Bændablaðið - 26.03.2015, Side 12

Bændablaðið - 26.03.2015, Side 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. mars 2015 Fréttir Á svínabúinu á Ormsstöðum í Grímsnesinu hefur undanfarið ár verið unnið að því hvernig mögulegt er að hætta geldingum á galtargrísum og kanna hvort og hvað hefur áhrif á gæði og nýtingu kjötsins. Guðný Tómasdóttir, svína- bóndi á Ormsstöðum, kynnti þróunarverkefnið á fundi í Bændahöllinni á mánudaginn og segir að það hafi gefið það góða raun að ástæða sé til þess að halda því áfram. Enda sé til mikils að vinna bæði varðandi dýravelferð og hagræðingu í búskapnum. Matís og Sláturfélag Suðurlands hafa unnið með Guðnýju að verkefninu. Mikilvægt skref fyrir dýravelferð „Það er til mikils að vinna að kanna þetta til fulls. Í fyrsta lagi er það stórt dýravelferðarmál að geta hætt geldingum alfarið. Í öðru lagi þá felast í þessu tækifæri til hagræðingar í búskapnum, bæði vegna vinnusparnaðar og aukins vaxtahraða galtanna,“ segir Guðný. Hún segir að þau séu ekki að finna upp hjólið í þessum efnum því bæði Írar og Bretar hafi ræktað svín um árabil án þess að gelda með góðum árangri, auk þess sem bæði Hollendingar, Spánverjar og fleiri þjóðir hafi verið að prófa sig áfram í þessu á undanförnum árum. „Ég hef lengi haft áhuga á því að prófa að hætta geldingum og í ljósi þess að svínabændur hafa gert það í öðrum löndum, fannst mér rétt að láta á það reyna hjá okkur,“ segir Guðný. Snýst um að koma í veg fyrir galtarlykt Ástæða þess að geldingar eru stundaðar við nær allan svínabúskap í heiminum er að það kemur í veg fyrir að svokölluð galtarlykt komi af kjötinu sem getur fælt neytendur frá því að neyta þess. „Vinnan í þessu þróunarverkefni snýst um að finna leiðir til að koma í veg fyrir þessa galtarlykt,“ segir Guðný og bætir við: „Þær niðurstöður sem við höfum fengið benda til þess að með réttum aðferðum, sérstaklega í tengslum við fóðurgjöf, er hægt að ná þessu markmiði.“ Verkefnið hófst í maí í fyrra og fékk Guðný til samstarfs við sig Matís og Sláturfélag Suðurlands. „Við ákváðum að gelda ekki grísi sem fæddust á tveggja vikna tímabili og urðu þetta um 80 galtargrísir,“ segir Guðný. Matís sá um að rannsaka fituna úr dýrum til að greina galtarbragð, lyktin er eingöngu í fitunni. Sláturfélagið tók að sér slátrun en einnig var farið með hlut af grísahópnum til slátrunar hjá Stjörnugrís í Saltvík til að fá samanburð á því hvort það hefði áhrif hvar og hvernig grísunum væri slátrað. Þá voru einnig gerðar smá prufur frá öðrum búum sem hafa komið til slátrunar hjá Norðlenska til að fá þann samanburð. Fóðurgjöf er lykilatriði Þegar grísunum hafði verið slátrað voru unnar ýmsar afurðir úr kjötinu af þeim og gerðar bragð- og lyktarprófanir. „Niðurstöðurnar úr þeim prófunum voru að enginn þeirra sem smakkaði kjötið fann óbragð. Vandamálið virðist einkum liggja í fitunni og geymist hún ekki vel,“ segir Guðný. „Eftir bragðprófunina fórum við yfir málin og leituðum skýringa á hvaða þættir gætu verið að hafa áhrif. Eftir þetta teljum við að fóðurgjöfin sé algjört lykilatriði því að ógeltu grísirnir vaxa hraðar og hefðu líklega þurft meiri fitu og meira aðhald í fóðruninni þannig að hægt væri að koma þeim fyrr til slátrunar. Þeir grísir sem voru í tilrauninni voru á sömu fóðrun og við erum vön með aðra grísi, en á vissum tímapunkti uxu grísirnir svo hratt að við misstum þá niður í vigt. Því væri hægt að taka prufur á grísum mikið fyrr til að kanna hvort þeir séu ekki á einhverjum tímapunkti örugglega lausir við galtarlykt.“ Mikilvægt að halda áfram Guðný segir að mikill áhugi sé á því að halda áfram með verkefnið enda sé til mikils að vinna. „ Það er óskastaða að geta hætt að gelda og geta slátrað á vissum tímapunkti þar sem hægt er að tryggja neytendum kjöt á diskinn sinn sem er laust við alla galtarlykt.“ Spurð um hver séu næstu skef í verkefninu segir Guðný að nú sé beðið eftir svari frá Framleiðnisjóði um hvort styrkur fáist til að halda verkefninu áfram og gera frekari prófanir byggðar á þeirri reynslu og þekkingu sem þegar hefur verið aflað. Þá standi einnig til að að halda fund til að kynna verkefnið fyrir bændum og matvælaframleiðendum. „Þá þurfum við að safna saman upplýsingum frá þeim löndum þar sem gerðar hafa verið rannsóknir til að sjá hvaða möguleika við höfum og jafnvel fá sérfræðing að utan í heimsókn. Við þurfum að vega og meta alla kosti og galla og í framhaldinu þyrfti kjötmatið að breytast til að gefa afurðastöðvum og bændum möguleika á að velja þessa leið ef þeim hugnast svo,“ segir Guðný. Tilraunastarf á svínabúinu á Ormsstöðum hefur gefið góða raun: Þróa aðferðir til að hætta geldingum - Gefur tækifæri til að auka dýravelferð og hagræði Leikfélag Hveragerðis sýnir um þessar mundir leikritið „Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan“. Leikritið er eftir Marc Camoletti en leikgerð og þýðing eftir Sigurð Atlason. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir. Leikritið fjallar um Jónatan sem býr með þremur flugfreyjum, þeim Herdísi, Hafdísi og Hjördísi, sem allar vinna hver hjá sínu flugfélaginu og koma heim á mismunandi tímum og vita ekki af hver annarri. Á heimilinu er einnig heimilishjálpin Dísa. Hlutirnir fara svo að flækjast þegar Róbert, vinur Jónatans, kemur í heimsókn og fær að búa hjá honum í nokkra daga. Leikritið er ærslafullur farsi þar sem einn kemur þá annar fer. Nokkur þekkt sönglög eru flutt í leikritinu eins og t.d. Ég fell bara fyrir flugfreyjum, Rassmus, I wont to brake free, Fly me to the moon og fleiri. Leikarar eru Davíð Michelsen, Hjörtur Benediktsson, Hrafnhildur Faulk, Irma Lín Geirsdóttir, Hrefna Ósk Jónsdóttir og Elín Hrönn Jónsdóttir. Frumsýnt var laugardaginn 7. mars fyrir fullu húsi. Sýnt er í Leikhúsinu Austurmörk 23 í Hveragerði næstu helgar, föstudags- og laugardagskvöld klukkan 20.00. Miðapantanir eru í síma 8638522. Sjá má fleiri myndir og fréttir á Facebook-síðu Leikfélags Hveragerðis. /MHH/HKr. Leikfélag Hveragerðis: „Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan“ REYKJAVÍK Krókháls 5F 110 Reykjavík Sími: 414-0000 AKUREYRI Baldursnes 2 603 Akureyri Sími: 464-8600 www.VBL.is REYKJAVÍK Sími: 414-0000 /// AKUREYRI Sími: 464-8600 /// www.VBL.is HAUGSUGUHLUTIR ÚRVALIÐ ER HJÁ OKKUR – KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Tveir af leikurunum í verkinu en það er ærslafullur farsi þar sem einn kemur þá annar fer. Mynd / MHH Guðný kynnti tilraunirnar á Ormsstöðum fyrir öðrum svínabændum og fulltrúum afurðastöðva á fundi í Bændahöllinni sl. mánudag. Myndir / HKr. Aðalheiður Ólafsdóttir lýsti rannsóknum Matís í ferlinu, en reiknað er með að halda þeim áfram. Hallgerður Hauksdóttir, formaður Dýraverndunarsambands Íslands, lýsti mikilli ánægju með þessar tilraunir. Fundargestum var boðið að smakka afurðir af svínum frá Ormsstöðum sem ekki hafa farið í gegnum hefð- bundið geldingaferli í samanburði við hefðbundið svínakjöt á markaðn- um.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.