Bændablaðið - 26.03.2015, Page 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. mars 2015
Hér á landi hafa orðið miklar
framfarir í jarðrækt síðustu tvo
áratugi. Trúlega má að stórum
hluta þakka það kornræktinni
sem hefur aukist og eflst síðan upp
úr 1990. Bændur hafa í auknum
mæli endurræktað tún sín og notað
kornrækt sem lið í skiptirækt.
Ný og öflug jarðræktartæki eins
og fjölskera plógar, herfi af ýmsum
gerðum og sáðvélar hafa verið tekin
í notkun. Mörg þessara tækja bjóða
upp á fjölbreytta notkun, mismunandi
vinnsludýpt og mismikið niðurbrot
jarðvegsins. Einnig er kominn
til landsins nokkur fjöldi öflugra
sáðvéla sem henta til sáningar
við fjölbreyttar aðstæður, bæði til
sáningar í unnið land sem og sáningu
beint í svörðinn án undangenginnar
jarðvinnslu.
Íslenska sumarið er stutt og svalt
og því má lítið út af bregða til að
bygg nái þroska. Því er mikilvægt
að geta sáð bygginu eins snemma á
vorin og mögulegt er án þess að slá
af kröfum um góða jarðvinnslu og
gott sáðbeð. Tilraunir á Korpu hafa
sýnt að seinkun sáningar um einungis
nokkra daga dregur bæði úr uppskeru
og þroska kornsins. Því er mikilvægt
að nýta allan þann tíma frá því hægt
er að fara um flög sem best og vinna
hratt og vel. Bændur með stóra akra
og verktakar þurfa að komast yfir
sem mest af jarðvinnu og sáningu á
sem skemmstum tíma eftir að hægt
að hefja vinnsluna.
Bygg nýtir lofthitann mismunandi
eftir því hvar á vaxtarskeiðinu það
er. Meðan kornið er að spíra og
koma upp nýtir það allan hita yfir
0°C og eftir að ljóstillífun hefst
nýtir það allan hita yfir 4°C. Þegar
byggið fer að safna sterkju í fræið
seinnipart sumars þarf það hita yfir
10°C til að flytja forða úr blöðum
og stöngli upp í axið. Þar sem svo
heitum dögum fækkar að öllu jöfnu
þegar líður á sumarið er mikilvægt
að byggið skríði sem fyrst svo
nýting sumarhitans verði sem best
til kornþroska.
Bændur og verktakar hafa leitað
leiða til að auka afköst vorvinnunar
með ýmsu móti. Hér á landi hefur
algengasta leiðin til að flýta fyrir
vorvinnu verið að plægja kornakra
eftir uppskeruvinnu á haustin.
Haustplæging getur haft í för með sér
afrennsli ef landið er í halla og einnig
getur fínn og frjósamur jarðvegur
fokið burt ef það hvessir á auða jörð
um veturinn.
Í vel unnu landi er hægt að nota
sáðbeðshrífu og/eða þjöppunarvals
aftan við hefðbundinn plóg þannig
að hægt sé að sá í akurinn strax að
lokinni plægingu og spara þannig
tíma en sú aðferð hefur ekki verið
notuð hér á landi. Aðrar leiðir eru
að nota afkastameiri tæki en plóg við
vorvinnuna t.d. einhverja útfærslu
af herfingu eða að sá beint í akurinn
án undangenginar jarðvinnslu,
svokölluð núll jarðvinnsla. Báðar
þessar aðferðir eru algengar
hjá nágrönnum okkar á hinum
Norðurlöndunum og reyndar um
allan heim.
Sumrin 2013 og 2014 hefur
verið tilraun í gangi í Keldudal
í Skagafirði þar sem borin hefur
verið saman mismunandi jarðvinnsla
fyrir byggrækt. Tilraunin var
lögð út á þrenns konar jarðvegi, í
framræstri mýri, í móajarðvegi og í
sandjarðvegi. Á öllum stöðum hafði
verið ræktað bygg áður en í sandinum
og mýrinni var hveiti sumarið 2012.
Borin var saman hefðbundin haust-
og vorplæging. Skoðað var hvort
létt yfirborðsherfing að hausti til
að dekkja yfirborðið gæti flýtt fyrir
hlýnun jarðvegs að vori og þannig
flýtt fyrir jarðvinnslu.
Að auki voru reitir þar sem notuð
var svokölluð plógherfing og sáning
án djúprar jarðvinnslu. Plógherfing
er afkastamikil jarðvinnsla sem
virkar ekki ósvipað hefðbundinni
plægingu nema að jarðveginum
er ekki snúið á moldverpi. Því
er illgresisfræ og plöntuleifar frá
árinu áður enn á yfirborðinu þó svo
að eitthvað sé grafið við vinnsluna.
Ný kynslóð plógherfa býður upp á
fjölbreytt úrval af sáðbeðsherfum
og/eða þjöppunarvölsum aftan við
herfið þannig að landið er tilbúið
til sáningar þegar búið er að herfa
eina umferð. Þriggja metra plógherfi
afkastar tvöfalt til þrefalt á við 4-5
skera vendiplóga. Í síðasta reitnum
var einungis yfirboðið herfað (mjög
grunnt) til að hægt væri að sá með
reitasáðvél í reitina og þannig var líkt
eftir núll jarðvinnslu. Allir reitir voru
yfirborðsherfaðir með pinnatætara
til að jafna yfirborð og búa til gott
sáðbeð. Innan hvers jarðvinnslureits
voru svo reitir með mismunandi
köfnunarefnismagni og mismunandi
sáðmagni til að sjá hvort þeir þættir
í samspili við jarðvinnsluna hefðu
einhver áhrif á vöxt og þroska
kornsins. Notað var sexraða yrkið
Judit og borið á nægjanlegt af P og K.
Jarðvinnsla og uppskera
Haustplæging í mýri einangrar
jarðveginn á vorin þannig að frost er
lengur að fara úr og jörðin helst köld
lengur fram á vorið. Haustplæging
mýrarinnar og móajarðvegsins
dróg ekki úr uppskeru en þroskinn
var heldur minni en á vorplægðum
reitum seinna árið. Ekki var munur
á hefðbundnum plægingareitum í
sandinum. Herfing akurs að hausti
flýtti í engu fyrir jarðvinnslu að vori
og dró heldur úr uppskeru sumarið
eftir bæði á mýrinni og móanum.
Á mynd „Meðaluppskera áranna
2013–2014“ eru niðurstöðurnar fyrir
bæði árin teknar saman. Þar hefur
öllum plægingareitum verið slegið
saman og þeir bornir saman við alla
plógherfingu og alla 0-jarðvinnslu
eftir jarðvegsgerðum. Í mýrinni
skilaði plógherfingin sambærilegri
uppskeru og hefðbundin plæging
meðan 0-vinnslan dró úr uppskeru
um þriðjung. Í móanum dró
plógherfingin úr uppskeru um
30% og 0-jarðvinnslan um 43%.
Í sandinum var plógherfingin
að skila 43% lakari uppskeru en
plæging og 0-vinnslan 71% lakari
uppskeru. Bæði plógherfingin og
núll jarðvinnslan skiluðu alls staðar
svipuðum kornþroska og hefðbundin
plæging.
Illgresi og sjúkdómar
Þekja illgresis var metin 19. júní
sumarið 2014. Plógherfuðu reitirnir
og núll-jarðvinnslu reitirnir skáru
sig úr hvað illgresi varðar og
var illgresisþekjan í plógherfaða
móanum metin 70% og í núll
jarðvinnslu í mýrinni yfir 90%.
Ljóst er að illgresið dró verulega úr
uppskeru.
Sumrin 2013 og 2014 voru
úrkomusöm í Skagafirði og voru
akrarnir verulega smitaðir af
sveppasjúkdómnum augnflekk bæði
sumurin. Smitið var heldur verra
seinna sumarið þannig að sumir
reitir höfðu lagst. Ekki er hægt að
fullyrða hversu mikið blaðsjúkdómar
drógu úr uppskeru þar sem ekki voru
samanburðarreitir sem búið var að
verja gegn sjúkdómum. Í tilrauninni
var uppskera á mýrinni 2014
einungis 72% af uppskeru ársins
2013 þrátt fyrir að vaxtarskilyrði
korns væru mun hagstæðari 2014 og
kornið mun betur þroskað. Á Korpu
og fleiri tilraunastöðum er búið að
gera allmargar tilraunir með úðun
byggakra gegn augnflekk. Smitið
og uppskerutapið er mismunandi
á milli ára og vitað er að sexraða
yrki eru næmari fyrir augnflekk en
tveggja raða yrki. Einnig er vitað að
tjón af völdum augnflekks er meira í
þungum jarðvegi (mýri) en á léttari
jarðvegi. Í mýrinni í Keldudal hafði
verið hveiti sumarið 2012 og vera
má að það hafi dregið úr smiti árið
eftir, auk þess sem sumarið 2012
hafði verið mjög þurrt og því lítið
um sveppasmit.
Í tilraun sem gerð var í Miðgerði
í Eyjafirði sumarið 2003 kom í ljós
mikill ávinningur af úðun með bæði
illgresiseyði og sveppalyfi (mynd
4). Sáð var í gamlan akur sem hafði
verið herfaður og því væntanlega
mikið um illgresisfræ og plöntuleyfar
á yfirborði. Úðun gegn bæði illgresi
og svepp skilaði að meðaltali um
70% uppskeruaukningu.
Búið er að gera allmargar tilraunir
með sáðskipti við byggrækt hér á
landi og eru niðurstöðurnar allar á
einn veg. Uppskera byggs minnkar
ár frá ári ef bygg er ræktað stöðugt
í landinu en uppskera byggs eykst
aftur ef landið er hvílt af byggrækt
og notað undir t.d. rýgresi eitt sumar.
Áburður og sáðmagn
Notaðir voru þrír skammtar
af köfnunarefnisáburði vorið
2013, 30-60-90 kg N/ha á allar
jarðvegsgerðir. Árið 2014 voru sömu
skammtar notaðir nema í sandinum
þar sem skammtarnir voru 40-80-
120-160 kg N/ha. Niðurstöðurnar
voru nokkuð eftir bókinni. Á
mýrinni jókst kornuppskera ekki
við það að bera á meira en 30 kg
N/ha. Þroskinn minnkaði marktækt
við aukið N-magn sumarið 2013 en
ekki 2014. Í móanum og í sandinum
skiluðu auknir N-skammtar
marktækri uppskeruaukningu en
lítillega dró úr þroska. Sumarið 2013
mældist marktækt samspil á milli
jarðvinnslu og köfnunarefnismagns
í móajarðveginum. Það bendir til
þess að það megi að hluta vega upp
uppskerutap af léttari jarðvinnslu
með auknum köfnunarefnisáburði
en þetta þarf að skoða betur.
Notaðir voru þrír skammtar
af sáðkorni 150-200-250 kg/ha. Í
mýrinni skilaði aukið sáðmagn úr
150 kg/ha í 250 kg/ha 17% aukinni
uppskeru eða 650 kg/ha sumarið
2013 en 12% uppskeruaukningu
sumarið 2014. Í móanum skilaði
sáðmagn umfram 150 kg/ha engum
uppskeruauka. Þessu var á sama
veg farið í sandinum fyrra árið en
seinna árið var marktæk aukning
uppskeru fyrir sáðmagni en þar hafði
köfnunarefnisskammturinn verið
aukinn verulega milli ára. Sáðmagn
hafði lítil áhrif á þroska kornsins.
Sáning
Rétt er að vekja athygli á því að
búið er að gera allmargar tilraunir
með sáningu þar sem borið hefur
Kornrækt og jarðvinnsla
3,5
5 5,3
6
Áhrif illgresiseyðis og sveppalyfs
á uppskeru