Bændablaðið - 26.03.2015, Síða 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 26. mars 2015
og elstu skráðar heimildir um
sykurframleiðslu eru í texta sem
kallast Pali og er á tungumálinu
sanskrít. Einnig eru heimildir um að
Kínverjar hafi hafið sykurframleiðslu
löngu fyrir upphaf okkar tímatals.
Á 6. öld fyrir Krist hófst verslun,
í smáum stíl, með sykur frá Indlandi
um Persíu til Grikklands. Í fyrstu var
sykurreyr hjúpaður talsverðri leynd
og talað um stöngla sem framleiddu
hunang án býflugna enda var hunang
þekkt sætuefni í Evrópu. Sykur var
kallað hvítt salt og salt frá Indlandi.
Verð á sykri var gríðarhátt í fyrstu
og reyndar allt fram á 18. öld og ekki
á færi nema aðalsmanna og ríkra að
neyta þess.
Úlfaldalesti araba áttu einnig
sinn þátt í flutningum á sykurreyr
frá Indlandi og til landanna við
Miðjarðarhaf. Á 10. öld var svo
komið að hann var ræktaður í
einhverjum mæli alls staðar þar sem
slíkt var hægt á því svæði.
Kaupmenn í Feneyjum voru
búnir að koma sér upp sérstakri
vörugeymslu fyrir sykur árið 966
og stjórnuðu þeir sykurmarkaðinum
í Evrópu um langan tíma. Sykur var
þekkt verslunarvara í Skandinavíu á
seinnihluta 14. aldar.
Sykurreyr var ein af fyrstu
plöntunum sem Evrópumenn fluttu
með sér til eyja Karíbahafsins.
Eftir að ræktun á sykurreyr fluttist
þangað og til Suður-Ameríku óx
framleiðslan hratt og verð á sykri
lækkaði enda ódýrt að framleiða það
þar sem þrælar sáu um vinnuna.
Romm, skreið og þrælar
Sykur varð snemma ein af
þeim vörum sem voru hluti af
verslunarþríhyrningi, Trafalgar-
þríhyrningnum, sem lá frá Evrópu
til Afríku og þaðan til nýja heimsins
og svo aftur til Evrópu. Sykur eða
romm var flutt frá Suður-Ameríku
til Evrópu og selt þar. Gróðinn
af romm- og sykursölunni var
notaður til að kaupa, byssur, salt,
vefnaðarvöru í Evrópu og skreið frá
Íslandi sem voru eftirsóttar vörur í
Vestur-Afríku og seldar þar. Í Vestur-
Afríku voru keyptir þrælar sem fluttir
voru vestur um haf og seldir sykur-
og bómullarplantekrueigendum þar.
Og romm og sykur aftur keypt og
flutt til Evrópu.
Sagan segir að rytminn í söng
þrælanna á sykurökrunum hafi verið
mun ákafari og hraðari en þeirra sem
strituðu við bómull og tóbaksrækt.
Auk þess sem líftími sykurþrælanna
var mun styttri en við annars konar
plantekruþrældóm.
Eftir að þrælahald var bannað
hófst leit að ódýru vinnuafli til að
halda ræktuninni áfram. Bretar
fundu þetta vinnuafl í Kína og á
Indlandi og fluttu um 60 þúsund
manns þaðan til Ástralíu. Fólkinu
var lofað betra lífi í skiptum fyrir
að skrifa undir samning um að vinna
á sykurreyrsökrum í nokkur ár á
lágmarkslaunum. Með því að skrifa
undir saminginn var fólkið í raun að
samningsbinda sig í þrælavinnu til
margra ára.
Ræktun
Í ræktun er sykurreyr viðkvæmur
fyrir veðrabreytingum, hann er
kröfuharður á vatn, næringarefni
og jarðveg þrátt fyrir að vaxa vel
í mismunandi gerðum jarðvegs.
Jarðvegsþreyta er algeng þar
sem sykurreyr er ræktaður mörg
ár í röð enda vex hann hratt.
Hann hreinlega mergsýgur alla
næringu úr jarðveginum á stuttum
tíma alveg eins og vampírurnar
í bíómyndunum sem sjúga allt
blóðið úr fórnarlömbum sínum.
Uppskera á hektara er breytileg milli
ræktunarsvæða og getur verið frá
30 og upp í 180 tonn á hektara yfir
ræktunartímann sem er frá 12 og upp
í 22 mánuði.
Kjörlendi sykurreyrs er frá sirka
Suður-Spáni og til odda Suður-
Afríku eðe á milli 37° norðlægrar og
30°suðlægrar breiddar. Kjörhitastig
plöntunnar er á bilinu 20 til 35
gráður á selsíus og hún þarf að
lágmarki 600 millimetra af úrkomu
á ári, 2000 til 2300 millimetrar þykja
hæfilegir yfir vaxtartímann, auk þess
sem plantan þrífst best við háan
lofthita. Þrátt fyrir að vera frekur á
vatn kýs sykurreyr vel framræstan
og loftríkan jarðveg. Sykurreyr
drepst þegar lofthiti fer að nálgast
frostmark.
Við góðar aðstæður er sykurreyr
gríðarlega mikilvirkur í að breyta
sólarljósi og steinefnum í lífrænt efni
og hreinlega hægt að horfa á plöntuna
vaxa og getur plantan framleitt
allt að 280 tonn af sykri á hektara
á ári þar sem skilyrði eru best.
Sykurreyr myndar auðveldlega fræ en
er samt sem áður aðallega ræktaður
upp af græðlingum og þannig tryggt
að einungis uppskerumestu plönturnar
séu í ræktun. Víðast hvar í heiminum
er græðlingum plantað með höndum
en í iðnvæddum ríkjum og stórræktun
er það gert með þar til gerðum vélum.
Hægt er að fá uppskeru af sömu plöntu
nokkur ár í röð þar sem rótin sendir
upp nýja stöngla jafnóðum og eldri
stönglar eru skornir af til vinnslu.
Eins og fyrr segir gerir jarðvegsþreyta
vart við sig sé sykurreyr ræktaður
endurtekið á sama stað í mörg ár en
sá árafjöldi er frá tveimur og upp í tíu
ár eftir ræktunaraðferðum og kröfum
um uppskeru. Uppskera á sykurreyr
er víða unnin með höndum en í
stórræktun er hún að mestu vélvædd.
Reyrbjöllur geta valdið talsverðum
skaða við ræktun á sykurreyr en
bjöllurnar lifa í jarðvegi og leggjast
á rætur plöntunnar. Fiðrildalirfur,
laufétandi maurar og ýmsar tegundir
termíta eru einnig sólgin í sykurreyr.
Auk þess sem margar tegundir
rotsveppa leggjast á rætur, rótarháls,
stöngul og blöð hans.
Minna ber á sjúkdómum og
meindýrum þar sem ræktun er
takmörkuð en í stórræktun er algengast
að bregðast við svona árásum með
efnahernaði og beita skordýra- og
sveppaeitri.
Hrásykur og hvítur sykur
Eftir að sykurreyr er skorinn er unninn
úr honum hrásykur sem síðar er unninn
áfram, hvítaður með hreinsiefnum og
þurrkaður í hvítan, kristallaðan sykur
eins og við þekkjum hann. Sykur
geymist vel sé hann geymdur þurr.
Næringar- og fituinnihald sykurs er
ekkert en í 100 grömmum af hvítum
sykri eru um 390 kalóríur. Sykur er því
eingöngu orkugjafi.
Sykurþræll endar sem
verslunarstjóri á Djúpavogi
Í bókinn Hans Jónatan - Maðurinn sem
stal sjálfum sér og kom út fyrir síðustu
jól rekur Gísli Pálsson á skemmtilegan
og fróðlegan hátt óvænt tengsl
Íslendinga við ræktun sykurreyrs
og þrælahalds á danskri nýlendu í
Karíbahafi í lok 18. aldar. Í sögunni
segir frá því hvernig þeldökkur maður
og þræll frá Jómfrúareyjum endar
á Íslandi árið 1802. Gerist bóndi,
kvænist, eignast börn og endar sem
verslunarstjóri á Djúpavogi. /VH
Um 80% af öllum sykri sem framleiddur er í heiminum er unninn úr sykurreyr.
Mismikið unninn sykur.
að framleiða það þar sem þrælar sáu um vinnuna.