svo að hér sé nægt landrými til ræktunar, miðað við þann landbúnað sem nú er rekinn í landinu, þá verðum við að hafa í huga að við erum með takmarkaða auðlind í höndunum og verðum að fara vel með hana. Þar má nefna tvennt sem bændum er hugleikið: landgræðslu og beitarstjórnun. Saga skipulegrar landgræðslu á Íslandi nær aftur til ársins 1907 þegar fyrstu lög um landgræðslu og skógrækt voru samþykkt á Alþingi. Við þekkjum öll árangur sem náðst hefur við að endurheimta fyrri landgæði, til dæmis á Skeiðunum í Árnessýslu þar sem nú er blómlegur landbúnaður en svartir sandar ógnuðu búskap um tíma. Bændur hafa tekið fullan þátt í baráttunni gegn landeyðingunni Íslenskir bændur hafa tekið fullan þátt í baráttunni gegn landeyðingunni. Um 600 taka nú þátt í landgræðsluverkefninu „Bændur græða landið“ með Landgræðslu ríkisins. Verkefnið hefur verið starfrækt frá 1990, auk þess sem ýmsir sinna afmörkuðum verkefnum í samstarfi við landbótafélög, nágranna- eða sveitarfélög. Þessir aðilar hafa með ötulu starfi á viðkvæmum svæðum náð að hefta jarðvegseyðingu og klæða landið gróðri á ný. Nú er talið að meira grói upp en það sem eyðist og landið því í framför. Það er mikið ánægjuefni. Bændur eru eins og að framan greinir fjölmennur hópur landgræðslufólks hérlendis. Miklu skiptir að það starf haldi áfram og eflist. Því miður hefur oft komið upp núningur á milli bænda og Landgræðslunnar í þessum verkefnum eins og til dæmis hefur komið fram á síðum Bændablaðsins. Það er höfuðnauðsyn að Landgræðslan geri allt sem í hennar valdi stendur til að hafa bændur með sér í þessum verkefnum. Á það hefur stundum skort og það þarf að breytast. Landbótastarfið þarf á því að halda. Náttúruöflin stórtæk Umfjöllun um þessi mál hefur vaxið í kringum jarðhræringar og eldgos síðustu ára. Þar höfum við séð hvernig milljónir tonna af jarð- og gosefnum hafa fokið um hálendið, um ræktarlönd bænda og út í hafsauga á stuttum tíma. Fyrirgangur náttúrunnar hefur spillt stórum svæðum og valdið margháttuðum vandamálum í búskap. Nú í vikunni var haldið vel heppnað málþing í Bændahöllinni um gosið í Holuhrauni og afleiðingar þess. Þar kom meðal annars fram að gosið var eitt af 10 stærstu eldgosum sem þekkt eru í sögunni. Afleiðingar og áhrif þess eru enn ekki ljós nema að litlu leyti og fjölmargar rannsóknir eru enn í gangi, en fyrstu niðurstöður benda til að neikvæð áhrif hafi verið minni en vænta mátti. Beitarálag hefur snarminnkað á síðustu áratugum Hluta ársins gengur sauðfé og að hluta til hross á afrétt, upp til fjalla og inn til dala. Beitarálag hefur snarminnkað á síðustu áratugum og beitinni er stjórnað betur en áður var. Flestir bændur vinna eftir ákveðinni gæðastýringu sem meðal annars miðar að því að fara vel með landið. Minna álag er á viðkvæm afréttarlönd og víða hafa menn náð að græða upp og styrkja rýr svæði. Fækkun sauðfjár hefur haft sitt að segja en einnig hafa búskaparhættir breyst. Stærsta breytingin er að vetrarbeit sauðfjár hefur lagst af, en hún olli miklu álagi á landið á meðan hún tíðkaðist. Fleiri bændur beita fé sínu á heimalönd eða upprekstrarheimalönd, en talið er að tæpum fjórðungi sauðfjár sé beitt á afréttarlönd. Moldin er auðlind Það er fagnaðarefni að umræða um mikilvægi jarðvegsins sé nú komin á flug. Við þurfum í sameiningu að fræða og auka vitund um mikilvægi þessa málaflokks. Þjóðin tók vel undir um miðjan níunda áratuginn þegar skógrækt og landgræðsla voru í deiglunni hjá fjölmiðlum og í þjóðfélaginu öllu. Fólk var meðvitað um gildi þess að rækta og bæta landgæði. Þá stemmingu þurfum við að endurvekja. Um leið þarf að ræða til hlítar um landnýtingu og hvernig við viljum umgangast þá auðlind sem felst í moldinni. /SSS Sameinuðu þjóðirnar hafa tileinkað árið 2015 moldinni og hvetja aðildarþjóðir sínar til að stuðla að vitundarvakningu á mikilvægi jarðvegs og jarðvegsverndar af því tilefni. Opnunarhátíð Árs jarðvegsins fór fram í Tjarnarbíói í gær. Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri setti dagskrána og bauð gesti velkomna. Því næst fluttu Sigrún Magnúsdóttir umhverfisráðherra, Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, Björn Blöndal, formaður borgarráðs Reykjavíkur, ávörp. Að því loknu var heimildarmyndin Dirt! The Movie sýnd en myndin sýnir á áhrifaríkan hátt mikilvægi jarðvegsins fyrir lífið á jörðinni. Ólafur Arnalds, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands, ávarpaði samkomuna að myndinni lokinni og sagði frá sérstöðu íslensks jarðvegs og kynnti nýja bók sem hann hefir skrifað og nefnist The Soil of Iceland. Grundvöllur menningarinnar Í ávarpi sínu sagði Sveinn meðal annars að þrátt fyrir að jarðvegur væri grundvöllur menningarsamfélaga heimsins væri víðast illa farið með hann og jarðvegur meðhöndlaður á ósjálfbæran hátt. „Jarðvegseyðing og jarðvegshnignun er talin ein alvarlegasta ógn jarðarbúa. Sem betur fer er þó jarðvegsvernd að verða meira áberandi viðfangsefni á til að mynda vettvangi Sameinuðu þjóðanna því æ fleiri gera sér grein fyrir því að með jarðvegsvernd tryggjum við betra aðgengi að vatni, aukum vernd á líffræðilegum fjölbreytileika og drögum úr áhrifum loftslagsbreytileika.“ Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- ráðherra sagði það við hæfi að árið 2015 væri tileinkað jarðveginum eða moldinni. „Með því er verið að leggja áherslu á mikilvægi moldarinnar hvað varðar fæðuöryggi og leiðir til að draga úr loftslagsbreytingum er verið að auka vitund þjóða heims á jarðvegsvernd.“ Jarðvegur í borg Í máli Björns Blöndal, formanns borgarráðs Reykjavíkur, kom fram að þrátt fyrir að finna mætti margs konar jarðvegsgerðir innan borgarmarkanna hefði til skamms tíma lítið verið hugað að mikilvægi varðveislu hans. „Í seinni tíð hafa komið fram hugmyndir um að koma upp jarðvegsmiðlun þar sem hægt væri að leggja inn og nálgast jarðveg og ýta þannig undir skynsamlega nýtingu hans.“ Lesa má hluta af ávarpi Sindra Sigurgeirssonar, formanns BÍ, í leiðaranum hér á ofan. /VH Af fúkyrðunum þekkjast þau 2015 alþjóðlegt ár jarðvegsins: Mikilvægi jarðvegsins ótvírætt Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri og Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands. Mynd / VH

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.