Bændablaðið - 26.03.2015, Page 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. mars 2015
Vatn er drifkraftur alls lífs á
jörðinni og án þess kemst enginn
maður af. Fjölmargir vísindamenn
hafa af því miklar áhyggjur að
mannkynið sé þegar farið að
ganga um of á vatnsbirgðir sínar
sem kunni að orsaka mikil átök í
náinni framtíð.
Í síðasta jólablaði Bænda blaðsins
var greint frá grunnvatnsmælingum
NASA sem framkvæmdar voru með
gervihnöttum. Þær sýndu miklu verri
stöðu hvað grunnvatnsbirgðir varðar
víða um lönd en menn höfðu áður
talið. Þó Íslendingar bölvi harðri
náttúru á Íslandi með öllu sínu roki,
þá búa samt fáar þjóðir eins vel og
Íslendingar hvað varðar vatn og
ýmsar aðrar náttúruauðlindir. Við
megum því búast við aukinni ásókn
í okkar náttúrugæði á komandi árum
og þá ekki síst vatnið. Því hlýtur að
vera mikilvægt að þjóðin fari vel
með þessa auðlind og tryggt sé
að allir Íslendingar eigi sinn rétt
hvað varðar almennt aðgengi að
nægu hreinu vatni. Einnig að tryggt
verði að nýtingarréttur á vatni verði
aldrei framseldur í hendur einstakra
fjárfesta um alla ókomna framtíð.
Hvers vegna mun skortur
á ferskvatni valda næstu
hörmungum?
Í breska blaðinu The Observer
var birt grein eftir Robin McKie,
vísindaritstjóra blaðsins, þann 8.
mars sl. undir fyrirsögninni; Hvers
vegna mun skortur á ferskvatni valda
næstu hörmungum? Þar er vitnað
til nokkurra dæma um ástandið. Þar
segir m.a.:
„Því miður fyrir okkar plánetu,
þá eru auðlindir jarðar nú að verða
uppurnar með ógnvænlegum hraða.
Fólki heldur áfram að fjölga, en
ekki hefur tekist að tryggja allri
þeirri fjölgun aðgengi að fersku
vatni. Djúpstæðar afleiðingar af
því eru nú að koma í ljós. Fregnir
berast af stórum svæðum víða um
heim þar sem vatnsbirgðir hafa verið
að þorna upp. Meira en milljarður
einstaklinga, eða sjöundi hver
jarðarbúi, býr nú við skort á hreinu
og öruggu drykkjarvatni. Í fyrstu
viku mars var ástandið svo slæmt
í brasilísku borginni São Paulo að
íbúar voru í örvæntingu sinni farnir
að bora niður í jörðina um alla borg í
leit að vatni. Það var borað í gegnum
kjallaragólf og á bílastæðum til að
reyna að finna grunnvatn. Yfirvöld
borgarinnar tilkynntu þá að líklegt
væri að gripið yrði til skömmtunar
á vatni og að íbúar kynnu aðeins
að hafa aðgengi að vatni tvo daga
í viku.“
Rifist út af tankbíl með vatni
Þess má geta að Brasilía er talin
geyma um 12% af ferskvatnsbirgðum
heimsins. Vatnsskortur er því
eitthvað sem íbúar þar í landi hafa
ekki þurft að óttast fram undir
þetta. Vatnskreppan í São Paulo
eða „vatnshrunið“ eins og þetta
fyrirbæri hefur líka verið nefnt, er
sagt hafa stillt 20 milljón íbúum
borgarinnar fram á brún hengiflugs.
Í einu blokkahverfi borgarinnar gripu
yfirvöld til þess ráðs í febrúar að fá
tankbíl með 90 þúsund lítra að vatni.
Það kostaði sem svaraði ríflega 250
þúsund krónum. Upphófst síðan
mikið rifrildi og deilur þegar farið
var að ræða hvernig ætti að skipta
kostnaðinum niður á íbúa og afgreiða
þessi mál í framtíðinni.
Fjórða þurrkaárið í röð í
uppsiglingu í Kaliforníu
„Í Kaliforníu hafa yfirvöld lýst
því yfir að ríkið sé nú líklega að
ganga inn í fjórða þurrkaárið í röð.
Janúarmánuður hafi verið sá þurrasti
síðan skráning veðurfarsmælinga
hófst. Á sama tíma hafi vatnsnotkun
á hvern íbúa stöðugt verið að aukast.
Arabísku furstadæmin í vanda
Í Mið-Austurlöndum hafi dreifbýl
svæði verið að breytast í eyðimörk
vegna ofnotkunar á grunnvatni.
Einna verst er ástandið að verða
í Íran. Stórkostleg ofnotkun á
vatni samfara lítilli úrkomu hafa
orsakað það að vatnsból þorna
upp með alvarlegum afleiðingum
fyrir landbúnaðarframleiðsluna.
Af sömu ástæðu hafa arabísku
furstadæmin verið að fjárfesta í
vatnseimingarstöðvum og stöðvum
til að hreinsa vatn úr skólpi.
Krónprinsinn Sheikh Mohammed
bin Zayed al-Nahyan viðurkenndi
alvarleika málsins þega hann
sagði: „Fyrir okkur er vatn orðið
mikilvægara en olían.“
Stórkostlegur vandi í uppsiglingu
í Suður-Asíu
Í greininni í Observer er sagt að
svipaðar fregnir séu að berast úr
öðrum heimshlutum. Í Suður-
Asíu hafi t.d. verið greint frá
gríðarlegu grunnvatnstapi. Þar hafi
grunnvatni verið dælt upp af miklu
ábyrgðarleysi í heila öld. Um 600
milljónir manna búi nú á svæði
frá austurhluta Pakistan á þurrum
sléttum Norður-Indlands og inn
í Bangladesh, sem er ekki nema
2.000 ferkílómetrar að stærð eða um
2% af flatarmáli Íslands. Á þessu
svæði er stunduð mesta vökvun
fyrir landbúnaðarframleiðslu á
jörðinni. Um 75% bænda á þessu
svæði reiða sig á uppdælingu á
grunnvatni til að vökva ræktarlönd
sín og vatnsnotkunin fer vaxandi. Á
sama tíma sýna gervihnattamyndir
að staða grunnvatnsins í jarðlögum
rýrnar með ógnvænlegum hraða.
Bandarísk umhverfisrannsókn
sýnir að í heild nemi ferskvatnið
á jörðinni 10,6 milljónum
rúmkílómetra. Ef þetta yrði sett í einn
vatnsdropa væri hann 272 kílómetrar
í þvermál. Um 99% af þessu vatni
er grunnvatn og talsvert af því er
ekki aðgengilegt. Til samanburðar
er allt vatn í ám og vötnum, sem er
önnur meginuppspretta neysluvatns
á jörðinni, að gefa af sér vatnsdropa
sem væri tæplega 56 kílómetrar í
þvermál. Þessi vatnsuppspretta er
í vaxandi hættu samhliða hlýnun
jarðar.
Þessu til viðbótar er bent á að
hlýnun jarðar sé nú að leiða til þess
að jöklar hverfi sem hafi mikil áhrif
á byggðir á vatnasvæðum neðan
þeirra jökla.
Vatnsskortur veldur deilum
Á fundum ráðamanna um allan heim
hefur komið fram að fjöldi þeirra
jarðarbúa sem hafi ekki aðgengi að
nægu vatni muni vaxa stöðugt út
21. öldina. Sífellt fleira fólk verði
að slást um þessa auðlind. Stutt sé
síðan leyst var úr deilu Egypta og
Eþíópíumanna um stíflu í ánni Níl. Í
framtíðinni er líklegt að koma muni
upp mun alvarlegri átök samfara
uppþornun vatnslinda.
Norðurslóðir ekki ónæmar
fyrir hættunni
Greinarhöfundur í Observer segir að
norðurslóðir séu alls ekki ónæmar
fyrir þessu ástandi, þó þar sé meiri
Sérfræðingar og stjórnmálamenn áhyggjufullir af stöðu neysluvatnsmála heimsins:
Skortur á ferskvatni talinn
valda næstu hörmungum
− Ástandið víða orðið ógnvænlegt og hratt er gengið á grunnvatnsbirgðir á stórum svæðum
Þurrkar í
Kaliforníu
Kaliforníubúar horfa nú fram
á að þurfa að upplifa fjórða
þurrkaárið í röð. Í fyrrasumar
gáfu stjórnvöld ríkisins út
viðvörun um að þurrkar
myndu kosta gríðarlegar
upp hæðir í tapaðri uppskeru
og að þúsundir starfa myndu
tapast. Þar voru menn þá í
fúlustu alvöru þegar farnir
að hafa áhyggjur af áhrifum
vatnsskorts á fæðuöryggi. Er
það athyglisvert í ljósi þess
að það er hugtak sem su-
mum gagnrýnendum land-
búnaðar á Íslandi hefur helst
þótt brúklegt í brandara.
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Fréttaskýring
Ekki eru allir jarðarbúar svo heppnir að hafa aðgang að vatni, hvað þá
hreinu vatni til drykkjar.
Mynd / NASA