Bændablaðið - 26.03.2015, Qupperneq 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 26. mars 2015
Dreifing:
FUGLAFÆLUR
VINDKNÚNAR
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
− Næsta blað kemur út 16. apríl −
Fagráðstefna Landssamtaka sauðfjárbænda
27. mars 2015 á Hótel Sögu
Beitarstjórnun og sníkju-
dýravarnir á sauðfjárbúum
- sóknarfæri í aukningu afurða
Dagskrá
Fundarstjórar: Emma Eyþórsdóttir og Atli Már Traustason
14:30–14:40 Setning og inngangur. Eyþór Einarsson, RML.
14:40–15:40 “Using nutritional and grazing management
practices to combat worms in sheep”
[Nýting beitarstjórnunar og fóðrunar til að
lágmarka ormasmit í sauðfé]. Rhidian Jones,
sérfræðingur hjá SAC Consulting, Skotlandi
15:40–16:00 Kaffihlé
16:00–16:30 Nýting ræktaðs lands og beitarstjórnunar til að
bæta afurðir sauðfjár við íslenskar aðstæður.
Jóhannes Sveinbjörnsson, LbhÍ.
16:30–17:00. Smitleiðir og varnir gegn hnísla- og
ormasýkingum. Hákon Hansson, dýralæknir,
Breiðdalsvík.
17:00–17:30. Fyrirspurnir og umræður.
Í lok ráðstefnunnar fer fram árleg verðlaunaafhending
sæðingstöðvanna fyrir besta lambaföður og besta reynda
kynbótahrút ársins 2014. Þá verður einnig stutt athöfn vegna
uppfærslu Fjárvís.is – skýrsluhaldskerfis sauðfjárræktarinnar.
Nýja uppfærslan hefur verið í þróun undanfarin misseri hjá
tölvudeild BÍ undir vinnuheitinu LAMB, en þegar hún tekur
formlega af þeirri eldri, tekur hún líka við nafninu Fjárvís.
Ráðstefnan er öllum opin.
Hún er haldin í tengslum við aðalfund LS sem haldinn
verður 26.–27. mars á Hótel Sögu.
Tónar og trix gefa
út geisladisk
„Þetta verður léttur og
skemmtilegur geisladiskur með
lögum sem flestir ættu að þekkja.
Við verðum
með tvenna
útgáfutónleika í
vor, annars vegar
í Þorlákshöfn og
hins vegar í Gamla
bíói í Reykjavík.
Það verða þrettán
lög á disknum
og nokkrir flottir
gestasöngvarar
og gestahljóðfæraleikarar,“ segir
Ása Berglind Hjálmarsdóttir,
stjórnandi sönghópsins Tónar og
Trix í Þorlákshöfn, en hópurinn
er skipaður eldri borgurum og
hefur verið starfandi frá 2007.
Meðal gestasöngvara eru Kristjana
Stefánsdóttir og Jónas Sigurðsson,
sem er úr Þorlákshöfn. Búið er
að taka upp diskinn en hluti af
því ferli fór fram í Reykjavík en
söngurinn var nýlega tekinn upp í
Þorlákskirkju. /MHH
Ása Berglind
Hjálmarsdóttir.