Bændablaðið - 26.03.2015, Qupperneq 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. mars 2015
Undanfarið hafa Svavar Pétur
Eysteinsson og Berglind Häsler á
Karlsstöðum í Djúpavogshreppi
unnið að þróun á snakki úr
gulrófum. Þeim fannst vanta
snakk á markað úr heilnæmum
hráefnum sem hægt væri að rækta
hér á landi. Gulrófan varð fyrir
valinu, sítróna norðursins, stútfull
af C-vítamíni og stuði.
Gulrófusnakkið hefur hlotið
nafnið Sveitasnakk og verður sett
á markað undir merki þeirra hjóna,
HAVARÍ. Rófurnar eru sneiddar og
bakaðar (ekki djúpsteiktar) og svo
eru þær kryddaðar með ferskum
chilipipar, hvítlauk og sjávarsalti.
Afurðin verður því fyrsta flokks
heilsusamlegt Sveitasnakk úr
gulrófum.
Markmiðið er að framleiðslan
og ræktun allra hráefna fari fram
á sveitabæ þeirra, Karlsstöðum,
en þau eru nú þegar búin að
undirbúa nokkra hektara lands fyrir
gulrófuræktun. Á Karlsstöðum er
eldra fjós sem er nú að fá nýtt líf sem
snakkverksmiðja. Fyrsta skref var að
rífa allar innréttingar og klæðningar
innan úr því. Þá teiknuðu þau upp
snakkverksmiðjuna, réðu smið og
hófust handa við að gera upp húsið.
Vinna við framleiðsluaðstöðuna
gengur vel
Svavar segir að verkefnið gangi mjög
vel. „Við erum búin að þróa vöruna
og uppskriftin er klár. Nú erum við
að byggja eldhús til að geta bakað
snakkið. Þetta er allt unnið í nánu
samstarfi við heilbrigðisfulltrúann
hér á svæðinu og er eldhúsið gert
samkvæmt ströngustu kröfum. Þá
fengum við Matís til að ráðleggja
okkur með teikningar. Núna erum
við að vinna í lóðinni og gera hana
klára meðan við bíðum eftir ofninum
sem er á leiðinni. Síðan stefnum við
á að hefja framleiðslu með vorinu.
Við eigu eitthvað af rófum í geymslu
í Lindarbrekku.“
Einstakt Sveitasnakk á heimsvísu
Svavar segir að Sveitasnakk sé
trúlega einstakt sem matvara á
heimsvísu. Víðast hvar séu rófur
ekki ræktaðar til manneldis eins
og hér, heldur nær eingöngu sem
skepnufóður. Vöruþróunin var
gerð í samstarfi við MATÍS og á
lokametrum þróunarvinnunnar hvarf
snakkið jafn harðan úr skálunum
ofan í gesti og gangandi.
„Ég held að gulrófusnakk sé því
varla til á plánetunni. Það er þó til
ýmiss konar snakk úr rótarávöxtum,
eins og rauðrófum og sætum
kartöflum sem eru þá djúpsteiktar.
Munurinn á okkar snakki er að það
er ekki djúpsteikt heldur þurrkað,
bakað og kryddað. Það eru engin
aukaefni í þessu þannig að þetta
verður mjög heilnæmt, c-vítamínríkt
og kolvetnissnautt. Þetta er mjög
bragðgott og mikil ánægja með
þetta hjá þeim sem hafa verið að
bragðprófa þetta með okkur við
vöruþróunina.“
Fjármögnun gengur vel
Svavar segir að framkvæmdirnar
séu meðal annars fjármagnaðar
með hópfjármögnun á https://
www.karolinafund.com. Þá hefur
Nýsköpunarmiðstöð, Landsbankinn
og Vaxtasamningur Austurlands
einnig styrkt verkefnið. Þau hafa
jafnfram sótt um nokkra opinbera
nýsköpunarstyrki sem þau binda
vonir við að fá.
Á Karolina Fund gefst
áhugasömum kostur á að leggja
verkefninu lið með því að kaupa
fjármögnunarpakka í öllum stærðum
og gerðum. Ýmsar leiðir eru í boði,
allt frá snakkpakka úr fyrstu lögun
ásamt árituðu viðurkenningarskjali,
upp í heimsókn í snakkverksmiðjuna,
dvöl á gistiheimilinu, tónleika með
Prins Póló og Bulsu-veislu. Þannig
getur fólk hjálpað til við að koma
á fót nýstárlegri snakkverksmiðju
þar sem lögð verður stund á
matarhandverk úr hágæða hráefnum.
„Fjármögnunin gengur vel og við
erum búin að safna tæplega 5.000
evrum með sölu á vörunni fyrirfram.
Slík sala gerir okkur kleift að standa
straum af kostnaði við vöruþróunina
og byggingu á eldhúsinu,“ segir
Svavar.
Hægt er að fylgjast með fram-
vindunni á https://www.facebook.
com/hahavari og á heimasíðunni
http://www.havari.is
/HKr.
Fréttir
Gulrófu-snakkverksmiðja á Karlsstöðum í Berufirði í Djúpavogshreppi verður klár með vorinu:
Einstakt Sveitasnakk á heimsvísu
− Verkefnið fjármagnað með fyrirframsölu á afurðunum, gistingu, tónleikum og bulsum
Hjónin Svavar Pétur Eysteinsson og Berglind Häsler með Karlsstaði í baksýn.
Hljómsveitin Prins Póló talið frá vinstri: Berglind Häsler, Benedikt Hermann,
Svavar Pétur og Kristján Freyr en hljóðmeistarann Flex vantar á myndina.
Mynd / Þórunn Hafstað.
Mynd / Baldur Kristjánsson