Bændablaðið - 26.03.2015, Qupperneq 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. mars 2015
Íslensk löggjöf er ítarleg en þó í einhverjum tilvikum á eftir öðrum Evrópuþjóðum:
Mikilvægt að geta mælt dýravelferð
– segir Þóra J. Jónasdóttir, sérgreinadýralæknir gæludýra og dýravelferðar hjá Matvælastofnun
Í Bændablaðinu þann 26. febrúar
síðastliðinn var sagt frá erindum
tveggja fyrirlesara á ráðstefnunni
Tímamót í dýravelferð sem haldin
var á Hvanneyri á dögunum;
þeirra Hallgerðar Hauksdóttur,
formanns Dýraverndarsambands
Íslands, og Sigurðar Loftssonar,
formanns Landssambands
kúabænda. Fjöldi áhugaverðra
annarra erinda var þar fluttur og
er ástæða til að gera einhverju af
því efni einnig skil hér í blaðinu.
Þóra Jóhanna Jónasdóttir,
sérgreina dýra læknir gælu-
dýra og dýravelferðar hjá
Matvælastofnun, flutti tvö
erindi á ráðstefnunni. Annað
með yfirskriftinni Hvernig
mælir maður dýravelferð?
og hitt hét Vernd dýra við
aflífun. Nokkrum dögum síðar
flutti hún erindi á fundi á
vegum Alþjóðamálastofnunar
Háskóla Íslands í samstarfi
við Evrópustofu um nýja
dýraverndarlöggjöf á Íslandi
og gerði þar líka samanburð við
stöðu mála í Evrópu.
Í viðtali við Bændablaðið segir
hún að ýmsar skilgreiningar séu til
á því hvað velferð sé, en hún hljóti
alltaf að vera samspil margra þátta.
„Oft er velferð dýra skilgreind út
frá því að grunnþarfir dýranna séu
uppfylltar og þar er oft vitnað til
fimm hliða frelsisins; að dýr skuli
vera laus við hungur og þorsta,
vanlíðan og óþægindi, sársauka,
meiðsli og sjúkdóma, ótta og stress
og loks að dýrin hafi frelsi til að
geta sýnt sitt eðlilega atferli. Velferð
getur líka snúist um það hvernig dýr
komast af og líður í umhverfi sínu.
Hún segir að það geti verið
áskorun að finna út úr því hvernig
líðan dýranna er, en þó hafi ótal
rannsóknarverkefni á síðustu árum
gert tilraun til þess í samhengi
við velferð dýra. „Til dæmis var
árið 2004 ráðist í umfangsmikið
rannsóknarverkefni á vegum
Evrópusambandsins; svokallað
WelfareQuality-verkefni. Megin-
markmið þess verkefnis var að
þróa aðferðir sem byggðar eru á
vísindalegum grunni við mat á
velferð, aðbúnaði og líðan nokkurra
búfjártegunda.“
Mikilvægt að geta
mælt dýravelferð
Þóra segir að með nýjum lögum um
velferð dýra hafi verið stigið stórt
framfaraskref innan dýravelferðar á
Íslandi. „Nýju lögin eru víðtækari og
ítarlegri en fyrri lög um dýravernd.
Í fyrsta sinn hér á landi eru dýr
skilgreind sem skyni gæddar verur
og að þau hafi eigið gildi. Lögin
fela einnig í sér meiri kröfur um
þekkingu og reynslu umráðamanna
dýra. Önnur nýmæli í lögunum
eru til dæmis að dýr hafi rétt til
að fá lækningu eða líkn ef það er
sjúkt, sært eða bjargarlaust – og að
sveitarfélagi sé skylt að sjá til þess að
gripið sé til aðgerða ef um hálfvillt
eða villt dýr er að ræða.
Með nýjum lögum og reglum
um dýravelferð er mikilvægt að
geta mælt dýravelferð – bæði til að
auka meðvitund um líðan dýranna
og hafa mælikvarða á hvernig við
stöndum í samanburði við aðra – og
hvernig eigin þróun velferðarmála
er. „Góðir mæliþættir eru til dæmis
mælanleg atriði, gjarnan á dýrinu
sjálfu sem geta endurspeglað líðan,
heilsu, stress og svo framvegis. Það
þarf að vera einfalt að sjá, meta og
túlka þessi atriði þannig að ólíkir
aðilar komist að sömu niðurstöðu.
Holdastuðull, bæði á einstaka dýri
og meðaltal í hópi, gefur til dæmis
hugmynd um aðgengi að fóðri.
Til eru skalar til að meta umfang
óhreinleika og hægt er til dæmis að
skoða hlutfall óhreinna eða haltra
dýra – eða dýra með sár eða mar.
Allt gefur þetta vissa mynd af líðan
dýrsins og velferð. Í sláturhúsum til
dæmis er hægt að telja hversu mörg
dýr stoppa á vissri gönguleið, reyna
að snúa við eða renna og detta, gefa
frá sér hljóð og svo framvegis, sem
gefur þá hugmynd um stress, líðan
eða óþægindi sem dýrið verður fyrir.“
Ítarlegri dýravelferðarlög hér en í
Evrópusambandinu
Í samanburði við önnur Evrópulönd
segir Þóra að varðandi dýravelferð
viljum við helst miða okkur við
Norðurlöndin – hvað lög og
reglugerðir snertir. „Okkar lög um
velferð dýra eru til að mynda mun
ítarlegri en hjá Evrópusambandinu og
voru nýju norsku dýravelferðarlögin
okkur fyrirmynd í mörgu. Bæði Ísland
og Noregur hafa til dæmis strangari
reglur hvað varðar kröfur um deyfingu
dýra fyrir slátrun en Evrópusambandið
leyfir slátrun án deyfingar að
uppfylltum vissum skilyrðum við
trúarlega slátrun. Hér á landi er
einnig bannað að þvinga fóður í dýr
nema sem hluta af læknismeðferð,
svo dæmi séu nefnd. Ísland hefur
svo sett reglugerðir fyrir velferð og
aðbúnað allra dýrategunda sem haldin
eru í landinu, en Evrópusambandið
hefur einbeitt sér að reglugerðum
um svín, kjúklinga, varphænur og
kálfa til að byrja með. Reglugerðir
um svín og alifugla eru hins vegar
mjög sambærilegar á milli Íslands og
Evrópusambandsins. Við erum þó til
dæmis með aðeins meiri takmarkanir
á því hvernig undanþágur er
hægt að veita til að goggstýfa/
snyrta alifugla. Ólíkt hinum
Norðurlöndunum höfum við innleitt
fáar Evrópusambandsreglugerðir
um velferð dýra. Þó höfum við
innleitt reglugerð um vernd dýra
við aflífun og höfum samþykkt
innleiðingu á reglugerð um notkun
dýra í vísindalegum tilgangi,
svokölluð Tilraunadýrareglugerð.
Noregur, sem er eina landið af
Norðurlöndunum fyrir utan Ísland
sem ekki er í Evrópusambandinu,
hefur hins vegar samþykkt að innleiða
allan dýravelferðarlagarammann frá
Evrópusambandinu í heild.“
Þó að íslensk dýravelferðarlöggjöf
sé í flestum tilvikum ítarlegri en sú
evrópska erum við eftir á í einhverjum
tilvikum. „Ný íslensk reglugerð um
velferð alifugla leit dagsins ljós
nú nýlega og í henni er tilgreint að
hefðbundin búr verða alveg bönnuð
eftir 2021. Evrópusambandið bannaði
notkun á hefðbundnum búrum frá
2012.
Bæði Evrópusambands reglugerðin
og okkar nýja íslenska reglugerð um
velferð svína tilgreina að bannað sé
að halda gyltur á básum að jafnaði
og að gyltur skuli hafa aðgang að
efni til hreiðurgerðar. Reglugerðin
tók gildi í Evrópusambandinu 2013
en okkar nýja reglugerð gefur rými
til að sækja um undanþágu til 2025 að
vissum skilyrðum uppfylltum,“ segir
Þóra. Hún segir að Matvælastofnun sé
einungis eftirlitsstofnun sem sér um að
settum lögum og reglugerðum sé fylgt.
Því verði löggjafarvaldið að svara fyrir
það hvers vegna Ísland er þessum árum
á eftir nágrannalöndunum að festa slík
dýravelferðarákvæði í reglugerðir – og
hvort það sé ásættanlegt.
Heilbrigði er vottað
en ekki velferð
Bændur hafa gagnrýnt strangar
aðbúnaðarreglugerðir hér á landi í
einhverjum tilvikum – sem muni
verða þeim mjög kostnaðarsamar
vegna breytinga á húsakosti. Þeir
segja að það sé ekki sanngjarnt að
þeim sé sniðinn svo þröngur og
kostnaðarsamur reglugerðarrammi
þegar ekki sé í öllum tilvikum ljóst
hvernig búið er að skepnunum í öðrum
löndum sem flytja afurðir sínar til
Íslands. Þóra segir að almennt eigi sér
bara stað vottun varðandi heilbrigði,
en ekki varðandi dýravelferð. Þá sé
einungis krafist heilbrigðisvottunar í
innflutningi frá svokölluðum þriðju
ríkjum – löndum utan Evrópska
efnahagssvæðisins (EES) – en
ekki varðandi vörur í viðskiptum
milli Evrópusambandsins (ESB)
og EES-landa. „Vörur frá ESB-
ríkjum eru eftir því sem mér skilst
að langmestu leyti upprunnar í
aðildarríkjunum og framleiðsla
þeirra því undir þeim lagaramma
sem gildir í ESB. Við höfum innleitt
matvælalöggjöfina að mestu leyti
og þar með kröfur um merkingar
matvæla, nema það sem lýtur að
velferð dýra svo sem merkingar
eggja með framleiðsluaðferð og
aðbúnaði dýranna. En hér á landi
eru einungis íslensk egg á markaði.
Varðandi kjöt þá merkja sláturhús í
ESB yfirleitt sérstaklega ef slátrun
með svokölluðum trúarlegum
aðferðum, svo sem Halal og Koshier,
hefur átt sér stað, svo neytendur geti
valið þar á milli.
Nýmæli í nýju íslensku
velferðarlögunum er ákvæði sem
gerir ráðherra kleift að takmarka
eða banna innflutning eða dreifingu
dýraafurða sem eru framleiddar
í andstöðu við okkar lög, svo
framarlega sem það brjóti ekki í bága
við alþjóðaviðskiptasamninga.
Nú þegar er töluvert
af fræðsluefni inni á vef
Matvælastofnunar bæði varðandi
dýravelferð, upprunamerkingar
og aðrar merkingar á matvælum og
reglugerðum þar að lútandi. Einnig
eru þar ýmis fræðsluerindi og meðal
annars erindið sem ber saman
velferðarreglugerðir ESB og Íslands.
Matvælastofnun er einnig í samvinnu
við Bændasamtökin og fleiri aðila
um að byggja upp fræðsluvefinn
www.upprunamerkingar.is þar sem
hægt er að fræðast um merkingar á
matvælum og hvað þær þýða,“ segir
Þóra. /smh
Íslenskar reglur gera ráð fyrir að svínabændur geti sótt um undanþágur til 2025 og þannig haldið gyltum lengur í
gotstíum en reglur Evrópusambandsins gera ráð fyrir. Ef undanþága fæst er heimilt að halda þeim sjö daga fyrir
got og 28 daga eftir got.
Þóra J. Jónasdóttir.
Hámarksþéttleiki í kjúklingaeldi má ekki vera meiri en 39 kg á fermetra á Íslandi. Í Evrópusambandinu getur þéttleik-
inn verið allt að 42 kg á fermetra. Íslenskir eggjaframleiðendur hafa hins vegar svigrúm til að nota hefðbundin búr
til 2021. Evrópusambandið bannaði notkun á hefðbundnum búrum frá 2012.