Bændablaðið - 26.03.2015, Qupperneq 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 26. mars 2015
m.a. lýsir sér í því nauðsynlegar
tilraunir og rannsóknarverkefni
eru ekki unnin og enginn
tilraunastjóri er starfandi við
tilraunabúið á Stóra Ármóti. Við
því verður að bregðast.
17. Staða nautgriparæktar innan
LBHÍ
Aðalfundur Landssambands
kúabænda, haldinn í Reykjavík
12.–13. mars 2015, harmar þá
deyfð sem virðist ríkja innan
LBHÍ varðandi rannsóknir og
kennslu í nautgriparækt. Jafnframt
lýsir fundurinn undrun sinni á að
LBHÍ skuli hafa gefist upp við
að gefa út almenna kennslubók
í nautgriparækt sem verið hafði í
undirbúningi í mörg ár og þegar
hafði verið styrkt fjárhagslega af
Framleiðnisjóði. Felur fundurinn
stjórn LK að gera LBHÍ grein
fyrir vonbrigðum sínum vegna
þessa.
18. Ræktunarstarf og kynbætur
Aðalfundur Landssambands
kúabænda, haldinn í Reykjavík
12.–13. mars 2015, beinir því til
Fagráðs í nautgriparækt að setja
meiri metnað í ræktunarstarfið
með róttækum breytingum, svo
sem:
• Nýta mælanlegar upplýsingar
um mjaltagæði (t.d.mismjaltir
eða ekki) og mjaltahraða til
notkunar í ræktunarstarfinu.
• Breyta mati á skapgerð kúa
þannig að það fangi sem best
erfðamun þes eiginleika.
• Hæð gripa verði mæld og tekin
inn í kynbótamatið.
• Lýsing á nautum og
dætrahópum verði gerð
skiljanlegri og byggi eftir því
sem hægt er á mælanlegum
upplýsingum.
• Kannaður verði kostnaður
við kyngreiningu sæðis við
íslenskar aðstæður.
• Áherslur í kynbótaeinkunn
verði endurskoðaðar.
Erfðaeðli kúastofnsins hefur mikil
áhrif á afkomu kúabænda, svo og
á vinnu þeirra. Ljóst er að smæð
íslenska kúastofnsins veldur því
óhjákvæmilega að erfðaframfarir
í honum eru verulega minni en í
stærri stofnum. Það er þeim mun
tilfinnanlegra sem bústærð eykst
og hagræðingarkröfur aukast. Því
er nauðsynlegt að ræktunarstarfið
sé svo markvisst sem mögulegt er.
19. Upplýsingar um úrval nauta í
kútum sæðingamanna
Aðalfundur Landssambands
kúabænda, haldinn í Reykjavík
12.–13. mars 2015, beinir því
til þeirra sem sjá um sæðingar
í landinu, að komið verði upp
þeirri reglu að bændur geti alltaf
séð úr hvaða nautum sæði er að
finna hjá hverjum sæðingamanni.
Hægt væri að hafa upplýsingarnar
í Huppunni, senda tölvupóst eða
á heimasíðu.
20. Nautakjötsframleiðsla og
holdanautastofnar
Aðalfundur Landssambands
kúabænda, haldinn í Reykjavík
12.-13. mars 2015, lýsir
þungum áhyggjum yfir stöðu
nautakjötsframleiðslunnar í
landinu og ítrekar ályktanir fyrri
aðalfunda um það efni. Afar
brýnt er að öllum mögulegum
leiðum verði beitt til að skjóta
styrkari stoðum undir þessa
grein íslensks landbúnaðar
og henni gert fært að mæta
þeim tækifærum sem vaxandi
eftirspurn skapar. Fundurinn
fagnar áformum sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra um að
leggja fram frumvarp til breytinga
á lögum um innflutning dýra
fram til þinglegrar meðferðar og
væntir þess að það verði afgreitt
á yfirstandandi þingi . Jafnframt
væntir fundurinn þess að við gerð
reglna um notkun á innfluttu
holdanautasæði tekið fullt tillit
til niðurstaðna áhættumats
Veterinærinstituttet í Noregi,
varðandi þær kvaðir sem lagðar
verði á bú sem nota slíkt sæði.
Greinargerð
Innflutningur á nautgripakjöti var
ríflega 1.000 tonn árið 2014, að
andvirði rúmlega 900 milljóna kr.
Jafnframt benda athuganir LK á
þróun nautakjötsmarkaðar til þess, að
þrátt fyrir að allir fæddir nautkálfar
yrðu settir á til kjötframleiðslu
og slátrun mjólkurkúa næði fyrra
jafnvægi, dygði það ekki til að
mæta vaxandi eftirspurn eftir
nautgripakjöti. Því er afar brýnt
að hraða svo sem kostur er öllum
aðgerðum sem mega verða til að efla
innlenda nautakjötsframleiðslu. Þar
eru bein tengsl holdanautabænda við
öflugt kynbótastarf einn mikilvægasti
þátturinn.
21. Verðlagning mjólkur
Aðalfundur Landssambands
kúabænda, haldinn í Reykjavík
12.- 13. mars 2015, lýsir
þungum áhyggjum af þeirri
stöðu sem komin er upp
varðandi verðlagningu á mjólk
og mjólkurafurðum. Verðlagning
er í höndum Verðlagsnefndar
búvöru en hún hefur ekki starfað
síðan í júní 2014 þótt hennar bíði
brýn verkefni. Fundurinn skorar
á ráðherra landbúnaðarmála að
höggva á hnútinn sem allra fyrst.
22. Áherslur og samningsmarkmið
búvörusamninga.
Aðalfundur Landssambands
kúabænda, haldinn í Reykjavík
12.- 13. mars 2015, tekur undir
þær áherslur sem lagðar eru upp í
ályktun Búnaðarþings 2015 vegna
gerðar nýrra búvörusamninga.
Fundurinn leggur áherslu á að
þegar í stað verði hafnar viðræður
við ríkisvaldið um starfsskilyrði
nautgriparæktar til að eyða þeirri
óvissu sem uppi er í greininni.
Þar verði horft til eftirfarandi
markmiða:
• Að stefnt verði að samningi
sem rammi inn starfsumhverfi
greinarinnar til lengri tíma,
að lágmarki 10 ára, þannig
að bændur sjái sér fært að
framkvæma og fjárfesta í
greininni.
• Að tryggð verði staða
nautgriparæktarinnar sem eins
af undirstöðuatvinnuvegum
þjóðarinnar er keppt geti við
aðrar atvinnugreinar og aðra
valkosti um fólk, fjármagn og
land.
• Að almenn starfsskilyrði
í framleiðslu og vinnslu
mjólkurafurða og stuðningur
ríkisins við greinina stuðli að
áframhaldandi hagræðingu,
aukinni samkeppnishæfni og
bættum kjörum bænda.
• Að fjárhagslegur stuðningur
ríkisins við greinina nýtist sem
best til að lækka vöruverð til
neytenda.
• Að greinin fái svigrúm til að
búa sig undir aukna erlenda
samkeppni.
• Að greinin geti þróast
þannig að nauðsynleg
kynslóðaskipti geti orðið í
hópi mjólkurframleiðenda
og unnt sé að endurnýja
framleiðsluaðstöðu í samræmi
við auknar kröfur um aðbúnað
og velferð gripa.
• Að áhersla verði áfram lögð á
heilnæmi afurða og kröfur til
dýravelferðar í nautgriparækt.
• Að tryggja öruggt framboð
nautgripaafurða fyrir
neytendur á hagstæðu verði.
• Að skapa aðstæður til að
nýta sóknarfæri á erlendum
mörkuðum.
• Að viðhaldið verði jákvæðri
ímynd greinarinnar og afurða
hennar.
• Að tryggð verði staða lífrænnar
framleiðslu nautgripaafurða
og henni skapað ekki síðra
starfsumhverfi en gerist í
nálægum löndum.
• Að takmarka eða banna
innflutning dýraafurða sem eru
framleiddar við lakari aðstæður
og kröfur um aðbúnað, fóðrun
og hirðingu en gerðar eru til
innlendrar framleiðslu.
Til að framangreindum
markmiðum verði náð, er lögð
áhersla á eftirfarandi leiðir:
Tollaumgjörð:
Samið verði um tollvernd til að
tryggja samkeppnisstöðu innlendrar
framleiðslu, hún verði í upphafi
samnings ákveðin út frá breytilegri
stöðu einstakra vöruflokka og tryggt
að hún haldi verðgildi sínu.
Samningar um gagnkvæma
tollkvóta komi því aðeins til
greina, að tekið sé tillit til smæðar
hins íslenska markaðar og umfangs
innlendrar framleiðslu.
Verðlagning og úrvinnsla:
Á gildistíma nýs samnings verði
horfið frá núverandi kvótakerfi og
sama verð gildi fyrir alla innlagða
mjólk.
Opinberri verðlagningu til bænda
verði hætt, en opinber verðlagning
verði áfram til staðar á vinnslu og/
eða heildsölustigi, með það markmið
að auka fjölbreytni, en tryggja
jafnframt hagsmuni neytenda og
bænda.
Tryggt verði með búvörulögum
jafnt aðgengi bænda að markaði og
þeim gert mögulegt að sameinast
áfram í einu innvigtunar- og
söfnunarfyrirtæki.
Samspil búvöru- og
samkeppnislaga sé tryggt, þannig
að bændum verði heimilt að koma
sameinaðir fram gagnvart markaði.
Þannig verði gert mögulegt að tryggja
eðlilegt framboð mjólkurafurða,
lágmarka kostnað við vinnslu,
viðhalda eðlilegri birgðastýringu
innanlands og hámarka afkomu af
útflutningi.
Skýrðar verði þær leikreglur sem
gilda eiga um úrvinnslu og sölu
heima á búum kúabænda.
Stuðningskerfi:
Núverandi upphæðir stuðnings-
greiðslna verði auknar og allir liðir
þeirra verðtryggðir. Meginþungi
þeirra verði áfram í formi
framleiðslutengdra beingreiðslna og
stuðli þannig að aukinni hagkvæmni
framleiðslunnar, sanngjörnu
vöruverði til neytenda og treysti
tekjur bænda.
Beingreiðslur verði óbreyttar
að umfangi frá því sem nú er og
útfærðar með þeim hætti að þær
tryggi jafnt og öruggt framboð
mjólkur til vinnslu.
Gripagreiðslur verði áfram með
svipuðum hætti, þær stuðli m.a. að
fjölbreytni í búskaparháttum og
styðji við áherslur um líffræðilegan
fjölbreytileika.
Gert verði ráð fyrir auknum
stuðningi ríkisins við eflingu
þróunar- og kynbótastarfs í greininni.
Sótt verði á um aukin framlög sem
stuðli að bættum aðbúnaði og velferð
gripa í samræmi við auknar kröfur
hins opinbera. Þar verði jafnframt
gert ráð fyrir eðlilegri endurnýjun
og nýliðun innan greinarinnar, bæði
í mjólkur- og nautakjötsframleiðslu.
Sótt verði á um aukin framlög svo
nautkjöt njóti stuðnings.
Við samningsgerðina verði
lögð áhersla á að bændum verði
gefin eðlileg aðlögun að breyttu
fyrirkomulagi á samningstímanum.
23. Uppfylling á þörfum
markaðar ins
Aðalfundur Landssambands
kúabænda, haldinn í Reykjavík
12.–13. mars 2015, hvetur
bændur til að fullnægja þörfum
innanlandsmarkaðar fyrir
mjólk og nautakjöt til að koma
í veg fyrir aukinn innflutning
á þessum vörum með áhættu á
minnkandi umfangi íslenskrar
landbúnaðarframleiðslu.
24. Fyrirkomulag greiðslumarks
viðskipta
Aðalfundur LK haldinn í
Reykjavík 12.–13. mars 2015
ályktar að viðskiptadögum á
kvótamarkaði verði fjölgað í 6 á
ári en jafnframt verði reglugerð
breytt til að bændur geti flutt
eigin kvóta milli eigin lögbýla.
25. Beingreiðslur og
gæðastýringar greiðslur
Aðalfundur Landssambands
kúabænda haldinn í Reykjavík
12.–13. mars 2015 krefst þess að
fallið verði frá áformum um að
verkefni Búnaðarstofu heyri undir
Matvælastofnun. Þess í stað verði
hún sjálfstæð stofnun sem heyri
undir ráðuneyti atvinnumála.
26. Hagtölusöfnun nautgriparækt
arinnar
Aðalfundur Landssambands
kúabænda, haldinn í Reykjavík
12.–13. mars 2015, átelur
harðlega seinagang Hagstofu
Íslands við úrvinnslu á
niðurstöðum búreikninga.
Áætluð skil á niðurstöðum fyrir
árið 2013 eru í lok maí 2015. Að
mati fundarins er óviðunandi
með öllu að nýjustu upplýsingar
um afkomu kúabænda séu
eins og hálfs árs gamlar er þær
liggja fyrir. Aðalfundur felur
stjórn LK að leita samstarfs
við bókhaldsskrifstofur
búnaðarsambandanna og RML
um gerð samantektar á afkomu
kúabænda, sem liggi fyrir í maí ár
hvert fyrir næstliðið bókhaldsár.
27. Nýting búnaðargjalds í þágu
einstakra búgreina
Aðalfundur Landssambands
kúabænda, haldinn í Reykjavík
12.–13. mars 2015, fer fram
á að RML skili greinargerð
um ráðstöfun búnaðargjalds.
Í greinargerðinni komi fram
hverjar tekjur félagsins eru af
búnaðargjaldi frá einstökum
búgreinum og tilsvarandi
ráðstöfun þess í þágu einstakra
búgreina. Greinargerðin verði birt
á heimasíðu RML eigi síðar en 1.
september 2015.
Egill Sigurðsson, bóndi á Berustöðum og formaður stjórnar MS.